Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 25
Skírnir
Danmörk eftir 9. apríl 1940
23
flokkaskiptingunni og efnalegum og persónulegum sér-
réttindum á kostnað réttar almennings til frjálsrar þró-
unar í efnahags- og menningarlífi. Breyting á stjórnar-
skipulagi okkar hefur aldrei í sögu okkar verið meiri lífs-
nauðsyn en nú“.
Ef menn vilja kynnast því, í hvers konar hillingum
Þjóðverjar sjálfir sjá hið nýja skipulag, geta menn séð
það nokkuð á erindi, sem dr. Karl Megerle, stjórnmála-
ritstjóri við „Berliner Börsen-Zeitung“, hélt í dansk-þýzka
félaginu í Kaupmannahöfn. Erindið var um „ábyrgð blað-
anna“, og eru hér nokkur sérkennileg ummæli úr því:
Dr. Megerle viðurkennir, að komið geti það fyrir, að
frelsi blaðanna geti verið „tiltölulega óskaðlegt“. En þeg-
ar einstök þjóð eða allt mannkynið lendir í kreppu, þar
sem teflt getur verið um líf eða dauða, þá verður að ræða
spurninguna um blaðafrelsi á allt öðrum grundvelli. Og
úr því að örlögin hafa einnig teygt arm sinn yfir Danmörk
og dregið hana inn í hringiðu heimsstjórnmálanna, hafa
dönsku blöðin af frjálsum vilja lagt á sig hömlur og tekið
á sig annarskonar ábyrgð en þau hafa áður þekkt.
„Við höfum fylgzt með dönsku blöðunum bæði fyrir og
eftir 9. apríl 1940“, sagði dr. Megerle. „Fyrir 9. apríl voru
þau svipuð og blöðin í sumum öðrum hlutlausum löndum.
Afstaða þeirra fór eftir samúð þeirra eða andúð við ófrið-
araðilann og verður ekki sagt, að þau hafi verið sérlega
hliðholl Þjóðverjum. Það var að því leyti skiljanlegt, að
Danmörk var í andlegum málum, viðskifta- og stjórnmál-
um innlimuð í Evrópukerfi, sem var mótað af friðarsamn-
ingunum og Þjóðabandalaginu. Þar virtist hið nýja
Þýzkaland raska rónni. Upp úr 9. apríl varð öðruvísi
ástatt fyrir dönsku blöðunum. Þau urðu að draga álykt-
anir af staðreyndunum. Við skiljum vel, að það hafi ekki
verið auðvelt. Samt sem áður munu danskir félagar mínir
vera mér sammála um það, að það se sameiginlegt hlut-
verk okkar að sigrást á höftum, sem hlutleysið hefur í
för með sér. Okkur Þjóðverjum eru ljósir þeir hugarfars-:
erfiðleikar, sem þeir þurfa að sigrast á, sem vilja koma