Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Page 17

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Page 17
nokkuð furðuleg og stundum jaðrar hún líka við að vera afkáraleg í augum þeirra sem hafa bara alist vandræðalaust upp í sinni hefðbundnu, þúsund ára gömlu borg í Evrópu þar sem allar stærðir eru gefnar og menningin hefur sinn gang af því að hún hefur alltaf verið til staðar. Evrópubúum hættir til að líta á þessa hálfbræður sína í vestrinu sem annars flokks Evrópumenn og túlka menningartilburði þeirra sem varðveisluviðleitni en líta framhjá því sem er kannski mikilvægara, að þarna er að vaxa upp ný menning sem er ekki sú sama og var í gömlu löndunum heldur eitthvað alveg nýtt sem enginn veit ennþá hvaða stefnu á eftir að taka. Fjölþjóðamenning Kanada á örugglega eftir að vaxa og nærast á fjölbreytileikanum sem gengur þó ekki sársaukalaust fyrir sig eins og við vitum af örlögum innfæddra Inúíta og Indjána sem hafa ekki ennþá fundið sér viðunandi lífs- hætti í nútímaþjóðfélagi landsins. Og vita- skuld verður enskan áfram aðalmál ríkisins. Við þessar aðstæður getum við ekki talað um þjóð eins og við erum vön úr okkar evrópska samfélagi. Kanadamenn eru ekki þjóð á sama hátt og til dæmis Danir. En þeir eru öðruvísi þjóð eins og við íslendingar vorum líklega í kringum kristnitökuna árið 1000, rúmum hundrað árum eftir að landið byggðist af ólíkum þjóðum. Okkur finnst að íslensk miðaldamenning hafi verið sjálf- stæð en ekki eingöngu sproti af menningu Norðurlanda. Og það réttlætum við með því að íslendingar hafi ekki verið eintómir norskir innflytjendur enda þótt norrænt mál hafi orðið opinbert mál landsins. A svip- aðan hátt eru Kanadamenn samsett þjóð en ekki bara hreinræktaðir afkomendur Engil- saxa (og Frakka í Québec) enda þótt flest- um íbúum landsins sé nú enska tömust. Einhvers konar fjölmenningarstefna Norðurlandabúa, að hætti Kanadamanna, gæti verið farsæl lausn fyrir okkur. Norður- landaþjóðimar eru á jaðarmenningarsvæði en gætu kannski varðveitt sérstöðu sína með því að standa saman. Ef slíkt á að lánast þarf þó að gera hinum stærri Norður- landaþjóðum ljóst að þeirra menning stend- ur mjög höllum fæti gagnvart alþjóðlegum áhrifum en þær gætu eflt eigin sjálfstæðis- vitund með því að láta af stórþjóðatilburð- um sínum gagnvart þeim sem þær telja vera úti við sjóndeildarhring — og tekið þátt í varnarbaráttu okkar hinna. Einhvers konar fjölmenning- arstefna Norðurlandabúa, að hœtti Kanadamanna, gœti verið farsœl lausn fyrir okk- ur. Norðurlandaþjóðirnar eru á jaðarmenningarsvæði en gœtu kannski varðveitt sérstöðu sína með því að standa saman. Þjóðleg menning verður að endurnýjast og fjalla um allt í nútímanum íslensk menning felst í því að sitja heima á kvöldin og kveða rímur yfir fjölskyldunni þegar aðrir landsmenn horfa á sjónvarp, fara í bíó, drekka bjór og hlusta á rokk- tónlist. íslensk menning felst í því að fara í réttirnar og taka slátur á haustin og halda TMM 1990:4 15
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.