Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1912, Side 53

Eimreiðin - 01.05.1912, Side 53
129 En þó vér Islendingar í fyrstu værum í litlu áliti hjá alþýðu manna hér í landi, þá breyttist það smátt og smátt til hins betra, þegar fram libu stundir. Pví hinir fyrstu íslenzku innflytjendur sýndu það fljótt, að þeir vóru duglegir og úthaldsgóðir verkmenn, starfsamir og friðsamir, og þess vegna ákjósanlegir borgarar. Á hinum fyrstu frumbýlings-árum sínum áttu þeir lítinn kost á að sýna hérlendum mönnum. að þeir einnig höfðu mikið andlegt at- gervi til að bera; en ekki leið þó á löngu, áður en hinir yngri menn meðal þeirra fóru að leggja stund á skólanám, þó efni væri lítil og ástæður allar næsta erfiðar, fóru að ryðja sér til rúms, taka þátt í landsmálum og komast í ýms embætti og opin- berar stöður. Og kom þá brátt í ljós, að þeir stóðu ekki (hvað andlega hæfileika snerti) að baki neinum af hinum þjóðflokkunum, er til landsins fluttu, og vóru jafnvel með þeim allra fremstu sem námsmenn. — 1 fyrstu vóru þeir auðvitað fáir, og að eins þeir, sem gæddir vóru frábærum kjarki og hæfileikum, er ruddu sér svo til rúms, að innlendir menn fóru að veita þeim eftirtekt, fóru að dást að þeim og bera meiri virðingu fyrir Islending yfir höfuð. Og einn þessara ungu manna, sem með frábærum gáfum, mann- kostum og atorku stuðluðu að því, að koma þjóðflokki sínum í gott álit meðal hérlendra manna, var MAGNÚS lögmaður BRYN- JÓLFSSON. Magnús var fæddur að Skeggstöðum í Svartárdal í Húna- þingi 28. dag maímánaðar 1866. Faðir hans er Brynjólfur Brynjólfsson, Magnússonar, bónda að Starrastöðum í Hegra- nesþingi, Magnússonar. Móðir Brynjólfs Magnússonar var Guðrún dóttir Stefáns bónda að Skatastöðum í Austurdal, og konu hans Sólborgar Bjarnadóttur frá Skjaldastöðum í Öxnadal. (Afkom- endur þeirra hjóna, Stefáns og Sólborgar, eru þeir síra Sigurður í Vigur á Isafirði og Stefán Stefánsson skólastjóri gagnfræðaskól- ans á Akareyri.) Móðir Magnúsar lögmanns var Pórunn dóttir Ólafs bónda Bjarnarsonar að Sellandi í Blöndudal. Móðir Ólafs var Pórunn Helgadóttir, bónda í Pverárdal, og alsystir Árna Helgasonar að Fjalli í Sæmundarhlíð, föður Sigþrúðar móður Jóns Porkelssonar fyrrum rektors í Reykjavík. En móðir Pórunnar (móður Magnúsar lögmanns) var Sigríður Henriksdóttir hálfsystir Henriks föður Jóns á Helluvaði í Norður-fingeyjarsýslu.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.