Tíminn - 13.12.1953, Qupperneq 2
TIMINN, sunnudaginn 13. desember 1953.
284. blað.
Sjúklingurinn er frystur, hjartað
taémist og læknirinn beitir hnífnum
Læknum hefir nú tekizt að auðveida hjartauppskurði að miklum mun
með nvjum aðferðum, sem þeir hafa þegar beitt með sæmiigum árangri.
Þessi nýja aðferð byggist á þvi, að iæknunum hefir tekizt að tæma hjartað
af blóði á meðan uppskurðurinn fer fram.
f J(viL
"5 ! i
IVfYNDIR
Áður urðu læknarnir að gera svo-
kallaðan blindandi uppskurð á hjart
anu, þannig, að þeir urðu áð þreifa
sig áfram til meinsemdarinnar og
skera hana í burtu eða gera aðrar
lagfæringar, án þess að geta farið
eftir öðru en fingurgómunum, þar
sem stöðugt blóð var í hjartanu.
Með hinni nýju aðferð hafa þeir
komið því svo fyrir, að hjartavöðv
inn liggur opinn fyrir og blóðlaus,
svo að auðveldara er að vita, hvar
bregða skuli hnífnum.
Líkaminn kældur. ___
Þessi blóðþurrkun hjartans fer
þannig fram, að á meðan á upp-
skurðinum stendur er líkami sjúkl-
ingsins kældur, svo að öll líffæra-
starfsemi hans gengur mikið hægar
fyrir sig en ella. Gefur þessi kæling
læknunum tíma sem nemur allt að
átta minútum, sem ekkert blóð er
í hjartanu. Hafa bandarískir iækn
ar fjallað um þessa uppskurði í
tímaritinu „Itne Jorí'nal of thé
American Medical Association" og
lýst þar uppskurðum á fimmtán
sjúklingum, sem skornir voru upp
með þessari nýju aðíerð.
Þrettán lifðu.
Lengi vel voru gerðar tilraunir á
dýrum varðandi þessa nýju aðferð
og henni ekki beitt við sjúklinga
fyrr en sannað þótti, að hún væri
möguleg og jafnframt heppilegri
fyrri aðferðum. Einn af þeim fimm-
tán, sem skornir voru upp, dó á
Útvarpið
Útvarpið í dag.
Fastir liðir eins og venjulega.
11,00 Messa í dómkirkjunni (Prest
ur: Séra Óskar J. Þorláksson.
Organleikari: Páll ísólfsson).
13.15 Ppplestur úr nýjum bókum.
15.15 Fréttaútvarp til íslendinga er-
lendis.
16.30 Veðurfregnir. — Útvarp frá
athöfn á Austurvelli: Norski
sendiherrann afhendir borgai
stjóranum í Reykjavík jólatré
að gjöf frá Oslóborg til
Reykjavíkurbæjar. Borgar-
stjórinn þakkar. Barnakór
syngur. Lúðrasveit Reykjavík
ur leikur.
18.30 Barnatími.
20,20 Umræðufundur í útvarpssal,
‘i
22,00 Fréttir og veðurfregnir,-
22,05 „Suður um höfin“.’ — Hljóm-
sveit undir stjórn Þorvalds
Steingrímssonar leikur suð-
ræn lög.
22,35 Danslög (plctur).
23.30 Dagskrárlpk.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20,00 Útvarp frá Alþingi: Frá 3.
umræðu um fjárlagafrumvarp
ið fyrir árið 1954; — eldhús-
dagsumræður (fyrra kvöld).
Ein umferð: 40 mín. til handa
hverjum þingflokki. Röð flokk
anna: Alþýðuflokkur. Þjóð-
varnarflokkur. Sósíalistaflokk
ur. Sjálfstæðisflokkur. Fram-
sóknarflokkur. — Dagskrárlok
um kl. 23,30.
Árnað heilla
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
s:na ungfrú Sigurást Klara Andrés-
dóttir, Berjanesi, Austur-Eyjafjöll-
um, og Guðmundur Friðrik Vigfús-
■son, Seli, Holtum.
Sextugur
varð í gær Vigfús Helgason kenn
ari. Hann hefir verið kennari við
búnaðarskólann á Hólum síð'an 1920.
Vigfús er vinmargur og nemendur
hans gamlir sem ungir senda hon
um huglieilar kveðjur á þessum
tímamótum.
skurðarborðinu. Og eitt tilfellið var
þannig, að uppskurður gat ekki
bjargað. Uppskurðirnir báru góðan
árangur hjá þeim þrettán sjúk!ing-
um, sem lifðu. Er þar með talið
sannað, að þessi nýja aðferð sé já-
kvæð og hafi mikið fram yfir gömlu
aðferðina.
Uppskurðurinn.
Þegar hin nýja aðferð er viðhöfð,
eru æðarnar, sem flytja blóðið til
hjartans, tepptar, eftir aö brjóst-
kassinn hefir verið opnaður. Strax
og hjartað hefir tæmzt, er það skor
ið upp og meinið fjarlægt á meðan
hjartað er tómt. Þegar hjartað er
fyllt á ný, er viðhaíður sérstakur
útbúnaður til að varna því að ioft-
bólur komist í blóðið.
Elíissur-ðisiiiá!
(Framhald af 1. síðu.)
útvega fjármagn til íbúða-
bygginga. Tii þess að leysa
þessi mál þyrfti samstarf
margra aðila, svo sem bæja,
ríkis og einstaklinga. Nauð-
synlegt væri að bæir og
ríki leggðu fram árlega ríf-
legar fjárhæðir í þessu
skyni og fjármagni væri
beint til íbúðarbygginga
með sérstökum skattaíviln-
imum til manna, sem leggðu
fé í hagkvæmar og ódýrar
íbúðir.
Rakti hann síðan í þessu
sambandi tillögur þær, sem
hann hefir nýlega borið fram
í bæjarstjórn Reykjavikur
um fjáröflun til bygginga.
Þá taldi hann brýna nauðsyn
i bera til, að bærinn tæki lán
1 til að útrýma heilsuspillandi
\ húsnæði.
| IVlinnisvarðar
1 nýsköpunarstjórnar.
i Hannes Jónsson minnti á,
hver væri minnisvarði ný-
'sköpunarstjórnarinnar svo-
nefndu í húsnæðismálunum
J— braggarnir og hallirnar —
en rakti síðan störf og ste.fnu
Framsöknarflokksins í þess-
um málum, sem miða að
framkvæmd þeirrar megin-
hugsjónar flokksins að hús-
næðisskortinum verði út-
rýmt, og að sem flestir búi í
eigin íbúðum. Einnig ræddi
hann frumkvæði flokksins og
þátttöku í lagasetningu um
verkamannabústaði, sam-
vinnubústaði, smáíbúðalán
og fíeira.
Þá benti hann á það sem
dæmi um áhuga kommún-
ista, Alþýðuflokksins og
Sjálfstæðisflokksins í hús-
næðismálum, að þegar þeir
fóru með völö í nýsköpun-
arstjórninni, voru á einu
ári — 1946 — byggðir 134
bílskúrar, en á árunum 1945
—1948 voru aðeins byggð
10 verkamannabústaðahús
með 36 íbúðúm. Á þessum
árum voru íslendingar auð-
ugri að reiðufé en nokkru
sinni fyrr, átti 600 milljónir
í erlendum innstæðum.
Næstur taiaði Steingrím-
ur Steinþórsson, félags- og
landbúnaðarráðherra. Benti
hann á, að áhugi kommún-
ista og Alþýðuflokksmanna,
hefði óneitanlegá verið
minni í húsnæðismálunum,
þegar þeir höfðu saman
meirihluta i Nýsköpunar-
stjórninni og hefðú þvi átt
að geta komið málum fram,
Hægláti maðurinn j
Austurbæjarbló sýnir nú mynd,'
sem Hægláti maðurinn nefnist. Seg
ir þar frá Ameríkana af írsku- bergi
brotnum, er snýr heim til æsku-'
stöðva sinna í írlandi. Kenmst hann
þar brátt í tæri við kvenmann, kvæn
ist og hefur búskap. En sambúðin
er brösótt í fyrstu og snýst mikill
hluti myndarinnar um það, hvernig
manntetrið bregst við duttlungum
konu sinnar. Johii Wayne, himi'
iraikni Indíánabani og stríðsmaður,
fer það vel með hlutverk hins kyrr
láta og friðsama manns, að það er
ekld fyrr en s’agsmálin hefjast, að
maður þekkir supermann gamla
(uppalinn í Ameríku). |
Maureen O’Hara sómir sér prýði
lega í gervi hinnar þóttafullu, írsku
heimasætu, enda sjálf íri í húð og
hár. Myndin stendur á ýmsan hátt
undir því lofi, sem á hana hefir
verio borið, ekki sízt vegna smekk-
legra lita og fallegs landslags. —
Jólamynd Austurbæjarfcíós nefn-
ist Te fyrir tvo, amerísk söng- og
dansmynd með Doris Day og Gor-
d"on Mac Rae.
Hótel Sahara
Tjarnarbíó sýnir nú myndina
Hótei Sahara og f jallar nún um við >
horf borgarans til hermannsins á ■
þann kímna hátt, sem Bretum er j
einum lagið. Þó er þetta ekki nema i
meðalmynd hvað það snertir. Hótel j
ið stendur í eyðimörkinni. Þar eru
mæðgur og vert, en síðan koma'
ítalskir hermenn. Þeir hafa inar j
aðferðir við að komast á kvennafar. I
Síðan koma Bretar, næst Þjóðverj-
AVMVA\W/JVVV,V.V,V/.VA\W.V.V.VAWWl’AW
’i
HYGEA (gyöja heilbrigðinnar)
réfctir yður hjálparhönd um
val á snyrtivörum frá: —
HELENE RUBINSTEIN
YARDLEY
GALA OF LONDON
MOUSON
REVLON *:;■■■
BREINING
FEMINA
CUTEX
MORNY
SHULTON (OLD SPICE) O. fl.
GJAFAKASSAR — ÖLL FÁANLEG ILMVÖTN
SKRAUTVÖRUR - :"
SNYRTIVÖRUSÉRFRÆÐINGUR ER í VERZLUNINNI
IHI NÚCj. ÍE/V
\\ Reykjavíur Apóteki — Sími: 8 28 66
V.W.,.V.'.VAV.V.V.*.V/.W»V.V.VAV.-.V«VA,iW.VAV
ar og að lokum Bandarlkjamenn.
Myndin hefði átt að kallast „Þjóð-
legt kvennafar í þremur reinum“.
I. G. Þ.
heldur en nú, þegar þeir
væru ábyrgðarlausir. Sagði
ráðherrann, að Framsókn-
armenn hefðu komið þvi
inn í núverandi stjórnar-
samning, að stór átök yrðu
gerð í húsnæðismálunum
og raforkumálum sveitanna.
Framsóknarráðherrarnir
mundu ekki sitja í stjórn-
inni nema því aðeins að við
þessi samningsatriði væri
staðið.
Aðrir ræðumenn voru Hann
es Pálsson, fulltrúi; Björn
Guðmundsson, skrifstofu-
stjóri; Leifur Ásgeirsson, pró
fessor og Eysteinn Jónsson,
f j ármálaráðherra.
Á fundinum ríkti eindreg-
inn vilji til þess að leysa
húsnæðismálin á grundvelli
þeirra tillagna, sem Þórður
Björnsson hefir lagt fram í
bæjarstjórn Reykjavíkur og
var svohljóðandi tillaga frá
Birni Guðmundssyni samþ.
einróma;
„Fundur haldinn í Fram-
sóknarfélagi Reykjavikur
11. des. 1953 telur, að erfið-
leikar á öflun fjármagns til
íbúðarhúsabygginga og ok-
(Framhald á 7. síðu.)
BUCKIYE-vítissódinn
er lireinn, sterkur og ómengaður.
BIRGÐIR Á ÞROTUM.
Gerið pantanir tii;
Agnar Norðfjörð & Co. h.f.
Lækjargötu 4. Símar: 7120 og 3183. o
IWWVVVW'WVVWWVWWWVVVWW’JNV’WWVVWWVWSIWVWWWW
í ;
Alúðarfyllstu þakkir færi ég öllum þeim, er minnt-
ust mín á sextugsafmæli mínu, 2. þ. m. með hlýjum
afmæliskveðjum og margskonar sóma.
Þorsteinn Sigurðsson, Vatnsleysu
VVVWAVAWAVW.V.V/A*AVAV.VAVAWVW/AVVÍ
«
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
móður okkar
SIGURVEIGAR SIGURÐARDÓTTUR.
Sérstaklega þökkum við sveitungum hennar fyrir hjálp
semi og hlýjan hug.
Sigríður Gunnlaugsdóttir, Magnús Gunnlaugsson.
BBBMWmaa—aBMBBBSBaB———■
Móðir okkar og stjúpmóðir
JOHANN.A GUNNARSDÓTTIR
frá Papey,
andaðist í Landakotsspítala 11. þessa mánaðar.
Systkinin.
^yjú (it^cfur feiÁin í
j SAMvnKT-inj'i’ig'ífuaiasnEAUE
* REYKJAVÍK - 5ÍMI 7030
UMBODSMENN UM LAMD ALLT
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur ástúð
við andlát
VERNHARÐS JÓNSSONAR
En sérstaklega þökkum við Flugfélagi íslands. Bless-
un Guðs sé með störfum þess á láði og legi.
Gleðileg jól.
Ilrund Vernharðsdóttir
Sigríður Jónsdóttir
frá Loftsstöðum