Breiðholtsblaðið - 01.01.2007, Blaðsíða 14

Breiðholtsblaðið - 01.01.2007, Blaðsíða 14
14 Breiðholtsblaðið JANÚAR 2007 Íslandsmet í 4x200 metrum ÍR-ingarnir, Steinar Thors, Snorri Sigurðsson, Heimir Þóris- son og Einar Daði Lárusson settu Íslandsmet í 4x200 m. boðhlaupi í sveinaflokki á bætingamóti ÍR í Laugardalshöllinni 18. desem- ber sl. Tími þeirra var 1:36.94 sek. eða meðaltími upp á 24.24 sek. Þá bættu ÍR-stelpur Íslandsmet- ið í 4x200 m. boðhlaupi í flokki 12 ára og yngri þegar þær hlupu á 1:57.04 sek. og meðaltíminn því 29.26 sek. Í stelpnasveitinni hlupu Jóhanna Kristín Jóhannes- dóttir, Elísa Margrét Pálmadótt- ir, Arna Stefanía Guðmundsdóttir og Dórothea Jóhannsdóttir. Einar Daði Lárusson var nærri því að bæta met Brynjars Gunnarsson- ar ÍR í stangarstökki sveina en tókst ekki að þessu sinni. Fanney Björk Tryggvadóttir stökk 3.40 m. og er greinilega í bætingaformi. Helga Þráinsdóttir stökk 1.55m. í hástökki og sýndi að stutt er í bætingu hjá henni. Snorri Sigurðs- son hjó nærri sínu besta í 800 m. er hann hljóp á 2:04.62 mín. Arna Ómarsdóttir og Sandra Pét- ursdóttir bættu sig báðar með kvennakúlunni, Arna kastaði 9.60 m. og Sandra 9.53 m. Glæsilegur árangur hjá ungu keppnisliði Fjöldi ÍR-inga tók þátt í áramóti Fjölnis og Landsbanka Íslands þann 30. desember í Laugardals- höllinni og voru margir þeirra að bæta sinn persónulega besta árangur auk þess sem þrír settu íslensk aldursflokkamet. Helstu má nefna að Einar Daði Lárus- son setti nýtt sveinamet í 400 m. hlaupi þegar hann hljóp á 50.48 sekúndum, þetta er 8. Íslands- met Einars Daða á árinu 2006 en auk þess hefur hann verið með- limur fimm boðhlaupssveita sem sett hafa Íslandsmet á árinu. Reyndar var þetta “móment” eftirminnilegt fyrir Einar Daða þar sem á sömu sekúndunum og hann var að setja metið í 400 m missti hann nýjasta Íslandsmetið sitt í stangarstökki til Bjarka Gíslason- ar UFA. Björg Gunnarsdóttir bætti met stöllu sinnar Kristínar Lív Ólafsdóttur í 800 m. hlaupi, í flok- ki 12 ára og yngri, þegar hún hljóp á 2:35,84 mín. Dóróthea Jóhanns- dóttir bætti metið í 200 m. hlaupi stelpna 12 ára og yngri þegar hún hljóp á 27,73 sek. Helga Þráins- dóttir sigraði hástökki stökk 1.55 m. og Hekla Rún Ámundadóttir 11 ára gömul stökk 1,50 m. og reyndi við Íslandsmet í 12 ára flokki en tókst ekki að þessu sinni. Fann- ey Björk Tryggvadóttir sigraði í stangarstökki með 3.30 m. og Hulda Þorsteinsdóttir bætti sig og stökk 3.05 m. Arna Ómarsdóttir bætti sig í kúluvarpi meyja með 11,55 m. kasti og sama gerði Ingi Guðni Garðarsson í kúluvarpi sveina þegar hann varpaði 4 kg. kúlunni 14,82 m. Bæting um hálf- an metra hjá Inga. Ína Björk Helga- dóttir varð önnur í 60 m. grinda- hlaupi telpna og bætti sig, hljóp á 10.57sek. Snorri Sigurðsson bætti sig í síðustu grein mótsins og hljóp 1500 metrana á 4:25.01 mín. Glæsilegur árangur hjá okkar unga og efnilega keppnisliði. Björg Árnadóttir, forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur skrifar: Námsflokkar Reykjavíkur hafa í boði nám í stærðfræði, íslensku, ensku og dönsku sem samsvar- ar námsefni efstu bekkja í grunn- skóla. Námið er ætlað fólki eldra en 16 ára sem ekki hefur lokið grunnskólaprófi eða vill rifja upp þekkingu sína til dæmis ef það vill fara í frekara nám. Þetta nám hentar líka þeim sem vilja geta hjálpað börnunum sínum betur við heimanámið. Auk kennslu í þessum fjórum fögum er lögð áhersla á að kenna fólki að læra. Nemendum stendur til boða að sækja tíma í námstækni þar sem m.a. er kennd glósutækni, tíma- stjórnun, markmiðasetning og rit- gerðasmíð. Einnig geta nemendur fengið einkaviðtöl við náms- og starfsráðgjafa, en þeir geta hjálp- að til við að finna námsaðferðir sem henta hverjum og einum því það læra ekki allir á sama hátt. Þeir geta líka veitt ráðgjöf vegna námsörðugleika og aðstoðað þá sem hyggja á frekara nám að finna námsleiðir við hæfi. Námið er miðað við þarfir hvers og eins og nemendur fá aðstoð við að finna út á hvaða stigi er best fyrir þá að byrja. Hægt er að taka eitt fag eða fleiri og á þeim hraða sem hverjum hentar. Próf eru í boði, en valfrjáls. Hægt er að hefja námið hvenær sem er vetrar- ins. Frekari upplýsingar má finna á vefnum www.namsflokkar.is og í síma 567 7050, en þar fer skráning einnig fram. Grunnskólanám fyrir fullorðna í Mjóddinni Starfsemi Námsflokka Reykjavíkur fer fram í þessu húsi. Uppskeruhátíð Framfara Þriðja uppskeruhátíð Fram- fara, hollvinafélags millivega- lengda- og langhlaupara var haldin 29. nóvember sl. Þar fór fram verðlauna-afhending fyrir heildarstigakeppni í hlaupaser- íu New Balance og Framfara en eins og nafnið bendir til var New Balance styrktaraðili hlaupsins. Herdís Helga Arnalds Breiða- blik sigraði í heildarstigakeppni kvenna með fullt hús stiga, Fríða Rún Þórðardóttir ÍR varð í 2. sæti og hin unga Björg Gunnarsdóttir ÍR í 3. sæti. ÍR varð sigurvegari í heildarstigakeppni kvennaliða. Í karlakeppninni sigraði Kári Ste- inn Karlsson Breiðablik, Þorberg- ur Ingi Jónsson Breiðablik varð í 2. sæti og Burkni Helgason ÍR í því 3. Breiðablik varð sigurveg- ari í liðakeppninni. Samstarfssamningur ÍR við Vífilfell Á dögunum var undirritað- ur samningur ÍR við Vífilfell til ársins 2010. Þetta er samningur sem gerður var fyrir allar deildir félagsins og eru öll unglinga- og foreldraráð meðtalin. Það eru ákvæði í samningi þess- um þar sem við megum einungis versla vörur hjá þeim eins og t.d. gosdrykki. Ég vil því biðja alla þá sem eru að versla vörur í nafni félagsins hjá Vífilfelli að hafa sam- band við undirritaðan eða Sig- rúnu Grétu, íþróttafulltrúa. Rúmlega 800 átta ára skóla- börn gerðu sér ferð í Gerðuberg til að taka þátt í dagskrá í tengsl- um við sýninguna „Þetta vilja börnin sjá" sem staðið hefur yfir að undanförnu og sýndar myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem gefnar voru út á árinu 2006. Gerðabergssafn og Menningar- miðstöðin í Gerðubergi buðu 3. bekk grunnskóla Reykjavíkur til þessarar dagskrár og mættu börn alls staðar að úr borginni. Krakk- arnir skoðuðu sýninguna, flettu í bókunum sem stillt var upp fyrir neðan verk myndskreytanna og kusu síðan þá bók sem heillaði þau mest. Þau tóku einnig þátt í ratleik og spurningakeppni um þekktar sögupersónur á Gerðu- bergssafni. Í lokin var lesið fyrir þau upp úr þeirri bók sem hlaut flest atkvæðin í hópnum. Dagskrá- in miðaði að því að efla lestrar- löngun barna, sem eru nýbúin að læra að lesa sér til ánægju. Jafn- framt var lögð áhersla á að börn- in væru virkir þátttakendur og að heimsóknin væri bæði spenn- andi og fræðandi upplifun. Þetta er stærsta samstarfsverkefni bókasafnsins og Menningarmið- stöðvarinnar til þessa og þar sem vel tókst til mun þessi viðburður væntanlega verða endurtekinn. Um 800 börn sáu myndskreytingarnar Frá dagskrá með börnum sem haldin var í tengslum við sýninguna. Augl‡singasími: 511 1188 & 895 8298 Útsalan í fullum gangi 20 - 50 % afsláttur

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.