Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 184
182
Geir Gígja
Skírnir
um, eða vökva með sublimatvatni. En 1 gramm sublimat
leyst upp í 1 lítra af vatni nægir til þess að vökva 10
plöntur. Ekki má vökva plöntuna sjálfa, en aðeins moldina
umhverfis. Vökvunina ber að framkvæma 2—3 dögum
eftir gróðursetningu og svo að viku liðinni. Sublimat er
eitrað, og verður því að fara varlega með það. Ekki má
það vera í málmílátum, heldur steinkrukkum eða tré-
ílátum. Naftalín og sublimat fæst í lyfjabúðum.
Blaðlýs, kögurvængjur o. fl. smá skordýr skemma plönt-
ur bæði úti og inni. Þessi dýr þrífast bezt í þurru lofti, og
er því gott að úða plönturnar oft með vatni. Sápuvatn,
steinolíublanda o. fl. lúseyðandi lyf eru einnig notuð.
2. 1 trjáviði.
Veggjatítlan er merkilegt skordýr. Hún er dökkbrún að
lit, 3—4 mm. á lengd, hærð og gljáandi. Hér á landi hefur
hún verið að minnsta kosti síðan skömmu eftir síðustu
aldamót (1905), en sennilega hefir hún þó borizt hingað
löngu fyrr, því að gamalt fólk mun hafa heyrt í dýri þessu,
eins og síðar mun sagt verða. Hér á landi (í Reykjavík)
hefir bjalla þessi valdið tjóni, þó ekki í stórum stíl nema
á einu húsið árið 1941, en það tjón var talið nema tug-
þúsundum króna. Þegar viðgerð á húsi þessu fór fram,
voru máttarviðir hússins svo spilltir, að byggingarfróð-
um mönnum kom saman um, að þak hússins mundi hafa
hrunið, ef það hefði verið látið standa miklu lengur án
viðgerðar. í nágrannalöndum vorum er það ekki svo sjald-
gæft, að hús séu skemmd af „ormi“, sem kallað er, þ. e.
litlum sexfættum, ljósleitum lirfum, sem lifa inni í trénu
og breyta því smátt og smátt í duft. Þessar lirfur verða
svo að bjöllum — veggjatítlum, sem eiga egg, svo að nýjar
lirfur koma í heiminn, sem halda áfram skemmdarstarfi
foreldranna. í apríl—maí fer æxlunin venjulega fram.
Þá má tíðum heyra ótt og títt bankhljóð, líkast tifi í úri,
en þó nokkuð mishátt og missterkt, og er erfitt að átta
sig á, hvaðan hljóðið kemur. Einkum verður vart við þetta
á kvöldin eða nóttunni, þegar annars er hljótt. Hér á landi