Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 24
22
Fr. le Sage de Fontenay
Skírnir
Zeit“, og sírýnandi til þess að leita leiðbeininga um fram-
kvæmd þessa nýja skipulags, sem á að færa Evrópu þau
firn af friði, góðum lífskjörum og sönnu sjálfstæði, sem
hún hefur ekki haft hugboð um áður. Það er einfaldast að
lofa þeim sjálfum að tala máli sínu, sem berjast fyrir
þessu nýja skipulagi. Danski nazistaleiðtoginn Fritz
Clausen birti núna í janúar ávarp til dönsku þjóðarinnar
í blaði sínu „Fædrelandet". Ávarpið hljóðaði þannig:
„Á nýja árinu berast okkur og öllum þeim öflum, sem
ekki afneita hinni nýju öld, stærri og alvarlegri úrlausn-
arefni en áður. Stjórnmálaástand lands okkar hlýtur að
vera alvarlegt umhugsunarefni allra sannra danskra föð-
urlandsvina, þrátt fyrir allar sefandi áramótaræður
stjórnmálamanna og talsmanna hins danska lýðræðis“.
Fritz Clausen fullyrðir, að lýðræðisskipulag Danmerkur
sé þess á engan hátt megnugt að ráða fram úr atvinnu-
leysinu, og segir síðan enn fremur:
„Allar áramótayfirlýsingar talsmanna og fylgismanna
þess skipulags, sem við búum nú við, bera það með sér, að
hin víðtæka bylting heimsviðburðanna hefur farið alger-
lega fyrir ofan garð og neðan hjá þessum flokkum, og þeir
álíta, að þeim geti þrotlaust haldizt það uppi að beita eig-
inhagsmunastefnu sinni.
Þeir, sem nú fara með völdin, reyna því að villa þjóð-
inni sýn um kröfur tímans í þeirri fánýtu von, að þeir
geti haldið áfram sinni úreltu stefnu jafnvel eftir að slot-
að hefur óveðrinu, sem nú gengur yfir Evrópu.
Orð þessara manna hafa nú lýst því betur en nokkru
sinni fyrr, hversu gerólík er hin opinbera utanríkisstefna
og úrskurðir stjórnarinnar og hin raunverulega stjórn-
málasannfæring hennar.
Við danskir nazistar höfum ástæðu til þess að líta með
kvíðboga á framtíð okkar þúsund ára gamla ríkis. Öllum
verður að vera það ljóst, að örlög þjóðarinnar eru komin
undir stefnu dönsku stjórnarinnar.
Lýðræðisstefnan hefur stritazt við að varðveita hrör-
legt og óstarfhæft stjórnarkerfi, með því að halda uppi