Mosfellsblaðið - 01.08.1999, Side 4
í Þýskalandi
íslenska liðið kemur inn
á völlinn við setningu
heimsmeistaramótsins.
riða sem þó verða að vera í lagi.
Þannig voru menn með of þung-
ar hófhlífar, of mjó mél og of
margar æfingar í hlýðni-
prógrammi. Leit því út til að
byrja með að þetta yrði mót með
endemum. En lukkan snérist
okkur í hag þegar á leið mótið
og varð árangur liðsins einn sá
mesti sem við höfum unnið frá
upphafi þessara meistaramóta.
Tvö atriði standa upp úr þ.e.
heimsmet Sigurbjörns Bárðar-
sonar og sigur Jóhanns Skúlasonar í
töltkeppninni, en tímamót virðast vera
að eiga sér stað í þessari grein, þar sem
við Islendingar höfum urn langt árabil
ekki átt keppendur í úrslitum, en höf-
um síðustu tvö heimsmeistaramótin átt
sigurvegarann. Fjöldi Mosfellinga
sótti mótið, þar á meðal um 14 ung-
lingar héðan úr Mosfellsbænum sem
voni að koma úr ferðalagi um Þýska-
land.
Þann 28. júlí lögðu þessir 14 ung-
lingar ásamt 4 fararstjórum úr ung-
lingadeild Harðar í ferð til Þýskalands.
Ferðinni var heitið til að heimsækja
unglinga í hestamannafélaginu í
Berlín, BIFF (Berlín Island Pferde
Fronde). í Berlín gistu krakkamir í
heimahúsum hjá félögum í BIFF. Góð
stemmning myndaðist á milli íslensku
og þýsku krakkana og var margt sér til
gamans gert.
Farið var í Tívolí, dýragarð, farið á
diskótek, verslað og farið á ströndina.
Þann 5. ágúst hélt síðan allur hópurinn
ásamt þýsku krökkunum í 6 tíma rútu-
ferð á Heimsmeistaramótið í Kreuth.
Gist var á farfuglaheimili í Amberg.
Dagana á mótinu skemmtu allir sér
konunglega enda stemning frábær og
aðstæður eins og best verður á kosið.
Ekki spillti árangur íslenska liðsins
fyrir, en íslenskir áhorfendur hvöttu
Ianda sína óspart.
Þýsku krakkamir munu heimsækja
unglingana hér í Mosfellsbæ á næsta
ári' og er vonast til að sú heimsókn
verði ánægjuleg.
Það hefur eflaust farið fram
hjá fáum hér á landi að
heimsmeistaramót ís-
lenskra hesta var haldið í Þýska-
landi dagana 3.-8. ágúst síðast-
liðinn. Mót þessi em haldin ann-
að hvert ár og sækja þau vaxandi
fjöldi áhugamanna um íslenska
hestinn. Talið var að á mótinu
væm um 1000 íslendingar sem
verður að teljast mjög mikil að-
sókn. Mótið var á heildina litið
mjög spennandi og til að byrja
með gekk allt á afturfótunum hjá ís-
lenska liðinu. Þannig var verið að
dæma hesta úr leik á gmndvelli smáat-
Aliorfendur skemmtu sér konunglega
á áhorfendapöllunum og fylgst var með
nánast hverju atriði.
Unglingamir úr hestamannafélaginu Herði ásamt þýskum unglingum úr hestamannafélaginu í
Berlín.
Sigurbjöm Bárðarson í viðtali við sjónvarps-
menn eftir að hafa sett heomsmet í 250 m
skeiði á 21,16 sek.
Sigurbjöm Bárðarson heimsmeistari
í samanlögðu og skeiði,
Jóhann Skúlason heimsmeistari í tölti
og Stynnir Amason.
íslenskra hesta
Heimsmeistaramót
o IHosfellsblaðlð