Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Blaðsíða 41
Borgvardt á lausu Danski framherjinn Allan Borgvardt sem lék með FH árin 2003–2005 og var tvívegis kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins er án liðs þessa dagana. Hann lék síðast með norska liðinu Sand- nes Ulf en hann gekk í raðir þess frá Bryne þaðan sem hann fór frá FH. Borgvardt er 30 ára gamall og skoraði 10 mörk í 28 leikjum með Sandnes í norsku 1. deildinni á síðustu leiktíð. Hjá FH lék hann 53 leiki í deild og bikar og skoraði 34 mörk. Heil umferð í körfunni Tíunda um- ferð Iceland Express-deildar karla í körfubolta verður leikin í heild sinni á fimmtudagskvöldið. Spútniklið Hamars sem hefur verið duglegt að stríða stóru liðunum á heimavelli tekur á móti Íslands- og bikarmeisturum Snæfells á meðan Reykjavíkurslagur KR og ÍR fer fram í DHL-höllinni. Fjölnir mætir Grindavík, Keflavík tekur á móti Tindastóli, Njarðvík fær KFÍ í heimsókn og Stjarnan fer í heimsókn til Hauka. Allir leikirnir hefjast klukkan 19.15. molar Webber var axlarbrotinn n Ástralinn Mark Webber fór illa að ráði sínu á lokasprettinum í Formúlu 1 á nýliðnu tímabili. Hann var á ein- um tímapunkti með ellefu stiga forskot á Fern- ando Alonso en glutraði því niður og kláraði heimsmeistara- keppnina í þriðja sæti. Í nýrri bók sem hann er að gefa út um tímabilið kemur fram að hann var axlarbrotinn í síðustu þremur keppnunum eftir að hafa dottið á hjóli. Fram kemur í þýskum miðlum að liðstjóri Red Bull, Christ- ian Horner, lýsi yfir miklum áhyggj- um af lygum Webbers undir lokin á tímabilinu en Horner segist margoft hafa spurt Webber hvort ekki væri allt í lagi. Ferguson skoðar brasilíumenn n Tvö nöfn hafa bæst við óska lista Manchester United en Sir Alex Ferguson er alltaf að horfa til fram- tíðar. Nú ku hann vara að skoða tvo unga Brasilíu- menn sem leika með Shakhtar í Úkraínu. Þá Dou- glas Costa de Souza og Willian Borges Da Silva. Báðir hafa gert vel með Shakhtar á tímabilinu en liðið er langefst í deildinni. Willian er 22 ára sóknarsinnaður miðjumað- ur sem hefur verið í Úkraínu í fjögur ár. Þeir munu þó ekki fara ódýrt á Old Trafford verði tilboð gert. Talið er að Ferguson og félagar geti fengið þá báða á 24–26 milljónir punda. liverpool vill strák Frá ipsWich n Breskir miðlar greina frá því að Roy Hodgson, knattspyrnustjóri Liverpool, sé að undirbúa tilboð í sautján ára strák sem leikur með Ipswich, Connor Wickham. Wick- ham hefur þó verið meiddur meira og minna allt tímabilið vegna ökkla- og hnémeiðsla. Tilboð hafa þó borist frá Chelsea og Tottenham en Roy Hodgson er tilbúinn að jafna tilboð Lundúnaklúbbanna sem var tíu milljónir punda. Daily Mail heldur því fram að til lengri tíma verði þetta góð kaup hjá Liverpool en Wick- ham mun lítið gera fyrir liðið á þessu tímabili. miðvikudagur 8. desember 2010 sport 41 Danska knattspyrnuliðið FC Kaup- mannahöfn heldur áfram að fylla á gullkistu sína en liðið komst í gær inn í sextán liða úrslit Meist- aradeildarinnar í fótbolta, fyrst danskra liða. Fyrir leikinn hafði FCK grætt um 1,7 milljarða ís- lenskra króna á þátttöku sinni í Meistaradeildinni en með 3–0 sigri á Panathinakos í gær sem gull- tryggði liðið inn í útsláttarkeppn- ina eru tekjurnar komnar vel yfir tvo milljarða króna. Landsliðsfyrir- liðinn Sölvi Geir Ottesen kom inn á sem varamaður á 77. mínútu en það var mark hans í undankeppn- inni sem kom FCK inn í Meistara- deildina. Manchester United og Totten- ham unnu bæði sína riðla. Unit- ed gerði jafntefli gegn Valencia á heimavelli, 1–1, þar sem Brasilíu- maðurinn Anderson skoraði fyrir heimamenn. Öllu meira fjör var í Hollandi þar sem Tottenham sótti Twente heim en þar enduðu leik- ar einnig með jafntefli, 3–3. Totten- ham náði því fyrsta sætinu í A-riðli en Evrópumeistarar Inter þurfa að sætta sig við annað sætið og gætu átt í vændum risaleik í sextán liða úrslitunum. tomas@dv.is Manchester United og Tottenham unnu sína riðla: FCK í 16 liða úrslit Michael Schumacher, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, var aldrei nálægt því að sýna sína bestu takta á nýliðnu keppnistímabili í Formúlu 1. Hann var aldrei í titilbaráttu og náði ekki einu sinni að safna 100 stigum í sarpinn. Í heildina urðu þau aðeins 72 á meðan liðsfélagi hans, Nico Rosberg, sem hefur aldrei unnið keppni í For- múlu 1, endaði tímabilið með 142 stig og var fimmtán sinnum fyrir framan Schumacher á ráslínu. Schumacher hefur lítið talað um tímabilið í heild sinni en í þýska bílablaðinu Auto Mot- or und Sport ræðir hann vonbrigðin loks af alvöru. Bíllinn hrákasmíð „Hvernig heldurðu að mér hafi lið- ið í ár?“ segir hinn 41 árs gamli Schu- macher í viðtalinu en hann kennir þar Mercedes-bílnum um stóra hluta slaks árangurs. „Ég reyndi alltaf að bremsa eins seint og hægt var til að fara sem hraðast í beygjurnar. En með þessi dekk á bíln- um sem við höfðum var það ekki allt- af auðvelt,“ segir Schumacher og talar enn fremur um að Mercedes-bíllinn hafi ekki alltaf látið vel að stjórn. „Bíll- inn var hrákasmíð. Vegna þess hvernig hann var byggður og dekkjanna sem hann var á var erfitt fyrir mig að keyra eins og ég vildi,“ segir Schumacher. Þjóðverjinn kennir samt engum um hversu slakur bíllinn hafi ver- ið. Árið áður hafði liðið orðið heims- meistari bílasmiða undir nafninu Brawn en sama ár þurfti að reka 240 manns. Liðið hafði því einfald- lega ekki bolmagn til að gera betri bíl. Schumacher segir enn fremur að hann hafi engar áhyggjur af næsta ári þar sem Mercedes sé búið að auka fjármagnið gífurlega og þau vanda- mál sem einkenndu bílinn verði ekki til staðar á nýju keppnistímabili. Ætlar að halda áfram Nokkrir reyndir kappar, þá sérstak- lega Eddie Jordan, Formúluspeking- ur og fyrrverandi liðseigandi, vill að Schumacher láti þessa endurkomu sér að kenningu verða og hætti. Helst vill hann sjá að Mercedes reki Schu- macher þar sem hann stóð sig alveg hörmulega og segir hann að ef um einhver annan en Schumacher hefði verið að ræða hefði sá fengið pokann sinn. „Ég mun halda áfram,“ seg- ir Schumacher í viðtalinu. Hann og landi hans, Nico Rosberg, munu keyra áfram fyrir Mercedes á næsta ári sem mun þá hafa mun meira fé að moða úr. Það hefur líka sannað sig að þegar Ross Brawn fær peninga og tíma til þess að búa til bíla verð- ur oftar en ekki eitthvað magnað til úr því. Brawn hannaði fimm af sjö heimsmeistarabílum Schumachers á gullöld hans í Formúlunni og gerði Brawn að heimsmeistara bílasmiða árið 2009 en það lið var byggt á rúst- um Honda. Sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Michael Schumacher, átti hörmu- lega endurkomu í Formúlu 1 á ný- liðnu tímabili. Hann endaði tíma- bilið í níunda sæti og vann ekki eina keppni. Í viðtali við þýskt bílablað talar hann loks opinskátt um vonbrigðin en þar skellir hann einnig hluta skuldarinnar á Merc edes-bílinn sem hann ók. Bílnum að kenna tóMAS þóR þóRðARSon blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Ekki sáttur Schumacher er alls ekki ánægður með skelfilegt gengi sitt á tímabilinu. MynD REutERS Ekki að virka sem skildi Bíllinn er hrákasmíð segir Schumi. MynD REutERS Halda áfram að græða FCK hefur grætt yfir 2 milljarða króna á þátttöku sinni í Meistaradeildinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.