Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.02.2013, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 22.02.2013, Qupperneq 35
KYNNING − AUGLÝSING Innheimta & ráðgjöf22. FEBRÚAR 2013 FÖSTUDAGUR 3 INKASSO ehf. | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 520-4040 | Fax 520-4041 | inkasso@inkasso.is | www.inkasso.is Kynntu þér málið núna á Inkasso.is eða hringdu í síma 520-4040 og fáðu nánari upplýsingar. Alltaf100%skil á höfuðstól * *Inkasso tekur enga þóknun af höfuðstól innheimtra krafna. PI PA R\ TB W A SÍ A 12 07 51 Takk fyrir að velja Inkasso Við sjáum um: fruminnheimtu, milliinnheimtu og löginnheimtu. velja Inkasso – við þökkum þeim traustið. Yfir 700 fyrirtæ ki Ný aðferðafræði í innheimtu krafna Inkasso hefur vakið mikla athygli fyrir nýstárlega aðferðafræði í innheimtu krafna en sú leið hefur hagsmuni allra málsaðila að leiðarljósi. Inkasso sérhæfir sig í ráðgjöf og innheimtu með fyrirtækjum landsins. Félagið hefur vakið mikla athygli frá stofnun 2010 fyrir nýstárlega aðferðafræði í inn- heimtu krafna sem gengur út á að ná ásættanlegri niðurstöðu fyrir alla málsaðila. „Við viljum ekki að viðskipta- vinir kröfuhafa hætti hjá þeim þótt þeir fái sent bréf frá innheimtu- fyrirtæki. Þvert á móti viljum við vinna með kröfu höfum og greið- endum. Markmiðið er að bæði kröfuhafi og greiðandi séu sáttir. Til að ná því verða auðvitað allir málsaðilar að vera sveigjanlegir og nálgast málin með opnum huga. Umfram annað þurfa svo kröfu- hafar og greiðendur að vera sáttir við okkar þjónustu.“ Þannig lýsir Guðlaugur Magnús- son, framkvæmdastjóri Inkasso, stefnu félagsins en hann segir árangurinn síðustu sautján mánuði vera slíkan að í kringum 400 fyrir- tæki nýti sér nú þjónustu þess. Aukna eftirspurn þakkar hann enn fremur fullkomnu kerfi sem öflugt for ritunarteymi Inkasso hefur þróað í samstarfi við bankana og gerir kröfu höfum kleift að hafa full- komna stjórn á málum sínum og yfirsýn. „Þeir geta strax sjálfir fram- kvæmt í kerfinu þær breytingar sem þeim hentar, fellt niður kröfur, gert greiðsluplan eða hvað svo sem hentar hverju sinni jafnvel þótt viðskiptavinurinn bíði í símanum.“ Eins og áður sagði legg ur Inkasso áherslu á gott samstarf allra málsaðila. Til marks um það heldur félagið kostnaði ávallt í lág- marki fyrir greiðendur. „Það er eins og þekkt er að það er ólíðandi að fá bréf með til að mynda 1.000 króna höfuðstól og bréfið er með 1.190 kr kostnaði. Sú aðferð er ósanngjörn fyrir okkur sem þurfum að vinna saman; kröfuhafa, greiðendur og okkur hjá Inkasso. Enginn kröfuhafi vill vinna gegn sínum greiðendum og hætta á að glata viðskiptavinum vegna innheimtu- fyrirtækisins,“ segir hann. Guðlaugur bendir á að Inkasso semji þv í v ið k röf uhafa um kostnað sem fellur á greiðanda. „Þjónusta okkar er kröfuhöfum að kostnaðarlausu,“ segir hann. „Við erum sem sagt ekki með nein gjöld, svo sem árgjöld, þjónustu- gjöld, skráningargjöld, og hvorki árangurstengda þóknun né niður- fellingarkostnað. Sá kröfuhafi sem kemur í þjónustu til okkar fær aldrei reikninga því þjónustan er gjaldfrjáls. Þá bjóðum við kröfu- höfum einnig þá þjónustu að senda reikningana fyrir þá,“ Í því samhengi nefnir hann að Inkasso bjóði kröfuhöfum að prenta út reikninga og greiðsluseðla þeirra, en þá þjónustu nýta mörg fyrir- tæki sér. Nánari upplýsingar á heimasíðu Inkasso, slóðin er www.inkasso.is eða í síma 520-4040. Góður árangur hefur hlotist af starfi Inkasso. Til marks um það nýta sér nú í kringum 400 fyrirtæki þjónustu félagsins, bendir Guðlaugur á. MYND/VILHELM Inkasso- strax er ný þjónusta hjá Inkasso sem snýst um reikningagerð fyrir lítil fyrirtæki og einyrkja. Þjónustan var sett á fót vegna vaxandi eftirspurnar frá iðnaðarmönnum, leigubílstjórum, tannlæknum og öllum þeim sem ekki hafa aðgang að bókhaldskerfi eða voru í leit að auðveldri leið til að senda út reikninga. Nánar á Inkasso-strax.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.