Skírnir - 17.06.1911, Blaðsíða 89
Jón Sigurðsson sem stjórnmálamaðnr1.
Eftir Klemens Jónsson landritara.
Hin mikla stjórnarbylting var um garð gengin. Heilla-
stjarna Napóleons var hnigin að fullu og öllu, því Water-
loo-dagurinn var liðinn og nú sátu þjóðhöfðingjarnir í
Yínarborg og réðu ráðum sínum, að fyrirbyggja allar
stjórnarfireytingar og byltingar eftirleiðis, svo að þeir
gætu setið í náðum á veldisstóli sínum og stjórnað þegn-
unum sem landsfeður, er einir vissu hvað þeim var fyrir
beztu. Arangur ráðstefnunnar var stofnun »hins heilaga
sambands«, sem í orði kveðnu hafði frið, bróðurást og
réttlæti að orðtaki sínu, en í raun og veru varð til þess
að styrkja einveldi þjóðhöfðingjanna og brjóta á bak aftur
sérhverja frelsishreyfingu og sjálfstæðismeðvitund lýðsins.
Tíminn til að stofna slíkt félag var einkar vel valinn;
þjóðirnar þurftu frið til að rækta löndin, og ala upp börn-
in, því miðaldra menn voru þá vart til á Frakklandi og í
þeim löndum, sem styrjöldin hafði aðallega í verið; frið-
inum var því alment fagnað, en svo er sjálfstæðistilfinn-
ingin rík, svo sterk er frelsisþráin, að varla var þeim
‘) Eftir miðjan apríl þ. á. sneri ritstjóri Skirnis sér til mín með
tilmæli um að rita um Jón Sig. sem stjórnmálamann, af því honum hafði
þá al'veg nýlega hrugðist ritgerð þess efnis frá öðrum manni. Af þvi
eg þóttist, efni þessu nokkuð kunnur, þá dróst eg á það, þó stuttur
væri tími, því ritið átti að koma nt fyrir 17. júni. Þetta vil eg hiðja
lesendur að athuga, að ritgerð þessi er samin á 6 vikna tíma, svo að
segja á hlaupum og í minum fáu aukastundum, á mesta annatima mínum
undir og eftir þinglausnir. En til þess að semja slíka ritgerð sem þessa,.
svo vel fari, þarf miklu lengri tíma.