Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2005, Side 16
Frétta- og auglysingasími: 481-1300 / Fax 481-1293
Skólavegi 2L
CTS
o
iA *->
*Q tA
'cu
Sb c
-rö U1
X 06
LSRTERRK VEITINGAHÚS BÁRUSTÍG 11 h? A q SÍMI 481 3393 FANcy Sayrtktúfa & mrslm
Þess virði..! Skólcvec' 6 s. 481-2330
ÞAÐ var mikið um dýrðir á Stelpurokki á Conero í síðustu viku. Bls. 13,
Axel Ó kaupir Skóbúð Selfoss:
Tók við um áramótin
Eigendur Axel Ó. hafa fest kaup á
Skóbúð Selfoss og tóku formlega
við rekstri hennar 1. janúar sl. Fyrsti
opnunardagur nýrra eigenda var á
þriðjudaginn og ■ sagði Magnús
Steindórsson að þetta legðist vel í
sig.
„Þetta er mjög svipuð verslun að
stærð og áherslum og Axel Ó. þann-
ig að þetta fellur vel að þeim rekstri
sem fyrir er hjá okkur.“ Hann sagði
ennfremur að með kaupunum næð-
ist fram hagræðing í innkaupum þar
sem mun auðveldara væri að kaupa
inn fyrir stærri kaupendur.
„Við erum að tala um miklu
stærri markað en hérna heima og
það gefur okkur ákveðna mögu-
íeika. Þetta hefur verið að gerjast
hjá okkur í haust og þegar við
ákváðum að bjóða í reksturinn gekk
allt fljótt og vel fyrir sig.“
Eigendur Axel Ó. kaupa verslun-
ina af Ingvari Jónssyni og fjöl-
skyldu. Magnús sagði að frekari
útvíkkun væri ekki á dagskrá hjá
þeim enda væri þetta nóg í bili.
Hann sagði ennfremur að reksturinn
í Eyjum væri barningur eins og
alltaf en var ánægður með söluna
fyrir jólin. „Hún var mjög góð eða
svipuð og í fyrra.“
Axel Ó. er ekki fyrsta fyrirtækið í
Eyjum sem leitar upp á fastalandið
eftir frekari tækifærum. Sparisjóður
Vestmannaeyja er með útibú bæði á
Selfossi og í Hveragerði og eigandi
að Sparisjóði Hornafjarðar, Skipa-
lyftan keypti nýlega Vélsmiðju
Suðurlands og eins hefur Reyni-
staður verið með útibú á Selfossi til
nokkurra ára. Það má því segja að á
sama tíma og ísland er ekki nógu
stórt fyrir kaupahéðna landsins sem
hafa fjárfest mikið á erlendri
grundu að undanförnu eru Vest-
mannaeyjar ekki nógu stórar fyrir
kaupsýslumenn í Eyjum sem fjár-
festa á íslandi.
Fyrsta barn ársins var
17 marka drengur
Fyrsta bam ársins fæddist klukkan
18.38 mánudaginn 3. janúar. Var
það drengur sem vó 4340 grömm
eða 17 merkur og var 57 cm.
Foreldrar hans eru Berglind Jó-
hannsdóttir og Kristleifur Guð-
mundsson. Er þetta fjórða barn
þeirra. Drengurinn er stór og sagði
Kristleifur, sem að vonum var í
skýjunum, að hann passaði ekki í
helminginn af fötunum sem hann
fékk í jólagjöf. Systkini hans eru
með honum á myndinni, þær Þura
Stína sem er 15 ára, Kristjana Sif 14
ára og stóri bróðir, Kristleifur 8 ára
sem heldur á drengnum.
Loðnuvertíð að hefjast
Undirbúningur fyrir loðnuvertíð er
í fullum gangi bæði hjá Isfélagi og
Vinnslustöð.
Skip beggja eru farin til loðnu-
leitar og Guðmundur VE sem fór
út til loðnuleitar aðfaranótt mánu-
dags var kominn með 150 tonn í
gærmorgun, miðvikudag. Antares
VE hélt á miðin sama dag en að
sögn Eyþórs Harðarsonar, út-
gerðarstjóra ísfélagsins veður
beðið með að senda Sigurð VE þar
til frekari úthlutun verður ákveðin.
ísleifur VE hélt líka af stað til
loðnuleitar norður fyrir land í gær,
miðvikudag. Sighvatur VE fer af
stað þegar skýrist hver kvótinn
verður og ef loðna fmnst í ein-
hverjum mæli að sögn Guðna
Ingvars Guðnasonar, útgerðar-
stjóra Vinnslustöðvarinnar.
7 up 2 Itr
Kókó Mjólk 6x1/4 Itr
Mc Vitties Súkkulaði kex
Lu Oat Bits kex
Frón Kex 300 gr
Harpic Wc steinar 2/1
Kuchen Meister kökur
vörur a tilboði
SS Krydduð Lambalæri
1179,- 1458,- kr/kg
Verð Nú Aður
129,- 199,-
298,- 348,-
99,- 227,-
99,- 189,-
99,- 238,-
228,- 269,-
158,- 198,-