Helgafell - 02.12.1943, Síða 78

Helgafell - 02.12.1943, Síða 78
460 HELGAFELL hans hæfi. Hann var gerÖur að sendiherra í London og leysti þaÖ starf svo vej af hendi, að full vinátta hófst milli Frakka og Englend- inga. Þessar þjóðir, sem höfðu borizt á bana- spjót síðan á miðöldum, hafa varðveitt frið sín á milli allt frá þessari sendiför Talleyrands. Svo haldgott reyndist starf hans, og nú er þó komið á aðra öld síðan hann kom til London í seinna skiptið, og margvíslegar hafa breyt- ingarnar orðið á þessum tíma á stjórnarfari Frakklands. Nú fóru að nálgast ævilok hins mikla stjórn- vitrings. Hann var kominn um áttrætt og lagði því niður embætti, enda þótt honum væri nauð- ugt að hverfa burt af leiksviði stjórnmálanna. Það hefur verið sagt um Talleyrand, að hann hafi svikið flesta lánardrottna sfna og samstarfs- menn, en eitt ber öllum saman um, að föður- land sitt sveik hann aldrei. Velferð Frakklands var honum fyrir öllu. Vegna kvonfangsins og margra annarra or- saka komst Talleyrand auðvitað í beina and- stöðu við kaþólsku kirkjuna og var útskúfað þaðan, en þegar hann fann dauðann nálgast fór hann að hugsa um, að það mundi vera heppilegt fyrir eftirmæjið að sættast við kirkj- una. Hinn gamli samningamaður vildi hafa allt í lagi, er hann skildi við heiminn. Þó veitti honum erfitt að hreyfa þessu máli, en þá komu ástvinir hans til skjalanna, og fyrir milligöngu þeirra skrifaði hann undir yfirlýsingu um, ,,að hann dæi í hinni postullegu, rómversk-kaþólsku kirkju", þar með fékk hann blessun kirkjunn- ar. Skömmu síðar var hann Játinn. Fáir menn hafa hlotið misjafnari dóma en Talleyrand. En um það eru allir sammála, að vitsmunir hans voru óviðjafnanlegir. Hann var orðinn lærður maður, enda var ævin löng, og I viðkynningu var hann töfrandi skemmtilegur, að minnsta kosti þegar hann vildi. Þrátt fyrir öll sín pólitísku hamskipti, átti hann marga trygga vini og reyndist þeim vel. Bókin er fjörlega þýdd, en þó nokkuð hroð- virknisleg með köflum, og prófarkajestur gæti verið betri. Ytri frágangur er hinn prýðilegasti. HaUgrímur Hallgrímsson. Gína Kaus: KATRÍN MIKLA. Frey- steinn Gunnarsson þýddi. H.F. Leiftur. Reykjavík 1943. Þetta er merkileg bók um merkilega konu. Það er ekki sjaldgæft í sögunni, að konur hafi ráðið ríkjum, en mjög sjaldan hafa þær reynzt skörungar í stjórnarstörfum. Það eru raunar aðeins tvær drottningar á síðari öldum, sem sér- staklega hafa skarað fram úr. Þær Elísabet Englandsdrottning og Katrín önnur. En þær voru harla ólíkar. Elfsabet var af gamalli kon- ungaætt og enskust allra Englendinga. Katrín var ekki einu sinni rússnesk, heldur komin af fátækri og ómerkilegri þýzkri smáfurstaætt. Höfundur skýrir fyrst frá ætt og uppeldi Katrínar, (hún hét eiginlega Soffía Ágústa, áð- ur en hún tók grísk-kaþólska trú), og hversu stjórnmálaflækjur urðu þess valdandi, að hún, sennilega gegn vilja sínum, giftist ríkiserfingja Rússlands, er síðar varð Pétur keisari þriðji. Það var Friðrik annar Prússakonungur, sem mest gekkst fyrir því að koma þessari giftingu á, hann bjóst við, að með því mundi hann tryggja sér vináttu Rússlands, en þar reiknaði hinn mikji maður rangt. Honum kom ekki til hug- ar, að þessi unglingsstúlka mundi verða keppi- nautur hans og skæður óvinur. Hjónaband Katrínar var hamingjusnautt, enda var lítið í Pétur spunnið. Þegar hann varð keisari réði hann ekki við neitt, en áhrif og álit drottningar fór sífellt vaxandi, enda skorti hana ekki ráðríki og metorðagirnd. Loks kom þar að, að hún lét hrinda keisara frá völdum, og skömmu síðar var hann drepinn, ef til vill að undirlagi konu sinnar. Nú stóð Katrín við hið langþráða takmark. Hún var 33 ára að aldri, er hún var viður- kennd sem drottning yfir öllum Rússum og í rauninni algerlega einvöld. Hún var ólgandi af áhuga og skorti hvorki vit né vilja til þess að koma áhugamálum sínum í framkvæmd, og snemma bar á því, að hún var óbundin öllum siðferðislögum. Hún viðurkenndi engin lög nema sinn eigin vilja. Þá rekur höfundur starf drottningar, sem var tvíþætt. Hún vildi veita menningarstraumum frá Vestur-Evrópu inn yfir Rússland, og hún vildi stækka ríkið og auka vald þess út á við. Katrín hafði Jítillar menntunar notið í æsku, en með óþreytandi iðni aflaði hún sér með tím- anum mikillar þekkingar. Hún varð einkum fyr- ir áhrifum frá frönsku upplýsingarstefnunni og skrifaðist á við ýmsa helztu foringja hennar. Sumir þeirra voru enda gestir hennar í Rúss- landi. Þetta hafði þó sína annmarka. Rússneska yfir- stéttin varð fransk-menntuð og harla óþjóðleg. Aðallinn, sem kunni illa einveldi keisarans, fór smátt og smátt að setjast að í París og hirti
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.