Mosfellsblaðið - 01.08.1999, Qupperneq 5
Júlíus hættur
Júlíus Jónsson í Nóatúni hefur tekið
við starfi innkaupastjóra hjá BÚR h/f,
sem er innkaupasamband fyrir Kaupás
h/f, sem stendur fyrir Nóatún, 11-11
búðimar, KÁ verslanir, KEA, Kaupfé-
lag Suðumesja og önnur kaupfélög
landsins.
Blaðið hafði samband við Júlíus þar
sem hann var staddur erlendis. Nóatún
Mosfellsbæ opnaði 16. nóvember
1989 undir hans stjórn og á verslunin
10 ára afmæli nú í haust. Hann átti að
vera í Mosfellabænum í 2-3 ár, en lík-
aði vel við fólkið í Mosfellsbæ og fékk
því framgengt að vera fram á þennan
dag. Hann kvaðst hafa hönd í bagga
með Nóatúni í Mosfellsbæ og mikið
yrði um dýrðir á 10 ára afmælinu nú í
haust. Júlíus bað um kveðjur til Mos-
fellinga og að hann skipti um starf með
trega.
Jóhann Snorri Jóhannesson er
nýráðinn verslunarstjóri hjá Nóatúni
Mosfellsbæ. Hann hóf störf hjá Nóa-
túni í nóvember 1989, en hafði áður
starfað hjá versluninni Kjörval, sem
rekin var á sama stað frá 1978 - 1989.
Snorri er Mosfellingum vel kunnugur
eftir langa þjónustu og býður alla vel-
komna til sín og síns starfsfólks.
Velheppnaður
flóamarkaður
Sunnudaginn 8. ágúst síð-
astliðinn hélt 6.fl. Afturelding-
ar í knattspyrnu geysi vel
heppnaðan flóamarkað í Ala-
fosskvosinni. Fleiri hundmð
manns streymdu í kvosina og
gerðu reifarakayup af ýmsu
tagi. Einnig var boðið uppá
þrautir og lleiki fyrir alla.
Skemmtilegum degi var svo
lokið með uppboði sem þótti takast með eindæmum vel. Boðnir voru upp
hlutir eftir marga listamenn eins og Þóm, Olaf Má og Tolla sem öll gáfu lista-
verk sín til styrktar knattspymustarfl ungu mannana úr Mosfellsbænunt.
Júlli í Náatúni og Kalli stjómuðu uppboðinu af
miklu öryggi.
Þeir eru einbeittir á svip þeir Þorvarður Friðbjörnsson <
andi hryssunnar Vöku og Helgi Sigurðsson dýralæknirl
enda mikið (húfi. Verið er að sæða hryssuna með sæði úr I
stóðhestinum Gusti frá Hóli. Áform Þorvarðar eru að gefa |
konu sinni Ragnhildi Sigurðardóttur folaldið takist ætlunar-
verkið. Sæðingar á hrossum er nýjung hér á landi, sem I
hófst fyrir nokkrum árum. í þessu tilviki er notað ferskt I
sæði sem tekið er fyrir kl 9 á stóðhestastöðinni í Gunnars-1
holti, það síðan sett í kælibox og sent með rútunni á BSÍ. f
Þann 5. júní s.l. vom gefin saman
Páll Þórólfsson handboltamaður
úr Aftureldingu og Katrín Rós
Gunnarsdóttir. Iþróttapresturinn séra
Pálmi Matthíasson gaf brúðhjónin
saman í Bessastaðakirkju.
Veislan var haldin í Valsheimilinu,
þar sem Egill Ólafsson stjómaði brúð-
arvalsinum og síðan var mikið ball
sem stóð fram eftir nóttu
hljómsveitar Þóris Baldurssonar ásamt
Eddu Borg og gömlu kempunni Rún-
ari Júl.
Brúðhjónin eyddu síðan júnímánuði
í að ferðast um landið og héldu eftir
það ásamt syni sínum til Þýskalands,
þar sem Páll spilar handbolta í vetur
með þýska liðinu Tusem Essen.
j ,, ... t- ~~—; 1
i
- 1 * *- V<M
Iíajak-ferð með Toppformi
Um mitt sumar fór vaskur hópur úr
Toppfomii frá íþróttahúsinu til Stokks-
eyrar í þeim tilgangi að fara í kajak-
siglingu og borða góðan mat. Farið var
í yndislegu verðl
og kajak-ferðin
gekk mjög vel
þrátt fyrir nokkra
snúninga og ör-
litla bleytu. í
upphafi ferðar
voru hópnum
kennd undir-
stöðuatriðin á
bakkanum, svo
sem hvemig ætti
að stýra og bjar-
ga sér frá dmkknun og gekk það mjög
vel og kom að góðum notum.
Þegar kajak-ferðin var á enda var
tekið á móti okkur á veitingastaðnum
Við fjöruborðið með ljúffengum humri
og öllu tilheyrandi. Myndimar með
greininni vom teknar í ferðinni.
Nú um mánaðamótin fara að hefjast
ný, gagnleg og skemmtileg námskeið
sem auglýst em í íþróttahúsinu að
Varmá, endilega kornið við og fáið
nánari upplýsingar.
Mosl'ellsblaðið Q