Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Blaðsíða 12
Febrúar 1980 Hæstiréttur mildaði dóma undir- réttar yfir öllum sakborningum í Guð- mundar- og Geirfinnsmálinu nema dóm Erlu Bolladóttur. Þeir Sævar Ciesielski og Kristján Viðar Viðarsson voru af Hæstarétti dæmdir í 17 og 16 ára fangelsi, en í undirrétti höfðu þeir hlotið ævilangan fangelsisdóm. Dómur Hæstaréttar var kveðinn upp klukkan 16.45 í gær í dómsal Hæstaréttar að viðstöddum verjend- um sakborninga og fréttamönnum. Forsendur dómsins eru ekki tilbún- ar til birtingar en það þykir ljóst að Hæstiréttur hafi komist að þeirri nið- urstöðu að hér hafi verið um að ræða manndráp af gáleysi. Ákæra hljóðaði hins vegar upp á manndráp af ásetn- ingi og í undirrétti var dæmt sam- kvæmt því. Tryggvi Rúnar Leifsson var af Hæstarétti dæmdur í 13 ára fangelsi en hann fékk 16 ár í undirrétti. Guðjón Skarphéðinsson var dæmd- ur í 12 ára fangelsi í undirrétti en Hæstiréttur breytti því í 10 ár. Þriggja ára fangelsisdómur undirréttar yfir Erlu Bolladóttur var staðfestur en refsing Alberts Klahn Skaftasonar lækkuð úr 15 mánuðum niður í 12. Gæsluvarðhald allra kemur til frá- dráttar. ...fyrir 30 árum Miðvikudagur 8. desember 201012 Vísir árið 1980 Stuðningsmenn fögnuðu Vigdísi. Vísismynd: Þ.K. Vigdís Finnbogadóttir hefur ver- ið kjörin forseti íslands næsta kjör- tímabil. Hún hlaut samtals 33.6% greiddra atkvæða i forsetakosning- unum í gær, en skæðasti keppinaut- ur hennar, Guðlaugur Þorvaldsson, fékk 32.2% atkvæðanna. Þegar taln- ingu lauk í morgun skildu 1906 at- kvæði þau að. Aðrir frambjóðendur fengu mun minna fylgi. Júní 1980 Talning atkvæða gekk vel fyrir sig um allt land, og endanleg úrslit lágu fyrir um kl. átta í morgun. All- nokkru áður, eða síðla nætur, varð þó orðið ljóst, að Vigdís næði kjöri. Mjög mjótt var á mununum hjá Vig- dísi og Guðlaugi fram eftir nóttu, og stundum skildu innan við eitt hundrað atkvæði á milli þeirra. Þegar endanlegar tölur komu úr Reykjavík, eftir talningu utankjörfundaratkvæða þar, varð hins vegar ljóst að Vigdís færi með sigur af hólmi, og bilið breikkaði síð- an smátt og smátt. Frá þessu greindi Vísir þann 30. júní 1980. Vigdís var fyrsta konan til að gegna embætti þjóðhöfðingja í heim- inum en það gerði hún í 16 ár, eða til ársins 1996 þegar Ólafur Ragnar Grímsson tók við. Endanleg úrslit. Endanleg úrslit fyrir landið allt eru sem hér segir: Vigdís Finnbogadóttir 43.530 atkvæði, 33.6% Guðlaugur Þorvaldsson 41.624 atkvæði, 32.2% Albert Guðmundsson 25.567 atkvæði, 19.8% Pétur J. Thorsteinsson 18.124 atkvæði, 14.0% Auðir og ógildir 540 atkvæði, 0.4% Vigdís sigraði Guðlaug með 1906 atkvæða mun! Tvísýn talning atkvæða í forsetakosningunum í alla nótt: Janúar 1980 Tveir ungir menn létu lífið af völdum hnífstungna um borð í varðskipinu Tý í gær. Þriðja varð- skipsmannsins, sem áverkunum olli, er saknað og talið er að hann hafi farið í sjóinn. Komið var með lík varðskipsmannanna tveggja til Akureyrar í gærkvöldi. Rann- sóknarlögregla ríkisins, ásamt aðalfulltrúa bæjarfógetans á Ak- ureyri og lögreglumönnum, vann til klukkan þrjú í nótt að rann- sókn Týsmálsins. Þeir komu aft- ur saman klukkan níu í morgun. Lokið er við að taka skýrslur af höfuðvitnum málsins, en allir skipverjar á Tý verða yfirheyrðir. Sjóréttur verður settur hjá emb- ætti bæjarfógeta á Akureyri í dag undir forsæti Ásgeirs P. Ásgeirs- sonar aðalfulltrúa. Þessi frétt skók Íslendinga í janúarbyrjun 1980. Í henni kom líka fram að Týr var staddur um 50 sjómílur austur af Grímsey, þegar þessi atburður átti sér stað. Jón D. Guðmundsson, þriðji vél- stjóri, hafi komið að skipsfélög- um sínum þar sem þeir hafi verið að fá sér kaffi. Hann hafi grip- ið stóran eldhúshníf. Þegar einn hafi spurt hvað hann væri að leika sér með hnífinn hafi hann rekið hann á kaf í síðu eða bak hans. Jón hafi svo horfið úr eld- húsinu en mætt 18 ára gömlum skipsfélaga sínum á ganginum milli eldhúss og matsalar. Skipti engum togum; hann mun hafa rekið hnífinn í brjóst eða kvið- arhol hans svo úr varð mikið sár. Engin merki hafði Jón sýnt um að hann væri ofbeldismaður en hann er talinn hafa fleygt sér í sjóinn eftir ódæðið. Lík skipverjanna flutt í land á Akureyri. Vísismynd: G.V.A. Björn Sveinbjörnsson forseti Hæstaréttar les upp dómsorðin. ÞUNGLYNDIS HAFÐI GÆTT HJÁ ÁRÁSARMANNINUM Tveir menn stungnir til bana um borð í varðskipinu Tý: Dómur í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu: Miðstjórn Alþýðubandalagsins samþykkir tillögur í efnahagsmálum: Janúar 1980 „Þessar tillögur miða að því að tengja saman skammtíma- og langtímaaðgerðir í efnahags- málum og skiptast í tvo meg- inhluta,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, alþingismaður og for- maður framkvæmdastjórnar Al- þýðubandalagsins, þegar Vísir spurðist fyrir um þær efnahags- málatillögur, sem voru sam- þykktar á fundi miðstjórnar Al- þýðubandalagsins, mánudaginn 13. janúar 1980. „Í fyrsta lagi eru það ítarleg- ar tillögur um fyrstu aðgerðir í efnahagsmálum, sem miða að því að ná verðbólgunni niður í 25% á þessu ári. Samtímis því verð- ur sett í gang þriggja ára áætl- un, sem nær til fyrstu mánaða ársins 1983, um áframhaldandi hjöðnun verðbólgu, uppbyggingu íslenskra atvinnuvega og jöfn- un lífskjara. Fyrra markmiðinu verður náð með samblandi af niðurfærslum og millifærslum,“ sagði Ólafur Ragnar við Vísi. Verðbólgutal er Íslendingum tamt um þessar mundir þó tölurn- ar séu ekkert í líkindum við það sem þær voru fyrir 30 árum. Árið 1979 var verðbólgan á Íslandi rétt liðlega 60 prósent. Það þýðir að vörur og þjónusta hækkuðu um 60 af hundraði á einu ári. Verð- bólgan hafði ekki verið hærri frá fyrra stríði. Til samanburðar má geta þess að hæst fór verðbólgan á Íslandi í kjölfar efnahagshruns- ins í rúm 18 prósent en hún er nú komin niður í um 2,6 prósent. „MIÐAÐ VIÐ AÐ NÁ VERÐBÓLGUNNI Í 25% Á ÁRINU“ – segir Ólafur Ragnar Grímsson, formaður framkvæmdastjórnar Alþýðubandalagsins Hæstiréttur mildaði alla dómana nema yfir Erlu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.