Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 87
Skírnir
Einstaklingseðlið og vísindin
85
niðurgrafna skjólu, tekur hann hann upp aftur og slær
hann til annarrar jafnstórrar skjólu. Vísindin eru íþrótt
jafnt og „golf“ fyrir þá, sem þau iðka, og það er von um
einhver mannleg verðmæti að leikslokum.
Vísindamenn og almenningur hafa sameiginlegra hags-
muna að gæta um það að styðja velgengni mannkynsins
með eflingu vísindanna og geta átt sameiginlega hlutdeild
í því. Eg held, að Ameríska félagið til eflingar vísindanna
sé einkar vel lagað til að vinna að þessum sameiginlegu
hagsmunum og gæti með góðum árangri tekið upp rann-
sókn í því skyni að semja hagkvæmari stefnuskrá í þjón-
ustu sameiginlegra hagsmuna lærðra og leikra.
f Bandaríkjunum fremur en alstaðar annarstaðar hafa
velgerðamenn lista, bókmennta og vísinda lagt fram fé
mönnunum til heilla. Heillaarðurinn hefir verið mjög mis-
jafn, en stundum lítill, vegna þess, að fénu hefir ekki ver-
ið varið til þess, sem helzt skyldi. Vér treystum því, að
þeir mannvinir, sem vilja styðja að mannlegri velgengni
með vísindalegum aðferðum, láti íhuga gjafabréf sín jafn
vandlega og ef þeir legðu fé í fyrirtæki í fjárgróðaskyni,
til þess að tryggja það, að gjöfin beri sem mestan vísinda-
legan arð. Hinn nýlega stofnaði Vísindasjóður þjóðarinn-
ar gæti verið miðstöð til að leiðbeina um það, hvaða vís-
indalegum arði mætti búast við af því fé, sem lagt væri
fram til vísinda.
Þó að vér, hver fyrir sig, lifum í ólíkum og meira eða
minna aðgreindum heimum, þá treysti eg því, að oss tak-
ist að lokum að fá eins góða mannfélagsskipun og stjörnu-
hverfi annarra heima. Eg örvænti ekki í baráttu vorri fyr-
ir einstaklingseðli og frelsi í þessu stríði og friðinum, sem
á eftir kemur. Tilraunaaðferðin hefir sannað, að vér verð-
um að beita afli og draga ekki af oss, til þess að sýna, að
frjálsræði og siðgæði í stjórnmálum og heiðarleiki í einka-
málum svara sannlega kostnaði. Vér höfum enn þá trú, að
frjáls leit að sannleikanum með aðferðum vísindanna hafi
mátt til að endurreisa heiminn og bera hærra hlut.
G. F. þýddi.