Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003 Sport DV Hildur allt í öllu hjá KR Hildur Sigurðardóttir hefur verið allt í öllu í KR- liðinu það sem af er vetri. Hildur hefur leitt liðið í stigum í 4 leikjum (af 10), í fráköstum í 9 leikjum, í stoðsendingum í 7 leikjum og í hæsta framlagi í 6 leikjum. Meðaltöl Hildar í þessum tíu deildarleikjum eru líka afar glæsileg; hún hefúr skorað 19,7 stig, tekið 14,1 frákast, gefið 5,4 stoðsendingar og stolið 3,5 boltum að meðaltali í hverjum leik. Rögnvaldur og Erlingur dæma leikinn Það verða þeir Rögnvaldur Hreiðarsson og Erlingur Snær Erlingsson sem dæma úrslitaleik Keflavíkur og KR í dag en leikurinn hefst klukkan 14.15 ogfer fram í Smáranum í Kópavogi. Þetta er annað árið í röð sem úrslitaleikurinn fer fram síðasta laugardaginn fyrir jól og enn fremur í annað sinn sem hann er sýndur beint í Sjónvarpinu. Engin spilað meira en í 27 mínútur í leik Hjörtur Harðarson, þjálfari Keflavíkurliðsins, dreifir spilatíma jafnt á leikmenn sína, sem sést vel á því að í tíu deildarleikjum liðsins í vetur hefur enginn leikmaður leikið í meira en 27 mínútur að meðaltali. Birna Valgarðsdóttir hefur leikið mest, í 26,8 mínútur í leik, en sex aðrir leikmenn liðsins hafa leikið í meira en 20 mínútur að meðaltali og alls hafa tíu leikmenn Keflavíkur leikið í meira en 17 mínútur að meðaltali. Styttist óðum í 30. titilinn Keflavík hefur nú unnið 28 titla f kvennakörfunni og því styttist óðum í þann 30. hjá félaginu. Keflavík hefur unnið íslandsmeistara- titilinn tíu sinnum, bikar- keppnina tíu sinnum, orðið deildarmeistarar í sjö skipti og vann svo fyrirtækjabik- arinn í fyrsta sinn f fyrra. Fornfrægir erkifjendur í kvennakörfuboltanum, Keflavík og KR, leika til úrslita um Hópbílabikarinn í Smáranum á laugardaginn. Þessi lið hafa unnið 21 af síðustu 25 titlum í boði í kvennkörfuboltanum frá árinu 1993. 36 úrslitaleikir á aðeins ellefu úrum Keflavík og KR hafa spilað ófáa úrslitaleikina um titla kvenna- körfunnar á síðustu árum. AIls hafa liðin leikið 37 úrslitaleiki í úrslita- keppni íslandsmóts, bikarkeppni og í fyrirtækjabikar þar af 36 þeirra á síðustu ellefu árunt. Þegar úrslitaleikir síðustu ára eru skoðaðir kemur f ljós að það eru 56 úrslitaleikir og 12 ár síðan hvorugt liðið lék til úrslita um titil. Sá leikur var bikarúrslitaleikurinn milli ÍR og IS árið 1991 en síðan hafa annaðhvort Keflavík eða KR spilað til úrslita og margoft mætt hvort öðru. Það kemur því eflaust fáum á óvart að liðin skuli mætast í dag í fyrsta úrslitaleik tímabilsins, en úrslitaleikur Hópbílabikars kvenna fer fram klukkan 14.15 í Smáranum í dag. Liðin unnu bæði undanúrslitaleikinn á heimavelli; Keflavík vann öruggan 27 stiga sigur á toppliði ÍS, 68-41, og KR vann botnlið Grindavíkur með 30 stigum, 88-58. Það félag sem vinnur leikinn í dag verður enn fremur fyrsta félagið til að vinna fyrirtækjabikar kvenna í annað sinn en KR eða Keflavík hafa unnið 21 af síðustu 25 titlum í boði frá árinu 1993. Keflavík hefur unnið 14 þeirra en KR sjö. KR vann fyrsta fyrirtækjabikar kvenna árið 2000; lagði þá Keflavík að velli í úrslitaleik, 48-34. Keflavík tapaði fyrstu tveimur úrslitaleikjum sínum í fyrirtækjabikarnum fyrir KR og Grindavík en vann síðan í fyrsta sinn í fyrra þegar liðið lagði KR að velli í úrslitaleik, 80-54, sem er stærsti sigur liðs í þessum úrslitaleik frá upphafi. ooj&dv.is Núverandi meistarar Keflavik er handhafí bæöi Islandsmeistarabikarsins og Fyrirtækjabikarsins ikvennakörfunni og fær tækifæri til að verja annan þeirra i dag þegar liöið mætir KR i úrslitaleik Hópbilabikarsins. Hér sjást þær fagna Islandsmeistaratitlinum i vor. ÚRSLITALEIKIRNIR 36: Keflavík og KR hafa spilað 36 úrslitaleiki um titil frá 1993, þ.e. bikarúrslitaleik, úrslitaleik í fyrir- tækjabikar eða úrslitaleiki í úrslita- einvígi um (slandsmeistaratitil. Úrslitaleikir liðanna frá 1993: 1993 Bikarúrslit Kef.-KR 58-54 Úrslital. (slandsmóts Kef.-KR 3-0 1994 Úrslital. (slandsmóts Kef.-KR 3-2 1995 Bikarúrslit Kef.-KR 61-42 1996 Úrslitak. fslandsmóts Kef.-KR 3-1 1997 Bikarúrslit Kef.-KR 66-63 1998 Úrslitak. fslandsmóts Kef.-KR 3-1 1999 Úrslitak. fslandsmóts KR-Kef. 3-0 2000 Úrslitak. fslandsmóts Kef.-KR 3-2 2001 Bikarúrslit KR-Kef. 76-58 Úrslitak. (slandsmóts KR-Kef. 3-0 Fyrirtækjabikar KR-Kef. 48-34 2002 Enginn 2003 Úrslitak. (slandsmóts Kef.-KR 3-0 Fyrirtækjabikar 2004 Kef.-KR 80-54 Fyrirtækjabikar Kef.-KR i dag Samantekt: Úrslitak. fslandsmóts 30 leikir Keflavík 22 sigrar KR 18 sigrar Bikarúrslltalelklr 4 leikir Keflavlk 3 sigrar KR 1 sigur Úrslitaleikur f fyrirtækjab. 2 leikir Keflavík 1 sigur KR 1 sigur Samtals 36 leikir Keflavik 22 sigrar KR 14 sigrar ooj MIKILVÆG! ERLU: Erla Þorsteinsdóttir hefur misst úr þrjá deildarleiki með Keflavlk í vetur og hafa tveir þeirra tapast. Keflavik hefur hins vegar unnið 6 af hinum sjö þar sem Erla hefur með. Tölfræði Keflavíkur gegn KR í vetur, með og án Erlu: Með Erlu An Erlu 1 Leikir 1 1 Sigrar 0 72 Stig skoruö 69 59 Stig fengin á tig 79 36,9% Skotnýting 35,3% 25,9% Skotnýting mótherja 39,7% 53% Hlutfall frákasta 50% 14 Sóknarfráköst 12 24 Stoðsendingar 20 22 Tapaðir boltar 19 7 Varin skot 4 2 Varin skot mótherja 6 12 Stolnir boltar 12 12 Villur liðs 21 20 Villur mótherja 22 Erla skiptir miklu máli Keflavík er að flestra mati með best mannaða liðið í íslenskum kvennakörfubolta í dag enda með níu landsliðsmenn innan sinna raða. Það er þó ljóst að liðið treystir eftir sem áður mest á einn leikmann - miðherjann Erlu Þorsteinsdóttur. Erla hefur misst úr þrjá leiki í vetur; þann fyrsta vegna kjálkabrots en hina tvo vegna lungnabólgu. Fjarvera Erlu hefur reynst liðinu erfið og tveir af þessum þremur leikjum hafa tapast. Keflavík mætir liði KR á morgun í þriðja sinn í vetur. Fyrsta leikinn lék Keflavík án Erlu gegn Kanalausu KR- liði og tapaði, 69-79 í DHL-höllinni. Seinni leikinn lék liðið með Erlu gegn KR í Keflavík en KR var þákomið með bandarískan leikmann. Þann leik vann Keflavík, 72-59, en sá leikur stóð jafnt í upphafi fjórða leikhluta. Erla skoraði alls 32 stig og tók 7 fráköst á þeim 25 mínútum sem hún spilaði gegn ICR og KR-liðið réð ekkert við hana inni í teig. Tölfræði Erlu, þrátt fyrir þessar hrakfarir hennar í vetur, er samt afar glæsUeg. Hún hefur skorað 16,6 stig að meðaltali á þeim 20,3 mínútum sem hún hefur spilað. Erla hefur auk þess rifið niður 6,1 frákast og hitt úr 56% skota sinna og enginn Teikmaður deildarinnar hefur hitt betur eða skorað örar það sem af er tímabilinu. Það gæti því orðið þrautin þyngri fyrir KR að stoppa þennan snjalla miðherja í leiknum í dag. ooj@dv.is 16,3 stig á 20,3 mínútum Erla Þorsteinsdóttir hefur verið sterk undir körfunni með Keflavikurliðinu í vetur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.