Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1985, Síða 11

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1985, Síða 11
Eftirmáli við Raunir Werthers uppreisnaranda sem lá í loftinu og átti eftir að brjótast út í stjórnarbylting- unni frönsku tæpum tveim áratugum síðar. í bókinni um Werther unga er einmitt sýnt, hvernig söguhetjan gefur tilfinningasemi sinni lausan tauminn, þannig að leiðir til árekstra við ríkjandi aðstæður og að lokum á rökréttan og sannfærandi hátt til sjálfsmorðs og flótta úr þessum heimi allra heima. Þessi endalok voru að sjálfsögðu ekki litin hýru auga af kirkjulegum yfirvöldum, sem álitu þess háttar framferði höfuðsynd, og raunar höfðu einnig veraldleg yfirvöld sitthvað við það að athuga, ekki síst eftir að æskumenn, sem þóttust standa í sömu sporum og Werther, fóru að taka hann sér til fyrirmyndar og stytta sér aldur. Þetta leiddi jafnvel til þess, að bókin var bönnuð í vissum löndum, því yfirvöldum hefur sjálfsagt þótt það sæmra ungum mönnum að falla í valinn á vígvellinum en í einhverju pukri í stofunni heima hjá sér og það fyrir eigin hendi. En öllum þeim sem þannig létu lífið fyrir aldur fram að hætti Werthers hefur bersýnilega gleymst sú staðreynd að höfundur hans, Johann Wolf- gang Goethe, var sjálfur sprelllifandi og meira að segja á uppleið fremur en hitt og auðsjáanlega ekkert á því að sýna það í verki að hann ætti við sömu harmkvæli að stríða og söguhetja hans. Að vísu gefur hann það í skyn síðar, í sjálfsævisögu sinni, að hann hafi sjálfur verið kominn á fremsta hlunn með að fylgja fordæmi Werthers: „Meðal gripa í álitlegu vopnasafni, sem ég átti í eigu minni, var verðmætur, flugbeittur rýtingur. Eg var vanur að leggja hann við hliðina á rúmi mínu, áður en ég slökkti ljósið og vildi gá að því hvort ég gæti stungið oddinum nokkra þumlunga inn í brjóst mitt. En mér tókst það aldrei og endaði með því að hlæja að sjálfum mér og bægja á brott öllum hugarórum, og ákvað að lifa.“3 En til þess að bægja þessum órum frá að fullu þurfti meira, og þar kom einmitt skáldgáfa Goethes í góðar þarfir, því með Werther má segja að hann hafi skrifað sig frá ástarraunum er stríddu á huga hans. Honum fannst því að vonum skjóta skökku við að bók, sem varð honum að einhverju leyti lífgjafi, skyldi verða öðrum hvatning í öfuga átt. Enda kemur það og lítt heim við góðar og gildar aristótelískar kenningar um þann hugarlétti og útrás sem tragískur skáldskapur á að veita áheyrendum eða lesendum — eða hafði þá Platon þrátt fyrir allt á réttu að standa, þegar hann taldi skáldskapinn skaðlegan og óalandi, með því að hann æsti upp tilfinningar manna í stað þess að sefa þær? Bókin um Werthers raunir gerði meira en að létta tilfinningum af Goethe, hún varð og til þess að afla honum frægðar og veraldargengis og beina lífi hans á brautir sem hlutu að leiða hann frá allri sjálfshyggju og slæpingshætti sem einkenndi söguhetju hans Werther hinn unga. Við stjórnsýslu sína, ritstörf og fræðiiðkanir í Weimar við hirð Karls Agústs hertoga tók hann stefnu í öfuga átt við Werther og varð sýnu langlífari en hann, ekki einungis 409
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.