Helgafell - 02.12.1943, Qupperneq 75

Helgafell - 02.12.1943, Qupperneq 75
BÓKMENNTIR 457 andans tekst Þórleifi að faera frásagnarefni sín: lýsingar hins stórbrotna umhverfis, baráttu fólksins, þolþrek þess, sigra þess, slysfarir og harma. Að bókarlokum hefur hugur lesandans numið þetta afskekkta hérað, það er orðið lif- andi veruleiki í vitund hans. Og það er þetta, sem er takmark allrar listar og allrar sagna- ritunar. Annars hefur höfundur verið svo heppinn að fara ekki að gera bók sína að þurru sagn- fræðiriti. Hann segir hæfilega mikið af sögu fyrri tíma til þess að fóta vel frásögu nú- tímans. En um ]eið tekst honum annað, sem er ef til vill stærsti rithöfundarsigur hans í bókinni: það er að skilja viðfangsefni sitt og orka að lýsa því þannig, að það er hafið út yfir öll tímatakmörk. Þegar fuglinn kemur að, á brún og baráttan við björgin, er hið sama frá ári til árs og öld eftir öld, ríki Horn- strandavetursins hið sama, vorgleði mannanna og fögnuður yfir sumri og batnandi hag, óbreyti- legt frá kyni til kyns. Einmit þetta mikilsverða atriði finnst mér Þórleifi hafa tekizt forkunnar vel að láta koma fram í frásögn sinni. Höfundurinn skiptir riti sínu í þrjá höfuð- kafla, er hann nefnir: Land og líf, Baráttan við björgin og Dimma og dulmögn. Er fyrsti kaflinn fróðlegur og góður til yfir- lits og víða dregið efni að, auk þess, sem höf. er kunnugt af eigin raun og sjón. Bregður þar víða fyrir myndum af svipmiklum mönnum og sögulegum atburðum, og eru sumar þær sögur meistaralega sagðar t. d. sagan af Her- manni á Sléttu og Sturlu í Görðum og þáttur- inn af Alberti á Hesteyri. í kaflanum Baráttan við björgin byggir höfundur mjög á eigin sjón og þekkingu, en styðst þó meðfram við lýs- ingar skilorðra manna. Er sá kafli allur stór- vel sagður, með karlmannlegum tilþrifum í stíl, og auðfundið, hve höfundi er efnið nátengt og innlifað. { kaflanum Dimma og dulmögn seg- ir höfundur ýmsar þjóðsögur og þætti, sem hann hefur safnað um Hornstrandir, og eru sögurnar prýðisvel sagðar. En forsjallið fyrir þessum kafla þykir mér eitt með því snjallasta í bókinni og bregður merkilegu ljósi yfir sagna- sköpunina sjálfa, eins og hún hefur orðið í ein- angrun þessa fólks. Man ég ekki til, að ég hafi séð betur um það efni ritað. Mikil prýði er það á bókinni, að hún er skreytt fjölda fagurra mynda af Hornströndum. Hefur Finnur Jónsson alþingismaður tekið myndirnar af mikilli smekkvísi. Útgáfan er hin vandaðasta frá hendi útgefanda og bókin að öllu honum og höfundi til sóma. SigurSur Einarsson. Saga smábýlis Hákon Finnson á Borgum: SAGA SMÁ- BÝLIS 1920—1940. Útgefandi: Búnaðar- félag íslands. Akureyri 1943. Bók þessi er á ýmsan hátt sérstæð í íslenzk- um bókmenntum. Höfundurinn lýsir búskap sínum um aldar- fimmtungs skeið. Frá því hann kaupir Borgir í Nesjum, sem niðurnítt kot 1920, og þar til hann hefur húsað jörðina og ræktað 20 árum síðar, svo að Borgir eru þá eitt allra snyrtileg- asta og mest bætta býli landsins. Ekki hafði Hákon Finnsson arf frá forfeðrum sínum við að styðjast í þessu landnemastarfi. Föður sinn missti hann kornungur og ólst að mestu leyti upp á sveit. Hákon byrjaði búskap austur f Skriðdal árið 1909 og býr þar sem leigu- liði í 10 ár. Þá verður hann að hrökklast frá jörðinni, eins og íslenzkir leiguliðar hafa oft orðið að þola. Þá ræðst Hákon, eignalaus, í það að kaupa Borgir. En 1920 var verðlag hið hæsta sem það komst í sambandi við fyrri heimsstyrjöldina. Það virtist lítt framkvæmanlegt verkefni, sem Hákon tók sér fyrir hendur með allstóran barnahóp, þegar hann hóf búskap á Borgum vorið 1920 og varð að byrja á því að kaupa kotið allt of háu verði. Saga smábýlis lýsir þessari 20 ára baráttu hjónanna í Borgum. Hákon segir okkur frá ölj- um áætjunum sínum um umbætur á jörð sinni. Og það er sérstætt fyrir Hákon, af íslenzkum bónda að vera, hve nákvæmar áætlanir hann gerir um allar sínar framkvæmdir. Þar er engu gleymt, allt ákveðið, jafnt hið smæzta sem hið stærsta, áður en hafizt er handa. Hákon veit með hárnákvæmni, hvað allar framkvæmdir hans hafa kostað. Sumum finnst ef til vill, að óþarflega langt sé gengið í þess- um efnum, þegar Hákon segir okkur, hversu margar hálftunnur af sementi hafi farið í bæjar- stettina og hve margar í stéttarsteinana. Svo er reglusemin og löngunin til þess að vinna öll störf með vísindalegri nákvæmni mikil. Slík nákvæmni og hirðusemi og jafnmikil skipulagshæfni um framkvæmdir, er ekki ríkj- andi einkenni með þjóð vorri. Hitt er því miður algengara, að byrjað er á verkum án þess að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.