Breiðholtsblaðið - 01.01.2007, Blaðsíða 10
Flestir framboðslistar vegna
Alþingiskosninganna á komandi
vori hafa nú litið dagsins ljós
nema hjá Frjálslynda flokknum.
Fæstir þeirra koma á óvart þótt
nokkra endurnýjun sé að finna á
sumum þeirra. Vafasamt er með
tilliti til uppröðunar þeirra að
álykta hún ein og sér skipti sköp-
um fyrir nokkurt framboðanna.
Tveir athyglisverðir
Hjá Sjálfstæðisflokknum má
finna tvo nýja frambjóðendur
sem gætu átt eftir að láta til sín
taka á vettvangi þjóðmálanna.
Illuga Gunnarsson í Reykjavík
og Kristján Þór Júlíusson í Norð-
austur kjördæminu. Báða þessa
frambjóðendur hafði mátt sjá
fyrir um nokkurt skeið. Illugi hef-
ur um tíma verið að vekja á sér
athygli og að nokkru með nýjum
hætti þegar hann gerðist talsmað-
ur flokks síns í umhverfismálum.
Líkur eru á að þar kunni að fara
næsta formannsefni Sjálfstæðis-
flokksins og gera má ráð fyrir að
Kristján Þór eigi eftir að láta til
sín taka og þá einkum sem tals-
maður þeirra landshluta sem
liggja utan höfuðborgarsvæðisins.
Þarna gætu verið tvö ráðherraefni
til framtíðar. Sjálfstæðismenn virð-
ast bíða rólegir, að minnsta kosti
enn sem komið er, og þá trúlega
í von um að þeir bjóði í dans þeg-
ar kemur að stjórnarmyndun að
kosningum loknum. Hverjum sem
þeim þykja líklegastir til samstarf
er of snemmt að velta fyrir sér en
vonarglóð virðist bæði vera að
finna í augum Samfylkingarfólks
og Vinstri grænna þótt mökunar-
kvakið sé ekki hávært a.m.k. enn
sem komið er.
Formanni hugnast ekki
karlavæðing
Framboðslistar Samfylkingarinn-
ar vekja ekki vonir um stórfelld-
ar breytingar þeirra vegna. Í höf-
uðborginni má sjá sömu gömlu
andlitin nema hvað einni fyrrum
kvennalistakonu var skipt út fyr-
ir aðra fyrrum kvennalistakonu.
Helstu nýjungar má sjá í Gunnari
Svavarssyni, forseta bæjarstjórn-
ar Hafnarfjaðrar, sem leiðir kraga-
listann og karlkyns skólastjóra
á Skaganum sem skaust upp
fyrir sitjandi kvennþingmann í
kjördæminu. Eftirtektarvert var
hversu karmönnum vegnaði vel í
prófkjörum Samfylkingarinnar á
landsbyggðinni og af ummælum
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur,
formanns í kjölfar þeirra mátti
ráða að henni hugnaðist þessi
karlavæðing aðeins hæfilega. Sam-
fylkingin líður fyrir að hafa ekki
hrokkið nægilega vel saman sem
einn flokkur og stríðsmenn hans
og konur hafa átt í erfiðleikum
með að grafa gamlar rætur sínar.
Í þeim hópi er formaðurinn og
það eru ekki síst kvennalistakon-
ur sem virðast vilja halda merkj-
um fortíðar sinnar á lofti hversu
sterkt sem það kann annars að
vera fyrir flokk sem vill kynna sig
sem almennan en samhentan jafn-
aðarmannaflokk en ekki fylkingu
ólíkra sjónarmiða og afla. Samfylk-
ingunni er nauðsynlegt að komast
í ríkistjórn að kosningum loknum
eigi flokkurinn að sanna tilveru
sína sem frambúðar stjórnmálafl.
Nái flokkurinn ekki um 30% fylgi
í kosningunum og taki ekki þátt í
stjórnsamtarfi að þeim loknum er
hætta á að úti verið um núverandi
forystu flokksins og svilsystkinin
úr Vesturbænum verði að finna
sér annan starfa. Stöðugar vær-
ingar á vinstri kantinum að und-
anförnu eru ekki líklegar til þess
að efla þann liðssafnað til sam-
starf. Því þarf ekki að undra þótt
farið sé að gæla við hugmyndir
um samstarf Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks í kjölfar kosninga.
Í herferð
Framboðslistar Vinstri grænna
eru einnig nokkuð hefðbundnir
nema hvað Ögmundur Jónasson
hefur nú verið sendur úr höfuð-
borginni í kragann umhverfis
hana. Greinilega er það liður í
mikilli herferð sem flokkurinn er
lagður í en þeir hafa ekki átt þing-
mann í þessu kjördæmi. Eins má
segja um Suðurkjördæmið þang-
að sem Atli Gíslason, lögmaður úr
Reykjavík hefur verið sendur til
landvinninga en þarna er um tvö
öfluga einstaklinga og stjórnmála-
menn að ræða. Í norðurkjördæm-
unum eiga Vinstri grænir nokkuð
trausta menn; Jón Bjarnason, fyrr-
um skólastjóra Hólaskóla í vestur
kjördæminu og sjálfan formann-
inn og Breiðhyltinginn Steingrím
J. Sigfússon í því eystra. Kolbrún
Halldórsdóttir og Katrín Jakobs-
dóttir eru konurnar í forystusveit-
inni í borginni. Kolbrún er harð-
ur talsmaður grænna viðhorfa en
Katrín virðist nokkuð föst í gamla-
dags spjótalögum, sem einkenndu
komma og krata í gegnum tíðina
og bera ummæli um Margréti Frí-
mannsdóttur, sem hún skrifaði
undir ásamt fleirum á vefritinu
Múrnum um áramótin og varði
síðan þess greinilega merki að sú
barátta er enn í fullum gangi. Her-
för Vinstri grænna virðist einkum
beint að Samfylkingunni, greini-
lega í von um að flokkurinn geti
orðið álíka stór og að gamla valda-
jafnvægið frá því að Alþýðuflokk-
ur og Alþýðubandalag voru starf-
andi náist að nýju. Spurning er
um hvort þeir eru komnir á fullt í
baráttu við Samfylkinguna um að
leggjast við hlið Sjálfstæðisflokks-
ins í ríkisstjórnarsæng að kosn-
ingum loknum undir yfirskriftinni
að “ekkert sé skárra en íhaldið”
fremur en að efla svonefnt kaffi-
bandalag flokkanna sem nú verma
stjórnarandstöðustólana.
Breiðholtið gæti skipt
máli
Framboðslistar Framsóknar-
flokksins eru að líta dagsins ljós.
Eftirtektarvert er að þrjár konur
skipa efstu sætin í Reykjavík suð-
ur en tveir karlar í Reykjavík norð-
ur. Ein af ástæðum þess mun vera
sú að Guðjón Ólafur Jónsson, sem
er í öðru sæti í norðurkjördæm-
inu á eftir nýjum flokksformanni
Jóni Sigurðssyni, fyrrum Seðla-
bankastjóra, telji sig tryggari með
framtíðar þingsæti þeim megin
vegna þess að Jón muni hætta
fljótlega verði flokkurinn ekki í rík-
istjórn eftir kosningar. Breiðhylt-
ingurinn Jónína Bjartmarz virðist
hafa nokkuð góða stöðu í Reykja-
vík suður og Sæunn Stefánsdóttir,
sem er í öðru sætinu er nýliði,
sem fólk tekur eftir. Fylgi flokksins
í suður kjördæminu hefur hækk-
að nokkuð í skoðanakönnunum á
meðan það stendur í stað í kjör-
dæmi formannsins og verði þau
úrslit þingkosninga kemst hann
ekki inn á þing. Breiðholtið er í
suðurkjördæminu og gæti skipt
Framsókn nokkru máli. Þar býr
Jónína Bjartmarz, þingmaður og
ráðherra og þar býr Björn Ingi
Hrafnsson, borgarfulltrúi einnig,
sá sem náði að hífa fylgi flokksins
úr 3% í 6% í borgarstjórnarkosn-
ingunum og koma borgarfulltrúa
að. Þá býr talsvert af fólki sem er
ættað af landsbyggðin í Breiðholt-
inu og sumt með ræður í hinni 90
ára gömlu Framsókn hvort sem
þær duga þegar kemur til kosn-
inga.
Bjarga fordómar
Frjálslyndum?
Eins og fyrr segir eru framboðs-
listar Frjálslyndra ekki farnir að
koma fram og ekki heldur ljóst
hvaða aðferð þeir hyggjast hafa
við val á fólki. Frjálslyndir virðast
hafa í nægu að snúast að undan-
förnu við að lægja öldur innan
flokksins sem risu eftir að þing-
menn flokksins hófu umræður
um málefni fólks af erlendum upp-
runa og nýbúa hér á landi með
þeim afleiðingum að fordómar
tóku að vakna upp. Ekki virðist
sjá fyrir endann á þeim deilum né
hverjar afleiðingar af formanns-
slag Guðjóns Arnars Kristjáns-
sonar og Margrétar Sverrisdóttur
eiga eftir að verða. Nýbúaumræð-
an jók hinsvegar verulega við fylgi
Frjálslyndra í skoðanakönnunum
sem sýnir að lítið þarf til þess að
vekja fordóma í garð útlendinga
af dvala. Hvort sá málflutningur
nægir Frjálslyndum til þess að
halda þeirri fylgisaukningu fram
að kosningum er óvíst og spurn-
ing er hvort og þá á hvern hátt
þessi umræða mun leiða flokk-
inn í komandi kosningabaráttu.
Athyglisvert er að lítið hefur verið
minnst á Frjálslynda í umræðum
að undanförnu og þeir haft frem-
ur hægt um sig utan flokksmúr-
anna enda að sama skapi verið
fjörugt innan þeirra.
10 Breiðholtsblaðið JANÚAR 2007
Augl‡singasími: 511 1188 & 895 8298
Netfang: borgarblod@simnet.is
Kosningavetur I
Framboðin koma fæst á óvart
Þann 12 janúar var haldin
undankeppni fyrir söngkeppni
Samfés í samkomusalnum í Breið-
holtsskóla. Þar voru flutt níu
atriði og tókst keppnin vel. Sal-
urinn var fullur af unglingum
og sigurvegari kvöldsins var Sól-
veig Ásgeirsdóttir nemandi úr
Ölduselsskóla, og mun hún taka
þátt fyrir hönd Miðbergs og Hól-
masels á Samfés sem verður ann-
an og þriðja mars.
Á meðan HM í þýskalandi stend-
ur yfir munu Miðberg og Hólmasel
sýna alla leiki á opnunartímum á
breiðtjaldi. Það verður HM stofa í
Miðbergi og Hólmaseli. Í febrúar
verður nóg um að vera í Miðbergi
og Hólmaseli. Sameiginlegt ball
verður í byrjun febrúar. Öskudags-
gleði, Valentínusarball og þema
vikur í listasmiðjunni í Miðbergi.
Við minnum enn og aftur á að
það er opið hjá okkur á daginn og
svo er bara að láta sjá sig. Hvetj-
um sem flesta til að koma í Mið-
berg og nýta sér það sem við höf-
um upp á að bjóða.
Miðberg óskar öllum gleðilegs
nýs árs. Við minnum á opnunn-
ar tíma okkar frá 14-17 alla virka
daga. Og frá 19:30 -22:00 á mánu-
dags, miðvikudagskvöldum og til
23 á föstudögum.
Með nýju ári koma nýir
hlutir, 2-3 klúbbar eru að fara í
gang, Hiphop klúbbur og fjölmiðla-
klúbbur.
Margt að gerast
í Miðbergi
og Hólmaseli
Sólveig Ásgeirsdóttir, sigurvegari í undankeppni söngkeppni Samfés.
Þessar þrjá tóku saman lagið í undanleppninni sem fór fram í
Breiðholtsskóla.