Breiðholtsblaðið - 01.01.2007, Blaðsíða 1

Breiðholtsblaðið - 01.01.2007, Blaðsíða 1
1. tbl. 14. árg. JANÚAR 2007Dreift frítt í öll hús í Brei›holtinu Lyfjaval.is Sími 577 1166 Engar líkur eru á að spilasalur á vegum Háspennu Happdrættis Háskóla Íslands verði opnaður í Mjóddinni. Borgaryfirvöld eiga nú í viðræðum við forsvarsmenn happ- drættisins um að þessari starfsemi verið fundin staður annarsstaðar. Mikil andstaða er í Breiðholtinu við hinn fyrirhugaða spilasal og mót- mæltu yfir 2000 manns opnun hans með undirskrifum í desember. Íbúa- samtökin Betra Breiðholt eru alger- lega andvíg spilasal Háspennu og mik- il andstaða er einnig á meðal þeirra sem annast verslanarekstur og aðra þjónustu í Mjóddinni. Eins og kom fram í síðasta Breiðholtsblaði reynd- ist ekki unnt að opna spilasalinn um nýliðin áramót eins og ráð var fyrir gert vegna þess að Háspenna fékk ranga gerð af spilakössum afgreidda frá framleiðanda og varð að senda þá aftur af landi brott. Málið kom inn á borð borgarráðs sem samþykkti tillögu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgarstjóra að skipa starfshóp til þess að fara yfir málefni spilasala og rekstur spilakassa í borg- inni bæði er varðar staðsetningu þeirra og hvort rétt væri að setja slíkri starfsemi sérstök skilyrði í lög- reglusamþykkt Reykjavíkur. Vilhjálm- ur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri hef- ur einnig sent Háskóla Íslands bréf með samþykkt borgarráðs og farið þess á leit að happdrættið hverfi frá áformum sínum um rekstur spilasals í Mjóddinni. Borgaryfirvöld eiga nú í viðræðum við forstöðumenn happ- drættisins um að finna lausn á þessu máli þannig að spilasalur verði ekki opnaður í Mjóddinni, í nágrenni hennar eða í neinu af húsnæðum borgarinnar. Vilhjálmur segir að eng- inn óski eftir því að spilakössum verði fjölgað og tilkoma spilasalar af þessari gerð sé það versta sem komið geti fyrir Mjóddina á þá starf- semi sem þar fer fram. Hann benti á að breytingar hafi orðið í verslana- kjarnanum í Mjóddinni á síðasta ári. Ríkisvaldið hafi ákveðið að flytja starfsemi heilsugæslunnar þangað sem þýði að tveimur vinsælum versl- unum hafi verið sagt upp húsnæði og verslun ÁTVR hafi einnig verið flutt á brott auk þess sem nú eigi að opna spilasal í því húsnæði en ekki verslunarstarfsemi. Við það geti íbúar hverfisins, rekstrar- og þjón- ustuaðilar í Mjóddinni og borgaryf- irvöld ekki unað. Vilhjálmur segir ljóst að Reykjavíkurborg geti þurft að bera einhvern kostnað af því að hætt verði við rekstur spilasalarins en það sé verjandi til þess að koma í veg fyrir að þessari starfsemi verði komið á fót. Af þessu má vera ljóst að spilasalurinn verði sleginn af - að starfsemi hans í Mjóddinni verði ekki að veruleika. Spilasalurinn sleginn af í Mjódd Úrvals þorramatur Beint úr kjötborðinu ��������������� ��������������� ������������������ Egils Pilsner 69 kr. - bls. 4-5 Viðtalið Þessi myndarlegi hópur útskriftaðist frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í lok haustannar þann 20. desember sl. Þetta var í 67. sinn sem nemendur voru útskrifaður frá FB.

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.