Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 67
Skírnir
Brezka þjóðasamfélag'ið
65
greiddi laun herliðsins og hafði yfirstjórnina. Nú bar
það oft við, að nýlendumönnum líkaði ekki, hvernig her-
stjórnin fór úr hendi, og töldu, að ráðstafnir hinna fjar-
lægu stjórnarvalda heima í Englandi væru oft of sein-
virkar og byggðust stundum á ókunnugleika, og þyrfti því
herstjórnin að vera í nýlendunni sjálfri. Þegar nýlenda
fékk sjálfstjórn, tók hún því jafnframt að sér hervörzl-
una, a. m. k. gegn innlendum óvinum, og setuliðið frá
móðurlandinu var kvatt burt. Þetta eitt gat og samrýmzt
heilbrigðum metnaði og skyldum sjálfráða þjóðfélags.
Hvert samveldislandanna hefur því um langan aldur
haft sinn eigin herafla undir herstjórn síns eigin lands, en
ekki undir yfirstjórn Stóra-Bretlands. Herafli tekur hér
til allra tegundanna, landhers, flota og flughers. Fyrsta
hlutverk þessa herafla eru varnir síns eigin heimalands.
Heimsveldið hefur því á friðartímum engan sameinaðan
herafla til verndar sér sjálfu. En herafli Stóra-Bretlands
er dreifður og hefur bækistöðvar um víða veröld þangað
sem yfirráð Breta ná, og þessar herstöðvar eru ekki að
eins settar þeim stað til verndar, sem þær eru, heldur
mynda þær liði í varnarkerfi heimsveldisins. Eitt af höf-
uðviðfangsefnum samveldis ráðstefnanna er, hvernig á
að samræma og fella í eina heild varnir heimsveldisins á
stríðstímum, þannig að sérvarnir samveldislandanna komi
öllu heimsveldinu að sem beztum notum. Varnir heims-
veldisins sem heildar verða að grundvallast á yfirráðum
á höfunum, og sama gildir um varnir samveldislandanna
sjálfra út af fyrir sig. Samveldisþjóðirnar hafa því hver
um sig komið sér upp eigin flota, og ennfremur hafa þær
átt hlut í að koma upp og viðhalda flotastöðvum og síðar
flugvöllum á fjölmörgum hernaðarlega mikilvægum stöð-
um, sem væru til afnota fyrir samveldisþjóðirnar á styrj-
aldartímum. Það er óþarfi að fjölyrða um hvernig sam-
vinnan hefur tekizt milli Stóra-Bretlands og samveldis-
landanna í fyrri heimsstyrjöld og þeirri, er nú stendur
yfir. Það er öllum kunnugt, að hermenn frá öllum sam-
veldislöndunum, nema Eire, hafa barizt hlið við hlið á
5