Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Blaðsíða 34
Svarthöfði er einlægur aðdá-andi Jónínu Benediktsdótt-ur. Allt síðan þessi gjörvi-lega Húsavíkurstúlka steig sín fyrstu skref á braut frægðar og frama hefur Svarthöfði fylgst agndofa með. Með því fyrsta sem Jónína gerði var að upplýsa heim- inn um að Barbie væri dauð. Tími hinnar sjálfstæðu konu var runn- inn upp. Eftir ótal beygjur og sveigjur í lífinu hafnaði Jónína í fangi Jóhannes-ar í Bónus. Í nokkur ár gekk allt vel. Jónína þjónaði Baugi af alúð við hlið manns síns. Hún geislaði af fegurð og þokka og sagði ekki orð um að Barbie væri dauð. Augu þjóðarinnar hvíldu á henni og Jóhannesi sem báru ást sína svo sannarlega á torg. En það er þannig með hamingjuna að hún hverfur gjarnan jafnskjótt og hún birtist. Óveðursbakkinn nálgaðist parið. Jónína og Jóhannes slitu samvistir þegar ástin var kulnuð og hatrið hafði tekið sér bólfestu. En Jónína var ekki lengi á lausu. Jóhannes hvarf og inn í myndina kom Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgun- blaðsins og valdamaður. Eins og Jónína lýsir í ævisögu sinni tókust með þeim ástir. Þar var hjónaband ritstjórans ekki fyrir- staða. Í sambandinu loguðu eldar ástar og hugmyndaauðgi. Skötuhjú- in skiptust á tölvupóstum sem gengu út á hlýju en einnig hvernig væri hægt að hjálpa Jóni nokkrum Geraldi við að taka í lurginn á Jóhannesi og öðrum Baugsmönnum. Svo illa vildi til að póstarnir láku í fjölmiðla í eigu Baugs sem gerðu sér óspart mat úr þeim. Á forsíðu eins blaðsins var gert út á ástir Jónínu og Styrm- is. „Þau voru elskendur“ var upp- slátturinn. Jónína er kjarnakona og Svarthöfði beinlínis fékk gæsahúð af hrifningu þegar hún höfðaði mál á hendur Baugsmiðlunum. Kvenfork- urinn hikaði ekki en lagði til atlögu við sjálfan Baug. Þarna var ljóslifandi komin kvenútgáfan af Don Kíkóta. Það fór svo á endanum að Jónína vann málið gegn Baugsmiðlinum sem sagði að hún og Styrmir hafi verið elskendur og hún fékk bætur vegna þessa hræðilega áburðar. Í ævisögu sinni lýsti hún síðan ást sinni og rit- stjórans og birti aukalega tölvupósta sem Baugsmiðlarnir höfðu ekki komið höndum yfir. Enn hafa ekki sprottið málaferli af því uppátæki hennar. En þótt öldur lífsins hafi skol-að þeim Styrmi í sundur var engin kreppa hjá Jón-ínu, eftirspurnin eftir hlýju hennar var næg. Ljósa hárið, brosið og fagur limaburður tryggði að karlar í valdastöðum misstu frá sér ráð og rænu. Baugur var orðinn gjaldþrota og allt íslenska fjármálakerfið var komið í þrot. Styrmir var kominn á eftirlaun og ófríðari ritstjórar komnir á Moggann. Þá var sem himnarnir lýstust upp. Ástin kom enn inn í líf Jónínu. Að þessu sinni var það sjálfur umboðsmaður Guðs. Gunnar Þorsteinsson í Krossinum hafði til að bera alla þá kosti sem Jónína gat séð í einum manni. Þau féllust í faðma. Og það var ekki tjaldað til einnar nætur því skömmu síðar gengu þau upp að altarinu og staðfestu ást sína frammi fyrir augliti drottins. Það stefndi í varanlega hamingju þeg- ar fjandinn losnaði. Jónína veitti því eftirtekt að einn sá helsti djöf- ull sem Gunnar hhefur að draga er hversu fjallmyndarlegur hann er. Og það var eins og við manninn mælt. Hópur kvenna ruddist fram og bar Gunnar ásök- unum um áreiti. Jónína var enn aftur komin í slaginn. Hún barð- ist við kynsystur sínar með kjafti og klóm til að verja sinn mann. En þar var við ofurefli að etja. Konan sem lagði Baug varð að lúta í lægra haldi. Umboðsmaður Guðs í Krossinum sagði af sér og saman hurfu hjónin til útlanda. Svarthöfði bíður nú spenntur eftir næsta bindi ævisögu Jónínu Ben. Hvar í ósköpunum ber hún næst niður? KONAN SEM LAGÐI BAUG „Ég er búinn að stúdera þetta efni í 40 ár og er svo heppinn að hafa kynnst mörgum góðum miðlum.“ n Guðmundur Kristinsson, höfundur bókarinnar Sumarlandið þar sem framliðnir lýsa andláti sínu og endurfundum í framhaldslífinu. – DV.is „Hann vaknaði um daginn með þvílíka magapínu sem endaði með því að hann var lagður inn.“ n Jóhannes Bachmann, bróðir Andrés Bachmann, sem hefur skipulagt jólaball fatlaðra undanfarin ár en André var lagður inn á spítala. – Fréttablaðið „Ég fór frekar oft í IKEA í síðustu viku.“ n Söngvarinn Ingólfur Þórarins- son, Veðurguð, er fluttur frá Selfossi og í sína fyrstu íbúð. „Heiðar gæti spilað með Liverpool.“ n Stuðningsmenn Queens Park Rangers, QPR, fóru fögrum orðum um íslenska landsliðsframherjann Heiðar Helguson í götuspjalli á fótbolti.net í Lundúnum. – fótbolti.net „Nú eru hlutirnir að gerast.“ n Kveðja frá foreldrum Helgu Sigríðar Sigurðardóttur eftir að stúlkan var vakin í gærkvöldi og losnaði úr öndunarvél. – Facebook Tilviljanir breyta lífinu Á Íslandi fer sú goðsögn kynslóða á milli að hver sé sinnar gæfu smiður. Um þetta vitna margir málshættir, sem segja svo ekki verður um villst að hér sé við lýði samfélag verðleika: Þeir fiska sem róa, er sagt. Sagt er að fólk uppskeri eins og það sáir. En þetta er ekki rétt. Stærstu fjárhagslegu hagsmunir fólks á Ís- landi síðustu áratugi hafa ráðist af algerum tilviljunum, sem eru óháðar vinnusemi, góð- um ákvörðunum eða verðleikum. Tveir hópar rúmlega miðaldra fólks eru á Íslandi. Annar hópurinn tók óverðtryggt lán fyrir um það bil 30 árum. Hinn hópurinn tók verðtryggt lán. Þeir sem tóku óverðtryggðu lánin urðu fyrir því láni að verðbólgan, sem fór upp í meira en 100% á ári, át upp lánin þess. Hópurinn með verðtryggðu, öruggu lánin sá þau hins vegar hækka og hækka. Tilviljun réð því að annar hópurinn fékk húsnæðið nán- ast frítt og átti bjarta fjárhagslega framtíð, en hinn hópurinn þurfti að borga miklu meira en viðbúið var. Önnur tilviljun skipti síðar sköpum. Einn hópur kaupir fasteign í þorpi A. Hinn hópur- inn kaupir í bæ B. Sægreifi selur kvóta í þorpi A og kippir stoðunum undan atvinnulífinu þar. Hið sama gerist ekki í bæ B. Þetta eru ekki náttúruhamfarir, heldur kerfisbundin tilfelli í svokölluðu kvótakerfi sem ríkisstjórnin setti á, með frjálsu framsali veiðiheimilda til að há- marka sveigjanleikann fyrir kvótaeigendur. Það getur auðveldlega munað tuttugu milljónum króna hvort fólk ákvað á árun- um 2006–2008 að kaupa fasteign eða leigja. Tuttugu milljónir til eða frá eru stórmál fyrir venjulegt fólk. Þær eru nóg til að breyta hvers- dagslífi, matarvenjum, sumarfríum og jólum. Þær geta valdið eðlismun á ellinni. Samt er þetta tilviljun, óháð sanngirni. Jóhanna Sigurðardóttir kynnti fyrir helgi aðgerðir, sem fólust almennt í því að tryggja að bankinn fengi eins mikið og hann mögu- lega gæti frá fólki, en ef fólk gæti ekki borg- að myndi það ekki borga nema það sem það gæti. Það hefði þó líklega gerst án hennar hjálpar. Liður í hjálpinni er að gera fólki erf- iðara að fá yfirveðsett lán afskrifuð niður í 110 prósenta veðsetningu. Áður buðust bankarn- ir til að afskrifa allt yfir 110 prósentum, óháð tekjum, ef allar skuldirnar voru hjá sama banka. Nú geta aðeins þeir sem borga meira en 20 prósent af launum fyrir skatta í hús- næðið fengið afskrifaðar skuldir umfram 110 prósent af eigninni. Það er að hluta tilviljun hvort fólk keypti eða leigði. Það er tilviljun hvort fólk er með allar sínar skuldir hjá einni bankastofnun. Það er tilviljun hvort fólk tók erlent lán eða lán hjá lífeyrissjóði, með veði í annarri fast- eign, og getur því ekki farið 110 prósenta leið- ina. Þeir sem fóru varlega, og skuldsettu sig lítið og létu sparnaðinn í fasteignina, fá ekkert til baka af hækkun skulda. Þeir sem geymdu peninginn inni á bankabók í staðinn fengu björgun. Þeir sem tóku lán, þótt þeir þyrftu þess ekki, gátu fengið bæði afskriftir af skuld- um og björgun á sparifénu. Það er kerfisbundið á Íslandi að fjárhags- leg framtíð venjulegs fólks ræðst sjaldnast af vinnusemi, sanngirni eða verðleikum. Hún ræðst af einskærum tilviljunum. JóN TrAUSTI rEyNISSON rITSTJórI SKrIfAr. Fjárhagsleg framtíð venjulegs fólks ræðst sjaldnast af vinnusemi. leiðari svarthöfði 34 umræða 8. desember 2010 miðvikudaGur Til SviSS með Óla n Einn nánasti samverkamaður Ólafs Ólafssonar athafnamanns, Hjörleifur Jakobsson, hefur nú flutt lögheimili sitt til Sviss samkvæmt upplýsingum úr þjóðskrá. Ólafur hefur verið bú- settur þar í landi um skeið. Hjör- leifur bætist þar við ört stækk- andi nýlendu brottfluttra viðskiptajöfra og banka- manna sem sest hafa að í Sviss eftir bankahrunið. Fyrir bjuggu þar áður- nefndur Ólafur og einnig fyrrverandi samstarfsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, útrásarvíkingurinn Heiðar Már Guðjónsson, sem ætlaði sér að kaupa tryggingafélagið Sjóvá áður en Seðlabankinn steig á tærnar á honum. Selma með jÓlaáráTTu n Eurovision-stjarnan Selma Björns er að gera það gott þessa dagana með kúrekahljómsveit sinni. Selma var í þættinum Hringekjunni hjá Guðjóni Davíð Karlssyni, Góa, á laugardagskvöld. Upplýsti hún þar um jólaáráttu sína. Selma sagð- ist venjulega vera langt á undan öllum öðrum með skreytingar og til- heyrandi stemningu. Á meðan flestir miða við byrjun desember var Selma búin að skreyta og setja upp jólatré í október. miðaldra Sexbomba n Leikkonan Helga Thorberg á að baki ævintýraríkt ár í Dóminíska lýð- veldinu. Hún reif sig upp úr hjólför- unum á Íslandi og settist að í litlu þorpi ytra. Um þetta skrifaði hún bókina Sex- bomba á sextugs- aldri. Titillinn vísar til þess að Helga, sem þá var á sextugs- aldri, naut mikillar aðdáunar hins kynsins í Dóminíska lýðveldinu. Og til að innsigla það allt saman kom hún til Íslands með þarlendan kær- asta á góðum aldri og giftist honum í blómabúð á Íslandi. bÓkaSali með benSín n Bjarni Harðarson, bóksali og létta- drengur sjávarútvegsráðherra, er bráðfyndinn eins og fram kemur á bloggi hans. Þar fjallar hann um þá staðreynd að bækur eru seldar á bensínstöðv- um. Veltir hann vöngum yfir því að  bóksöl- um beri skylda til að bjóða upp á bensín. „Nóg er hér af glerinu. Ég gæti geymt flöskurnar bensínfullar í óræktargarðinum bakvið og vant- ar eiginlega ekkert nema krakkana til að hlaupa með þessa krúttlegu mólotovkokteila,“ bloggar Bjarni. sandkorn tryggvagötu 11, 101 reykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is umSjón helgarblaðS: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is umSjón innblaðS: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is dv á netinu: Dv.IS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 512 7004. umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur. Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. bókstaflega „Já, og þó miklu fleiri væru,“ segir Geir JÓn ÞÓriSSon, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu. Lögreglan opnaði á þriðjudag Facebook-síðu og á fyrsta degi eignaðist hún tæplega tvö þúsund vini. Sannkallaðir góðkunningj- ar lögregl- unnar. ræÐUr LöGrEGLAN vIÐ AÐ EIGA ALLA þESSA GóÐKUNNINGJA? spurningin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.