Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 15
Skírnir
Danmörk eftir 9. apríl 1940
13
verjum var erfitt að grípa til nokkurra nýrra gagnráðstaf-
ana hennar vegna. Þvílík mótspyrna varS mjög útbreidd
á árinu 1941, og hefur svo verið sagt, að hugkvæmni Dana
í þessum efnum hafi verið aðdáanleg. Sænskur sjónarvott-
ur hefur meira að segja komizt svo að orði, að mótspyrna
Dana hafi verið skipulegar framkvæmd en mótspyrna
Norðmanna og því áhrifameiri á sína vísu.
Mönnum gramdist sumt af því, sem Stauning sagði.
Flestum kom þó saman um það, að bezt væri, að stjórnin
reyndi að sitja, til þess að geta haft nokkra hönd í bagga
með því, sem gerðist. Það var álit almennings, að minnsta
kosti sumarið 1941, að stjórnin léti ekki meira undan
síga en hún væri neydd til, til þess að geta haldið í horf-
inu og til þess að forðast samningsrof og það ástand, sem
af því mundi leiða og menn sáu fyrir sér í Noregi. Það er
auðgert eftir á fyrir þá, sem ókunnugir eru og ekki vita
hverju fram fer, að fordæma orð Staunings og framkomu
stjórnarinnar. Mér virðist, að menn eigi að láta konung-
inn og stjórnina um, að meta það, hvenær neita á að láta
undan, og einkum hvaða mál eigi að velja til þess að beina
því til dönsku þjóðarinnar: Nú segjum við nei, og nú
bíður ykkar sama ástand og er í Noregi og Hollandi.
Þegar fyrsti skelkurinn var liðinn hjá, sameinaðist
danska þjóðin um menningarbaráttuna, baráttuna fyrir
því, að verja í erfiðleikum hernámsins danska þjóðlega
menningu í öllum myndum, í andlegu lífi, stjórnarfari og
framkvæmdum. Þessi menningarbarátta var hafin á marg-
an hátt og að talsverðu leyti eftir fyrirmyndum úr menn-
ingarbaráttunni í Norður-Slésvík.
Fyrst og fremst sömdu fjórir stærstu stjórnmálaflokk-
arnir vopnahlé og stjórninni var breytt þannig, að allir
þessir fjórir flokkar áttu þar fulltrúa. Flokkarnir samein-
uðust um þann tilgang, að halda uppi þingræðinu og að
vernda eftir því, sem unnt væri, innanlandsstjórnina í
höndum Dana sjálfra.
Enn fremur sameinaðist öll þjóðin í þjóðlegri vakn-
ingu, sem reis einhuga gegn tilraunum í þá átt, að lauma