Þjóðviljinn - 08.03.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 08.03.1977, Blaðsíða 1
ÞJOÐVHMN Þriðjudagur 8. mars 1977—42. árg. — 55. tbl. | Miðstjórn Alþýðubandalagsins: Fullur stuðningur við kjarakröfur Á tveggja daga fundi miðstjórnar Alþýðu- bandalagsins, sem haldinn var nú um helgina , var einróma samþykkt sú ályktun um kjaramál verkafólks, sem hér birtist og er á þessa leið: „Miöstjórnarfundur Alþýöu-: bandalagsins haldinn 5.-6. mars- 1977 tekur eindregiö undir þá afstööu verkalýössamtakanna aö núverandi rtkisstjórn beri alla ábyrgö á þeirri 25-40% kaupmáttarskeröingu vinnulauna verkafólks sem oröiö hefur sl. þrjú ár. Efnahagsstefna Ihalds- stjórnarinnarhefur gertlsland aö mesta láglaunasvæöi N-Evrópu og leitt til óþolandi vinnuþrælk- unar verkafólks i landinu. Reynslan sýnir aö árangur kjara- baráttu verkalýösfélaganna veröur aldrei tryggöur þegar rikisstjórnir atvinnurekenda og eignastéttar sitja viö völd. Þvi KRAFLA: Voru ekki látnirkoma til vinnu að loknu helg- atjríinu Um 100 manns sem áttu aö koma til vinnu i Kröflu aö loknu helgarfrii i gær var ekki hleypt inn á svæöiö vegna hættu- ástandsins, sem nú er þar. Guöjón Petersen hjá Almanna- vörnum sagöi i viötali viö blaöiö i gær aö nú væru viö vinnu 72 menn á svæöinu og ekki væri ætlunin amk. aö svo stöddu aö flytja þá burtu. Hann sagöi einnig aö ekki heföi enn veriö ákveðiö hvenær hinir 100 yröu látnir mæta til vinnu. Guöjón sagöi aö annars væri ekkert frekar aö frétta frá Kröflu umfram þaö sem kom fram i fréttum i gær. Skjálftavirknin hefur aukist gifurlega siöustu sólarhringa. Skjálftarnir voru 118 sl. sólarhring, þar af 6 haröari en 2 stig á Richterkvaröa en voru 110 sólarhringinn þar áöur. Þaö er ekki aöeins Krafla sem er I hættu, Kisilverksmiöjan er lika á hættusvæöi og i gær var þar æfing og tókst aö rýma staöinn á 5 min. aö sögn Guöjóns. Landris er nokkuö minna en áöur en eins og komiö hefur fram er land nú aöeins hærra en þaö var fyrir siöasta sig og má búast viö óbreyttu ástandi næstu tvo sólarhringa. Askorun til verkfólks um virkt starf áréttar fundurinn samþykkt siöasta þings ASÍ um aö brýnasta hagsmunamál verkafólks sé aö rikisstjórn ihaldsaflanna viki. Fyrsti viöræöufundur Alþýöu- sambands Islands og atvinnurekenda veröur á Hótel Loftleiöum kl. 15 i dag. 1 gær hélt aöalsamninganefnd ASI fund á Hótel Esju, þar sem nefndarmennirnir 37 ræddust viö frá kl. 14 til 18. Formaöur samninganefndarinnar var Miöstjórn Alþýöubandalagsins lýsir jafnframt yfir fyllsta stuöningi viö þær kjarakröfur sem verkalýössamtökin hafa nú markaö bæöi á þingi og kjara- málaráösetefnu ASI og fagnar þeirri einingu sem náöst hef ur um aö gera launajöfnunarstefnu aö aöalmarkmiöi kröfugeröarinnar. Miöstjórnin beinir þvi sérstak- lega til verkalýössamtakanna aö standa af fullum þunga á þeim meginkjarakröfum ASI-þingsins Framhald á bls. 18 kjörinn Björn Jónsson, vara- formaöur, Snorri Jónsson og ritari Benedikt Daviösson. I aöalsamninganefndinni er 21 fulltrúi kjörinn af kjaramála- ráöstefnu ASI og 16 tilnefndir af 1 andssamböndum og svæöasamböndum. Lenti á einum hreyfli GSP tók myndir af þvi á sunnudaginn, þegar ein Fokker Friendship véla Fí lenti á einum hreyfli á Reykjavikurflugvelli. Ástæðan var smávægilegur oliuleki i hreyflinum að sögn flugstjorans. Myndir og frásögn af atburðinum eru á siðu 5. Aðalsamninganefndin d Esjufundinum i gær. Fyrsti fundur ASÍ og atvinnurekenda Sigurður Magnússon og Eðvarð Sigurðs- son leggja til á alþingi: Hreinsitæki inn- an árs — eflastöðv- un rekstrarins Þingmennirnir Siguröur Magnússon og Eövarö Sigurös- son leggja til áö álverinu verði faliö aö koma upp hreinsi- tækjum innan árs ella veröi verksmiðjunni lokaö. Þetta kemur fram i þingsályktunar- tillögu sem dreift var á alþingi f gær. Tillagan er i fimm liöum, þar sem gert er ráö fyrir sérstökum ráöstöfunum rikisstjórnarinnar vegna mengunarvarna og heil- brigöisgæslu i álverinu i Straumsvik. I fyrsta liönum er rikisstjórninni faliö aö tryggja uppsetningu fulikomnustu hreinsitækja sem vinni gegn ytri sem innri mengun á umhverfi verksmiöjunnar. Jafnframt tilkynni rikisstjörnin ISAL, ,,aö veröi hreisnitæki ekki komin upp innan árs veröi rekstur verksmiöjunnar stööv- aöur.” Þá er lagt til aö komiö veröi upp aöstööu til heilsu- gæsluþjónustu i sérstöku hús- næöi viö verksmiöjuna i umsjón heilsugæslulæknis. Þá veröi stofnaö til sérstaks starfs heil- brigöis- og öryggismálafulltrúa viö verksmiöjuna. Veröi hann kosinn af starfsfólki verk- Eövarö Siguröur smiðjunnar. Þá veröi komiö á laggirnar samstarfsnefnd skipaöri fimm fulltrúum starfs- manna og verksmiöjueigenda sem geri tillögur um bættan aöbúnaö, heilbrigði og öryggi starfsfólks. Loks er lagt til aö samiö veröi viö ÍSAL um greiöslu alls kostnaöar af mengunarvörnum og rann- sóknum. 1 greinargerö er ma. rifjaö upp er Alfreö Gislason læknir, þáverandi þingmaöur Alþýðu- bandalagsins, varaöi á aiþingi sérstaklega viö mengunar- hættunni i Straumsvik. Þá er rakin niöurstaöa rannsókna sem geröar hafa veriö I álverinu á vinnuskilyröum. Miöstjórn Alþýðubandalagsins: íslensk iðn- þróun í stað erl. stóriðju Samfylking gegn áskókn erlendra auðhringa Meðal samþykkta sem gerðai voru á tveggja daga fundi miö- stjórnar Aiþýöubandalagsins nií um helgina var ályktun um islenska iönþróun i staö erlendrar stóriöju. Viö birtum ályktunina I heild á 6. siöu Þjóöviljans I dag, en i henni segir m.a.: „Miöstjórn Alþýöubanda- lagsins varar eindregiö viö til- raunum erlendra auöhringa til að ná tökum á orkulindum landsins meö beinum eöa óbeinum hætti og fá hér iðnaðaraöstööu til aö mala sér gull. Þessar tilraunir hafa skýrast komiö fram i hinni hrikalegu áætlun Alusuisse, sem sett hefur veriö fram viö islensk stjórnvöld undir dulnefninu Integral. .. A sviöi innlendrar iön- þróunar blasa viö næg viöfangs- efni, sem eru af þeirri stærö og- gerö að við ráöum sjálfir viö þau án fjármálalegrar ihlutunar er- lendra auöhringa. Má I því sam- bandi minna á verkefni á sviöi skipasmiða, veiðafæragerðar, ullar- og skinnaiönaöar, mat- vælaframleiðslu, lifefnaiönaöar, fóðurframleiöslu, áburöar- vinnslu, margvislegs byggingar- efnaiönaöar og rafeindaiönaöar auk þeirra fjölþættu nýju mögu- leika, sem fiskiönaöurinn mun veita innan fárra ára. ...Miöstjórn Alþýöubanda- lagsins skorar á alla þá sem skilja nauösyn þess, aö islend- ingar varöveiti efnahagslegt sjálfstæði sitt um ókomin ár, aö taka höndum saman um aö hafna stóriðjustefnu ríkisstjóm- arinnar og mynda viötæka sam- fylkingu um framkvæmd is- lenskrar atvinnustefnu.” SJÁ 6. SÍÐU —hs

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.