Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Page 98

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Page 98
Lampi, pappír og hanskar Lampinn er tvímælalaust afskaplega þarfur og góður hlutur. Það er talað um stand- og vegg-, um spritt- og olíulampa. Þegar minnst er á lampa verður maður nauðugur viljugur að fara að hugsa um lampaskerma, það er að segja maður verður ekki að gera það. Það er ekki rétt að maður verði. Það neyðir okkur enginn til þess. Við skulum vona að hver og einn geti hugsað það sem hann vill en það virðist nú samt vera staðreynd að lampinn og lampaskermurinn eiga mjög vel saman. Lampaskermur án lampa væri til einskis nýtur og lampi án lampaskerms væri gallagripur og ekki mjög fallegur. Það er eðli lampans að lýsa. Okkur finnst lítið til um lampa sem ekki hefur verið kveikt á. Ef það logar ekki á honum vantar hans sanna eðli. Það er fyrst þegar fer að loga á lampanum að gildi hans kemur í ljós, þá fyrst fer þýðing hans að lýsa og ljóma á sannfærandi hátt. Við erum skyldug til að votta lampanum virðingu okkar og klappa honum lof í lófa því hvernig færum við að í niðdimmri nóttinni ef ekkert væri lampaljósið. Við getum lesið og skrifað í mildu ljósi lampans, allt eftir því hvað hentar okkur, og fyrst við erum að tala um lestur og skrift þá erum við nauðbeygð til að fara að hugsa um bók eða sendibréf. Bækur og sendibréf minna okkur aftur á móti á eitthvað annað, nefnilega pappír. Eins og við vitum er pappír búinn til úr viði og úr pappímum eru svo búnar til bækur sem eru sumpart lítið lesnar eða alls ekki og sumpart ekki aðeins lesnar heldur hreinlega gleyptar. Pappírinn er svo mikið þarfaþing að manni finnst maður vera knúinn og neyddur til að segja: Hann hefur einstæða þýðingu fyrir hinn siðmenntaða mann. Það er varla alveg út í hött að fullyrða að siðmenningin væri ekki möguleg án pappírs. Hvernig færi betri hluti mannkyns að, við skulum vona að hann sé betri, ef enginn pappír væri búinn til. Tilvera ekki aðeins margra, heldur alls þorra mannkyns er ískyggilega háð pappírnum. Við nánari athugun fínnum við að það em til vissir hlutir sem við getum ekki verið án. Almennt talað er til þykkur og þunnur, glansandi og mattur, grófur og fínn, dýr og ódýr pappír og með góðfúsu leyfi lesandans blasa við margvíslegar pappírsgerðir og tegundir: skrifpappír, sandpappír, prentpappír, póstpappír, umbúðapappír, teiknipappír, dagblaðapappír og silkipappír. Foreldrar undirritaðs áttu snotra og netta pappírsvörubúð og það er sennilega þess vegna sem hann á svona auðvelt með að telja upp hinar ýmsu gerðir pappírsins. Það er líka vel hugsanlegt að við finnum einhvemtíma pappírssnepil, kannski rekumst við á hann í rykfallinni rithöfundarskúffú, og það er búið að skrifa á hann sögu sem hljómar eitthvað á þessa leið: 96 TMM 1990:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.