Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Blaðsíða 10
10 fréttir 8. desember 2010 miðvikudagur Stofnun ríkja innan Evrópuráðsins, sem berst gegn spillingu í aðildar- löndunum, segir að íslensk stjórn- völd hafi sýnt takmarkaða og óvið- unandi tilburði við að framfylgja tilmælum stofnunarinnar um að- gerðir gegn spillingu í landinu. Stofnunin, sem nefnist GRECO, skilaði skýrslu um stöðu mála varð- andi mútur, ákærur, kosningabar- áttu og fjármál stjórnmálaflokka í apríl 2008. Stjórnvöldum var gefinn frestur til loka október 2008 til þess að bregðast við tilmælum GRECO. Í engu hafði verið brugðist við þeim fyrir tilsettan tíma og að einhverju leyti má rekja það til bankahruns- ins fáeinum vikum fyrr. GRECO gaf loks út sex blað- síðna skýrslu í mars á yfirstand- andi ári um eftirfylgnina. Sú skýrsla byggðist á viðbrögðum sem borist höfðu GRECO í Strassborg í febrú- ar á þessu ári. Niðurstaðan var sú að Ísland hefði aðeins hrundið ein- um tilmælum af 15 í framkvæmd á viðunandi hátt. „Upplýsingar þær sem íslensk stjórnvöld hafa látið í té bera með sér að vinnan við að framfylgja öllum utan einum til- mælum í matsskýrslu þriðju um- ferðar, hvort heldur er í efnisflokki 1 eða 2, er enn á byrjunarstigi. [...] Í ljósi framangreinds er það niður- staða GRECO að hin afar takmark- aða fylgni við tilmæli nefndarinnar sé „í heildina óviðunandi“ ...“ Viðurlög Í ljósi þessarar niðurstöðu ákvað GRECO að beita viðurlögum gegn Íslandi og krafðist þess að formað- ur íslensku sendinefndarinnar skil- aði sérstakri skýrslu um framvind- una og hvernig gengi að framfylgja tilmælunum sem eftir standa. Stofnunin gaf nefndinni frest til loka september síðastliðins til þess að skila umræddri skýrslu. Eins og áður krefst GRECO þess að íslensk stjórnvöld láti þýða skýrslurnar á íslensku og birti þær almenningi. Nokkur misbrestur hefur einnig orðið á því eins og DV hefur komist að. Íslensk stjórnvöld fullgiltu aðild sína að GRECO árið 1999 og skil- uðu sérfræðingar stofnunarinnar í Strassborg sinni fystu skýrslu árið 2001. Þess má geta að GRECO var- aði snemma við spillingarhættu samfara umfangsmikilli einka- væðingu. Þá má rekja hert lög um fjármál stjórnmálaflokka og fram- bjóðendur árið 2006 til tilmæla GRECO. Ný skýrsla um framvind- una á Íslandi var samþykkt fyrir fá- einum dögum og þykja stjórnvöld hafa brugðist vel við tilmælum sem snúa að fjármálum stjórnmála- flokka og auknu gagnsæi. Fyrir miðjan áratuginn könn- uðu sérfræðingar stofnunarinnar mútubrot hér á landi og viðurlög við mútum og mútuþægni. Þá vakti meðal annars athygli þeirra að að- eins einn maður hafði verið kærður og fundinn sekur um mútuþægni hér á landi í heilan áratug. Einnig var það orðað að sá sami hafði ver- ið kjörinn aftur á þing eftir afplán- un. Þarna er átt við Árna Johnsen þótt nafn hans sé ekki að finna í skýrslum GRECO. Mútur framandi hér á landi? Stofnunin lagði meðal annars til í skýrslu sinni í apríl árið 2008 að refsingar fyrir mútubrot í einka- geiranum yrðu þyngdar og að at- hugað yrði hvort þyngja ætti refs- ingar fyrir virk mútubrot í opinberu starfi. Íslensk stjórnvöld gerðu grein fyrir stöðunni að höfðu samráði við refsiréttarnefnd og dómsmála- og mannréttindaráðuneytið. Í grein- argerð til GRECO segir um þetta að íslensk stjórnvöld séu þeirrar skoðunar að núverandi refsingar fyrir mútubrot, bæði í einkageir- anum og opinbera geiranum, séu í samræmi við refsingar fyrr önn- ur sambærileg brot í almennum hegningarlögum. Einnig sé refsing í samræmi við refsingar fyrir sam- bærileg brot í löndum með líka lagahefð. Þá endurspegli almenn umræða á Íslandi ekki þá skoðun að viðurlög þurfi að þyngja og því telji íslensk stjórnvöld enga nauð- syn bera til að þyngja refsingar fyrir mútubrot. „GRECO veitir þesu eftirtekt og þykir miður að afstaða stjórnvalda skuli ekki vara í samræmi við fyrsta hluta tilmælanna. GRECO leggur í þessu samhengi áherslu á það að núverandi viðurlög fyrir mútubrot í einkageiranum á Íslandi virð- ast vægari í samanburði við þau sem tiltæk eru í hegningarlögum annarra aðildarríkja GRECO, að Norðurlöndunum meðtöldum,“ segir orðrétt í skýrslu stofnunar- innar frá því fyrr á þessu ári. Fyrsti hluti tilmælanna, sem til er vísað, kveður á um að lög um mútur og áhrifakaup í almennum hegning- arlögum nái einnig til þingmanna, fulltrúa erlendra fulltrúaþinga svo nokkuð sé nefnt. „GRECO telur því að þessum hluta tilmælanna hafi ekki verið framfylgt og hvet- ur íslensk stjórnvöld til að end- urskoða afstöðu sína með tilliti til viðurlaga fyrir mútubrot í einka- geiranum.“ Ýmis mál í vinnslu GRECO hafði einnig mælst til þess að löggæsluyfirvöld hlytu sérstaka þjálfun í glímunni við spillingu þannig að þau yrðu betur í stakk búin til þess að fletta ofan af, rann- saka og ákæra í slíkum málum. Ís- lensk stjórnvöld bentu á í þessu sambandi að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefði nýlega verið efld. GRECO lætur sér þetta vel líka í skýrslunni en fær þó ekki séð að nokkurri sérhæfðri þjálfun fyrir löggæsluyfirvöld hafi verið komið á eins og ætlast var til með tilmælunum. Þess ber að geta að stjórnvöld vinna nú að því að bregðast við til- mælum GRECO og skila umbeð- inni skýrslu. Fyrr á þessu ári var lögð til breyting á hegningarlögum í þá veru að þau tækju mið af samn- ingi Sameinuðu þjóðanna um spill- ingu, en ráðgert er að Ísland gerist aðili að þeim samningi. Markmið þess samnings er að stuðla að og styrkja ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir og berjast gegn spillingu með skilvirkari og árangursríkari hætti, styðja alþjóðlega samvinnu og tæknilega aðstoð í tenglsum meðal annars við að endurheimta fjármuni og stuðla að ráðvendni, áreiðanleika og góðri opinberri stjórnsýslu og umsýslu opinberra eigna. „Í ákvæðum samningsins eru meðal annars ákvæði um refsi- næmi þess að múta innlendum eða erlendum opinberum emb- ættismönnum og mönnum innan einkageirans,“ eins og segir í nýju áliti allsherjarnefndar Alþingis um frumvarpið. Þá má geta þess að nýlega voru samþykkt lög sem ætlað er að skapa lagalega umgjörð um siða- reglur fyrir ríkisstarfsmenn og ráð- herra. Ný skýrsla á næstunni Fyrir helgina skilar nefnd á vegum Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra lokaskýrslu um breyting- ar á stjórnarráðinu. Jóhanna sagði á flokksstjórnarfundi Samfylking- arinnar um síðustu helgi að þar væru lagðar til róttækar breyting- ar, en þær eiga að miða að aukinni faglegri þjónustu stjórnkerfisins og skilvirkni og draga úr spillingu og frændhygli. Geta má þess að ný skýrsla GRECO um framvinduna er vænt- anleg á næstu dögum og hefur birting hennar verið samþykkt af hálfu beggja aðila. Þar þykir fram- vindan hafa verið jákvæð, sérstak- lega vaðandi gagnsæi fjárframlaga til stjórnmálaflokka og frambjóð- enda. Með því að kaupa FRIÐARLJÓSIÐ styrkir þú hjálparstarf og um leið verndaðan vinnustað. P IP A R \T B W A - 1 02 97 5 látum Friðarljósið lýsa upp aðventuna HERÐI VIÐURLÖG VIÐ MÚTUBROTUM GRECO hefur beitt Ísland viðurlögum vegna slakrar frammistöðu við að framfylgja tilmælum stofnun- arinnar um hert viðurlög gegn mútubrotum og aðgerðir gegn spillingu. Stjórnkerfið telur hert viðurlög óþörf. Stjórnvöld þykja hins vegar hafa staðið sig betur við að auka gagnsæi fjárframlaga til stjórnmála- flokka og frambjóðenda. jóhaNN haukssoN blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Reiður almenningur Almennumborgurumhefurþóttgangahægtaðupprætaspilltasérhagsmunagæsluinnaníslenska stjórnkerfisins. Vill taka til ÞóttJóhannaSigurð- ardóttirforsætisráðherrahafiárum samanbaristgegnspillingugengur hreinsuninhægtaðmatiGRECO,á sumumsviðumaðminnstakosti. GRECO leggur í þessu samhengi áherslu á að núverandi viðurlög fyrir mútubrot í einkageiranum á Íslandi virðast vægari í saman- burði við þau sem tiltæk eru í hegningarlögum annarra aðildarríkja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.