Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2005, Síða 4
4
Frcttir / Fimmtudagur 6. desember 2005
EYJAMAÐUR VIKUNNAR
Barði í borðið þriggja vikna gamall
-og heimtaði að fara heim
Fyrsta bam ársins í
Vestmannaeyjum fæddist 3. janúar
þegar Berglind Jóhannsdóttir og
Kristleifur Magnússon eignuðust
son. Var þetta fjórða bam þeirra
hjóna. Nýkrýndur faðir í ijórða sinn
er Eyjamaður vikunnar að þessu
sinni.
Nafn: Kristleifur Magnússon.
Fæðingardagur: 8. október 1969.
Fæðingastaður: Reykjavík. Barði í
borðið þriggja vikna gamall og
heimtaði að fara heim.
Fjölskylda: Eiginkona, Berglind
Jóhannsdóttir og eigum við hrúgu af
bömum, Þura Stína 15 ára, Kristjana
Sif 14 ára, Kristleifur 8 ára og litli
gosinn þriggja daga.
Draumabíllinn: Hann verður
náttúrulega að vera sjö manna
þannig að maður getur gleymt öllum
sportbflum þannig að draumabfllinn
yrði þá sennilega Pajero eða Patrol
Uppáhaldsmatur: Naut, rauðvín og
humar.
Versti matur: Allt torfkofafæði
hentar mér einstaklega illa og er þar
skatan fremst í flokki.
Uppáhaldsvefsíða: Fbf.is en það er
síða okkar fyrirmyndarbflstjóra sem
er búinn að vera í vinnslu í 6 ár en
komist á netið í 4 eða 5 daga í það
heila.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: AC/DC. Guns'n Roses nánast
öll tónlist finnst mér góð.
Aðaláhugamái: Smíða, sauma,
elda, golf, snóker. Svo mála ég.
Hvaða mann/konu myndir þú
helst vilja hitta úr mannkynssög-
unni: Alexander G. Grande.
Fallegasti staður á íslandi:
Stafsnes í góðu verðri.
Ertu hjátrúarfullur: Ekki til.
Stundar þú einhverja íþrótt: Golf,
snóker. Svo hleyp ég með kassa um
alla krónu en það flokkast víst ekki
undir íþróttir.
Uppáhaldsíþróttamaður eða
íþróttafélag: Rúnar þór Birgisson
en hann er Vestmannaeyjameistari í
moonwalking og leikur með F.B.F
Uppáhaldssjónvarpsefni: Horfi á
allt nema þætti. Þá meina ég svona
fólk með Sirrý og Vala þarna inn, út
Besta bíómynd sem þú hefur séð?
Half Past Danish.
Hvernig gekk fæðingin: Ágætlega
yfir heildina litið.
Hvenær áttuð þið von á barninu:
15. desember, það er, í fyrra.
Eitthvað að lokum: Nú er það bara
þrettándinn og þá getur maður farið
að hlakka lil þjóðhátíðar.
Skötuselsréttur
Við þökkum nafna okkar fyrir
áskorunina, sem við lítum á sem
Hafnarfjarðarbrandara. En þar sem
frœndi lians er nýlega báinn að vera með
pítuuppskrift iþessu blaði þá fannst okkur
tilvalið að vera með skötuselsrétt. Við
vorum svo Ijónlieppin að Beddi á Glófaxa
kom fœrandi liendi með glœnýjan
skötusel rétt fyrir jólin og var hann
eldaður nýverið.
Skötuselsréttur
I stk skötuselur
2-300 grömm rækjur
'h haus salat, t.d. iceberg.
4 stk tómatar
Ostur, t.d. höt'ðingi eða camebert.
I peli rjómi
hvítvín, smá skvetta, má sleppa.
smjör
eðalsalt
hvítlauksduft
karrý
Skötuselurinn er snöggsteiktur í íslensku
smjöri á pönnu, kryddaður með eðalsalti
og hvítlauksdufti. Síðan er hann látinn
bíða á meðan ijóminn, hvítvínið,
niðurskomir tómatamir, osturinn ásamt
karrýinu er látið malla smástund. Að
lokum er káli sem er gróft skorið, rækjum
Stefanía Þorsteinsdóttir og Viktor Helgason
eru matgæ&ingar vikunnar
og skötusel bætt útí og látið bíða smá
stund í sósunni. Það er að okkar mati
aðalalriðið að elda og krydda ekki of
mikið svona gotl hráefni. Með þessu var
dmkkið ískalt Carmen hvítvín. Svo er það
smekkur hvers manns hvað hann borðar
með svona kóngafæði.
Við hjónakornin óskum öllum Eyiamönnum gleðilegt ár og skorum á Sigga Ella sern er magnaður
kokkur að vera næsti matgæðingur.
eyverjar
í Höllinni milli kl. 16 og 18
verð kr. 500 ( 300 fyrir systkini )
Jólasveinar mæta á svæði og gefa öllum gotterí.
Ef veður leyfir mæta Georg og félagar einnig.
Vegleg verðlaun - Allir velkomnir
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir
leiklistarnámskeið
fyrir 16 ára og eldrí.
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 11. janúar
klukkan 20:00 í sal FÍV.
Ath! Nemendur í FÍV fá einingu fyrir
þátttöku á námskeiðinu.
Leiðbeinandi er Ásgeir Sigvaldason
Verð: 1000 krónur
Skráning í síma: 481 1940
"Láttuekkideigan -.IB ., sr
síga, Guðmundur" -A^\/vestmannaeyja
Hvoð á oð gero um helgina?
„Tek að sjálfsögðu þátt í þrettándagleðinni,
virkilega gaman að því. Festival í janúar.
Sannkölluð kvötkveðjuhátíð Vestmannaeyinga.
Eg fer síðan í fertugsafmæli til Gríms kokks á
laugardaginn. Síðan fer starf Dans á rósum á fullt
næstu helgar á eftir, allt brjálað að gera þar."
-Viktor Ragnarson rakari og bassaleikari
á döfinni
í vikunni
fimmtudagur:
Þrettándagleði ÍBV upp við Löngulág.
Þrettándaball Fyverja í Höllinni frá kl. 16 til 18.
laugardagur:
DHL deild kvenna: ÍBV - Valur kl. 14.00.
í janúctr
15. DHL deild kvenna: ÍBV - Stjarnan kl. 14.00.
28. DHL deild kvenna: ÍBV - Haukar kl. 19.15.