Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 133

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 133
NOKKRIR GAGNRÝNISÞANKAR VARÐANDI „UPPRUNA NÚTÍMANS“ I ágætri grein sem Gunnar Karlsson prófessor ritaði í Sögu 1982 fjallaði hann um þann vanda sem sögukennslan á við að stríða um þessar mundir. Þar segir m. a.: Við höfum engar meginlínur í sögunni eins skýrar og þjóðernis- stefna vekjandi sögukennslunnar var, engan jafneinfaldan mælikvarða á hvað skiptir máli að kenna, ekki jafn- auðvelda leið til að skapa spennu og átök og virkja tilfinningar nemenda. Sennilega verðum við að sætta okkur við að þeir sælu tímar eru liðnir o^ komi ekki aftur um okkar daga. I staðinn verður þá að treysta á nátt- úrulegan áhuga barna og unglinga á framandi mannlífi og forvitni um uppruna hlutanna í kringum okkur. Vandi sögukennara og kennslubók- arhöfunda er þá einungis þeim mun meiri að gera námsefnið aðlaðandi. (Bls. 219) Gunnar lét ekki sitja við orðin tóm. I samvinnu við Braga Guðmundsson menntaskólakennara á Akureyri hefur hann nú ritað yfirlitsrit „um sögu ís- lensku þjóðarinnar frá því á fyrri hluta 19. aldar til nútímans.“ I þessu 362 síðna riti, sem einkum er ætlað nemendum í framhaldsskólum, draga höfundar upp nokkra mynd sem þeir telja „ungu fólki . . . brýnast að vita um fortíð þjóð- ar sinnar síðan hún hóf sókn til stjórn- frelsis, lýðræðis og velmegunar.“ (s. 7) Miðað við það markmið sem Gunnar Umsagnir um bxkur Karlsson taldi að kennslubókahöfundar ættu að stefna að, — að gera efnið aðlað- andi, — hefur þeim tekist ágætlega upp. Vitaskuld innan þess ramma sem ætíð verður að setja slíku verki. Þeas. að það sé ekki of langt og að eitthvert skiljan- legt samhengi sé í sögunni. Þeim hefur tekist að skrifa kennslubók um framfara- sögu þjóðarinnar, — með pólitísku ívafi, — sem vonandi glæðir þekkingarþrá nemenda og aðstoðar þá við að læra að leita heimilda og vinna úr þeim, — búa til sína eigin sögu. Hér erum við komin að veigamiklum þætti, — að búa til sögu. Sagnfræðingar leita, flokka, greina og semja. Kennslu- bókahöfundar notast gjarnan við eldri sagnfræðiverk og búa til sögu handa kennurum og nemendum. Kennarar túlka fyrir nemendum og nemendurnir taka við og eignast brot úr sögu þjóðar sinnar og annarra. „Wie es eigentlich gewesen ist“, — eða í þá áttina. Þekking sem lítt mótuðum ungmennum er miðl- að getur lifað lengi og farið víða bæði í rúmi og tíma. Því er mikilvægt að sú þekking sem börn og unglingar afla sér sé sem sönnust, — myndi grunn, sem þau geta síðar byggt á án fyrirfram gef- inna hleypidóma, — tími innrætingar ætti að vera liðinn. Tilgangur þessara skrifa er þó ekki að ræða almennt vandamál sögukennslu og sögunáms heldur að gera nokkrar at- hugasemdir við texta þeirra Gunnars og Braga í þeirri von að þær megi koma að gagni við endanlegan frágang verksins. I kaflanum „Leiðin til fullveldis, 1904 — 1918“ segir að sambandslaga- samningurinn 1918 hafi löngum verið tengdur vonum Dana til að endurheimta „þann hluta Slésvíkur sem dönskumæl- andi fólk byggði, eftir fyrirsjáanlegan ósigur Þjóðverja í styrjöldinni. Þegar 259
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.