Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 125
Skírnii' Guðmundur góði í þjóðtrú íslendinga 123
hamri í Hegranesi. Þá er uppsprettulind í Miklabæ í
Blönduhlíð, sem Gvendarbrunnur heitir, og sömuleiðis í
túninu á Stóru-Ökrum.50) Á Hólum í Hjaltadal er Guð-
mundarlind eða Gvendarbrunnur.51) Þá er Gvendarbrunn-
ur í landi Stóru-Reykja í Haganeshreppi og loks er lækur
hjá Hrólfsvöllum fyrir utan Hraun í Fljótum, sem nefnd-
ur er Gvendarbrunnur.50)
í Eyjafirði er Gvendarbrunnur, lind sunnan við túnið
á Ósi í Hörgárdal, og annar í túninu á Bakka í Öxnadal.50)
í Grímsey heitir á einum stað í björgunum Gvendar-
brunnasig. Þar er nú enginn brunnur, heldur aðeins lítil-
fjörleg vætuóvera. Hins vegar er brunnur við Neðri-Sand-
víkurbjarg, sem Gvendarbrunnur er nefndur. Segir síra
Pétur Guðmundsson um hann, að hann sé ómerkileg veita,
full af leir. Þriðji brunnurinn er í eynni, sem munnmæli
segja, að Guðmundur biskup hafi vígt, en ber ekki nafn
hans, heldur heitir hann Brynhildur.52)
í Þingeyjarsýslu er Gvendarbrunnur í Höfða í Höfða-
hverfi.53) í Fnjóskadal er Gvendarbrunnur á Illugastöð-
um51) og annar á Draflastöðum.50) Þá er og Gvendar-
brunnur í Flatey á Skjálfanda.55) í Aðaldal er Gvendar-
brunnur í Múla og annar á Syðra-Fjalli og eru báðir vatns-
ból á bæjunum.58) Gvendarlækur er í landi Skóga í
Reykjahverfi.57) Ennfremur er Gvendarbrunnur hjá Holu-
bjargi í Kelduhverfi, uppspretta í dálítilli klettasprungu.
Er sagt að Guðmundur biskup hafi um tíma legið í tjaldi
þar í grenndinni og vígt þá lindina. Áður var steinn rétt
hjá lindinni, sem nú hefir verið sprengdur í burtu vegna
vegagerðar. Var hann ferhyrndur og rennisléttur að ofan,
nema hvað lítil ferhyrnd hola var ofan í hann. Var sagt,
að steinn þessi hefði verið skrifborð biskupsins og að hann
hefði haft blekbyttu sína í ferhyrndu holunni.58) Olavius
getur um litla lind, er heiti Gvendarbrunnur, á Skálda-
búðabjargi fyrir utan Skála á Langanesi.50)
Af Austurlandi og Suðurlandsundirlendinu hefi ég litl-
ar sagnir haft um þetta efni. Gvendarbrunnur heitir lind
á heiðinni milli Arnarvatns (Skálamós) og Vesturárdals