Iðjuþjálfinn - 01.12.2001, Page 5
Breytingar og framfarir
- pistill frá formanni -
Kristín Sigursveinsdóttir,
FORMAÐUR IÐJUÞJÁLFAFÉLAGS
ÍSLANDS
Heimurinn er sífellt að breytast. Sam-
skipti manna og þjóða taka breyting-
um og oft eru þcssar breytingar
skyndilegar og óvæntar. Margir taka
svo djiipt í árinni að segja að atburðir
í heimsmálum síðustu vikur og mánuði
hafi fært okkur nýja heimsmynd. Flest-
ir eru sammála um að breytingin sé
ekki til batnaðar. Ekki er meiningin að
fjalla meira um þessi mál hér en þetta
dæmi er nefnt vegna þess að það er
mjög nærtækt dæmi um að breytingar
eru ekki alltaf í framfaraátt.
Iðjuþjálfar eru sérfræðingar í því
hvernig við tökumst á við breyt-
ingar í lífinu. Breytingar sem valda
röskun á daglegri iðju. Við erum yfir-
leitt jákvæð fyrir breytingum og vitum
að í þeim býr kraftur sem getur fært
okkur jákvæða lífsreynslu ef við náum
að vinna úr þeim á réttan hátt. Við
vitum líka að einstaklingur og sam-
félag þróast í gagnkvæmu samspili.
Ofangreind atriði komu upp í hug-
ann þegar ég settist niður til að rita
þennan pistil því málefni iðjuþjálfa á
Landspítala - háskólasjúkrahúsi hafa
verið töluvert til umfjöllunar í stjórn
Iðjuþjálfafélags íslands að undanförnu.
Spítalinn er eins og alþjóð veit í miklu
breytingaferli. Sjúkrahúsin í Reykjavík
eru að sameinast í eina stofnun. Stórar
ákvarðanir hafa verið teknar og enn
eru ýmis framtíðarmál í vinnslu, svo
sem húsnæðismál. Nýtt skipurit felur í
sér umtalsverðar breytingar fyrir iðju-
þjálfun og iðjuþjálfa á spítalanum.
Reynslan verður að leiða í ljós hvort
þær breytingar verði fagi og stétt til
góðs. Framkvæmd breytinganna hefur
hins vegar verið með þeim hætti hing-
að til að ástæða er til að vera á varð-
bergi í framtíðinni og jafnvel efast um
réttmæti sumra þeirra ákvarðana sem
nú þegar hafa verið teknar. Nýjar
stjórnendastöður, m.a. á Endurhæfing-
arsviði, hafa ekki verið auglýstar held-
ur handvalið í þær. Þessi aðferð býður
heim alls kyns leiðindum og efasemd-
um um heilindi þeirra sem að ákvörð-
unum koma. Oftar en ekki eru það þá
persónuleg tengsl sem ráða úrslitum en
ekki fagleg og málefnaleg rök. Gamlar
hefðir fyrir því hverjir ráða í kerfinu
virðast líka ótrúlega lífsseigar. Slíkt er
ótækt og ekki sæmandi Landspítala -
háskólasjúkrahúsi.
Landspítali - háskólasjúkrahús er
stór og mikilvæg stofnun fyrir heil-
brigðiskerfið, fyrir þegna landsins og
fyrir flestar heilbrigðisstéttir. Eins og
nafnið gefur til kynna gegnir spítalinn
einnig mikilsverðu hlutverki sem að-
setur menntunar og rannsókna. Iðju-
þjálfun er ung fræðigrein og í mikilli
mótun. Iðjuþjálfum fjölgar hratt á
Islandi um þessar mundir og með
fjölguninni og aukinni menntun
iðjuþjálfa ættu að skapast forsendur til
að setja kraft í rannsóknar- og
fræðastarf. Við iðjuþjálfar hljótum að
gera þá kröfu til Landspítala -
háskólasjúkrahúss sem langstærsta
spítala landsins að hann stuðli að
framgangi og framþróun iðjuþjálfunar
eins og annarra fræðigreina á heil-
brigðissviði. Spítalinn hefur notið
starfskrafta iðjuþjálfa í meira en
aldarfjórðung og því ætti að vera fyrir
hendi næg þekking á störfum okkar. Sé
raunin önnur þarf að bregðast við og
þá er eðlilegt að spítalinn hafi metnað
og frumkvæði í því máli ekki síður en
iðjuþjálfar. Svo virðist sem mjög sé á
reiki hvort einhver innan spítalans
hefur það á sinni könnu að vinna að
samræmingu á þjónustu og þróun
iðjuþjálfunar innan spítalans. Eðlilegt
og sjálfsagt verður að teljast að úr
þessu verði bætt og að einn eða fleiri
iðjuþjálfar hafi þetta hlutverk með
höndum.
Iðjuþjálfun er ung fræðigrein og
í mikilli mótun.
í tengslum við stöðuna á Landspítala -
háskólasjúkrahúsi þurfum við iðju-
þjálfar að nota þekkingu okkar á breyt-
ingum til að snúa þróuninni yfir í
jákvæða reynslu í þágu fagsins og
stéttarinnar. Framtíð og þróun fagsins
á Landspítala - háskólasjúkrahúsi varð-
ar alla iðjuþjálfa og að sjálfsögðu alla
þá sem þurfa á þjónustu spítalans að
halda. Iðjuþjálfafélag íslands mun
fylgjast með þróun mála á Landspítala
- háskólasjúkrahúsi og vinna að því í
samvinnu við aðra innan spítalans og
utan að iðjuþjálfun fái þar verðugan
sess sem fag- og fræðigrein.
Kristín Sigursveinsdóttir
Tílirtalcl ir aðilar liafa stijrfl úlqótu |x3ssa
lölublaSs lc'ju| jálfans oq eru |jeim fœráar
beslu [aalskir.
Björgvin Jónsson tannlœknir
Síðumúla 25
108 Reykjavík
Bókabúð Jónasar
Hafnarstrceti 108
600 Akureyri
Dagvist og endurhœfingar-
miðstöð MS félagsins
Sléttuvegi 5
108 Reykjavík
IÐJUÞJÁLFINN 1/2001 5