Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 204
!202
Guðm. Finnbogason
Skírnir
að hver keppist við aðra um það að verða fyrri til að veita
en þiggja? Veitir hver öðrum slíkt sem hönd hendi eða
fótur fæti? Viðurkennum vér það í framkvæmd, að vér
.séum hver annars limir?
Þessu getið þið svarað sjálf.
Ég vil aðeins segja þetta: Bezta ráðið til þess að byggja
upp nýjan og betri heim er að glæða þá vitund hjá hverj-
um manni frá blautu barnsbeini, að hver maður verður
því sælli, sem honum auðnast að veita öðrum meira. Hver
gefur meira en góð móðir börnum sínum og hver gerir
það með glaðara geði? En þér munuð segja, að það sé
ekkert undarlegt, því að móðirin elski börn sín og það sé
einkenni sannrar ástar, að hún er fórnfús. Það er rétt.
En lítum nú á hina hliðina. Aristóteles, gríski spekingur-
inn mikli, benti á það fyrir löngu, að sá, sem gerir öðrum
gott, fær að jafnaði meiri ást á þeim, sem hann gerir gott,
heldur en hinn á velgjörðamanni sínum. Og vitrir menn
hafa oft leikið það bragð, að fá nízkan mann til að leggja
eitthvað fram til einhvers góðs málefnis. Þegar það tókst,
fékk hann áhuga á því, fór að vinna fyrir það, og því
meira sem hann lagði í sölurnar, því hjartfólgnara varð
honum málefnið. Þetta sannar, að fórn skapar ást á því,
sem fórnað er fyrir. Ástin er fórnfús og fórn skapar ást.
En menn fá ekki aðeins ást á sérstökum persónum eða
hlutum, sem þeir af einhverjum ástæðum verða að fórna
einhverju fyrir. Menn fá líka ást á þjóð sinni þegar sú
stund kemur, að þeir verða að fórna henni öllu.
Föðurlandsástin hefur eflaust aldrei verið meiri en í
þeim löndum, sem nú hafa orðið að færa þyngstar fórnir
í baráttunni fyrir sjálfstæði sínu. En mest er um það
vert, að menn geta líka fengið ást á hugsjónum, svo sem
sannleik og réttlæti, sem verða að vera leiðarljósin, ef
vel á að fara, hvort sem á að skipa málum einstakrar
þjóðar eða samfélagi þjóðanna. Og aðferðin verður enn
hin sama: að reyna að venja menn á það frá barnæsku
að segja satt og gera það, sem þeir telja rétt, hvað sem
það kostar. Áhrifamest í þeim efnum verða fordæmi göf-