Morgunblaðið - 11.08.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.08.2001, Blaðsíða 1
180. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 11. ÁGÚST 2001 SVASÍLENSKIR öldungar og al- menningur í þjóðbúningum koma til þjóðfundar sem haldinn var á land- areign konungsfjölskyldu landsins utan við höfuðborgina Mbabane í gær. Konungur Svasílands, Mswati III, boðaði alla þegna sína, um eina milljón manna, til þjóðfundarins til að kynna drög að nýrri stjórn- arskrá. Aðsóknin var þó ekki eins góð og konungurinn hafði vonast til því aðeins um tíu þúsund manns mættu. Verkalýðsfélög höfðu hvatt landsmenn til að sniðganga fundinn en þau hafa barist fyrir lýðræð- isumbótum. Tillögur nefndar um endurskoðun stjórnarskrárinnar gera þvert á móti ráð fyrir að völd konungsins verði aukin. Svasíland er sjálfsstjórnarhérað í S-Afríku. Bretar veittu landinu sjálfstæði 1968 og gáfu því lýðræð- islega stjórnarskrá sem kvað á um þingbundna konungsstjórn. Árið 1973 afnam Sobuza konungur, faðir Mswatis, stjórnarskrána, bannaði stjórnmálaflokka og skipaði nýtt þing, hliðhollt konungsvaldinu. AP Þjóð- fundur Ludzidzi. AP. ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær að Ísraelar hefðu tekið svonefnt Austurland- ahús, óopinberar höfuðstöðvar Frelsissamtaka Palestínu (PLO), á sitt vald til frambúðar. Ísraelskir lögreglumenn lögðu undir sig húsið, sem er í Vestur-Jerúsalem, í kjölfar sprengjutilræðis palestínsks tilræð- ismanns er varð 16 manns að bana í borginni í fyrradag. Bandaríkjastjórn fordæmdi í gær töku hússins og sagði hana „alvar- lega, pólitíska stigmögnun“ átaka Ísraela við Palestínumenn. Hvatti bandaríska utanríkisráðuneytið báða deiluaðila til að forðast „und- irróður og ögranir“ og nefndi sér- staklega hefndaraðgerðir Ísraela vegna tilræðisins í fyrradag. CNN greindi frá því í gærkvöldi að Colin Powell, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, hefði rætt við Sharon í síma og mótmælt töku Austurlanda- hússins. „Valdhroki“ Hústakan var og fordæmd harð- lega af leiðtogum Egypta og Jórd- ana og einnig af Frökkum sem sögðu hana brot á Óslóarsamkomu- laginu. Palestínumenn sögðu í yf- irlýsingu að taka hússins, og það að palestínski fáninn, sem blakti yfir því, skyldi tekinn niður, væri „ein- hver fyrirlitlegasta birtingarmynd valdhroka og hernaðarmáttar her- setuliðsins.“ Austurlandahúsið hefur verið helsta tákn kröfu Palestínumanna um yfirráð í Vestur-Jerúsalem, eftir friðarráðstefnu sem haldin var í Madríd 1991 og greiddi götuna fyrir Óslóarsamkomulagið tveim árum síðar og stofnun takmarkaðrar sjálfsstjórnar Palestínumanna á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu. Í gær blakti ísraelski fáninn um hríð yfir húsinu. Ísraelska ríkissjón- varpið hafði eftir heimildamönnum að Sharon hefði lýst ofangreindri afstöðu sinni í samtali við ónafn- greindan stjórnmálamann. Annar háttsettur ísraelskur embættismað- ur tjáði AFP að Austurlandahúsið yrði undir ísraelskri stjórn „uns gefin verða fyrirmæli um annað.“ Ísraelar taka höf- uðstöðvar PLO Jerúsalem, Gazaborg. AFP. Colin Powell gagnrýnir Sharon fyrir hefndaraðgerðir BRESKA stjórnin svipti heima- stjórn N-Írlands völdum í gær til að veita n-írskum stjórnmálamönnum sex vikna svigrúm til samninga um stjórnarmyndun. Viðræður hafa hingað til strandað á afvopnun hryðjuverkahópa á Írlandi, sér- staklega írska lýðveldishersins (IRA). „Þegar við höfum náð þetta langt [í friðarviðræðunum] tel ég að flest- ir hljóti að vera sammála báðum ríkisstjórnum um að rétt sé að veita stjórnarflokkunum meira svigrúm til að komast að samkomulagi,“ sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Er John Reid, N-Írlandsmála- ráðherra bresku ríkisstjórnarinnar, tilkynnti ákvörðunina í gær sagði hann jafnframt að aðgerðin væri tæknilegs eðlis. Taldi hann allt eins líklegt að stjórnin fengi völdin að nýju fyrir helgarlok. Talið er að ákvörðunin muni hafa þau áhrif að reiðir leiðtogar stjórnarflokka n- írsku stjórnarinnar fái tíma til að róast. Lögbundinn frestur til að kjósa nýjan forsætisráðherra og varaforsætisráðherra n-írsku heimastjórnarinnar rann út í gær en David Trimble, leiðtogi stærsta flokks sambandssinna, sagði af sér forsætisráðherraembætti 1. júlí sl. Það gerði hann í mótmælaskyni við að IRA skyldi ekki standa við loforð um að hefja afvopnun. Samið um afvopnunarleið Í vikunni komust afvopnunareft- irlitsmenn og IRA að samkomulagi um leynilega leið til afvopnunar en ekki um hvenær afvopnun hefjist. Leiðtogar sambandssinna krefjast þess að IRA hefji afvopnun þegar í stað því að öðrum kosti kasti þeir stjórnarsamstarfinu fyrir róða. Þetta er í annað skipti á tuttugu mánaða stjórnartíð heimastjórnar N-Írlands sem breska stjórnin sviptir hana völdum. Í bæði skiptin hefur það verið gert til að liðka fyr- ir lausn deilunnar um afvopnun IRA í samræmi við ákvæði friðar- samkomulagsins er gert var 1998 og er kennt við föstudaginn langa. Heima- stjórnin leyst upp Belafast. AP. Norður-Írland NIÐURSTÖÐUR umfangsmikill- ar, bandarískrar rannsóknar sýna að lítilvægar breytingar á lífsmáta, svo sem minni fituneysla, tveggja og hálfrar klukkustundar líkams- rækt á viku og að léttast hóflega, fækki sykursýkitilfellum um helm- ing meðal þeirra sem eiga mest á hættu að fá sjúkdóminn. Greint er frá þessu í International Herald Tribune í gær. Rannsóknin beindist að fullorð- inssykursýki, sem er langalgeng- asta gerð sjúkdómsins. Í frétt Tribune kemur fram, að líkams- rækt og mataræði hafi reynst svo áhrifamiklir þættir, að vísinda- mennirnir, sem unnu að rannsókn- inni, hafi birt niðurstöður sínar ári fyrr en áætlað hafði verið og boðað til blaðamannafundar til að greina frá þeim. Þátttakendur í rannsókninni voru um 3.300 talsins. Þetta er um- fangsmesta tilraun sem gerð hefur verið í Bandaríkjunum þar sem lík- amsrækt og breytt mataræði er notað til að koma í veg fyrir syk- ursýki, og fyrsta rannsóknin sem mikill fjöldi fólks úr minnihluta- hópum tekur þátt í. Blökkumenn, fólk af rómönskum og asískum uppruna og amerískir frumbyggj- ar eiga frekar á hættu að fá sjúk- dóminn en hvítir sem ekki eru af rómönsku bergi brotnir. Ný rannsókn á forvörnum gegn sykursýki vekur vonir Breyttur lífsmáti get- ur dregið úr hættunni ALGER ringulreið skapaðist í mið-borg Óslóar um sexleytið síðdegis í gær þegar himnarnir opnuðust og hagl og regn steyptist niður. Á fréttavef blaðsins Verdens Gang sagði að jólastemmning hefði skap- ast um stund þegar götur urðu al- hvítar í haglhríð og hefðu kornin verið svo stór að sárt hefði verið að verða fyrir þeim. Í kjölfarið fylgdi þrumuveður og rigning sem olli slíkum vatnsflaum að „allt stöðvaðist í borginni“, að því er haft var eftir Hilde Walsø, far- arstjóra. Mörgum götum var lokað, spor- og strætisvagnar stöðvuðust og holræsakerfið yfirfylltist. Veð- urofsinn stóð í tæpa klukkustund, en engar fregnir bárust af skemmdum eða meiðslum á fólki. Veðurfræð- ingar segja úrhellið ekki hafa komið alveg á óvart, en þeir hafi þó ekki getað sagt nákvæmlega fyrir um hvenær búast hafi mátt við því. Sannkallað skýfall í Ósló
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.