Mosfellsblaðið - 01.08.1999, Síða 6
Jörgei 1 skipstjóri tilbúinn til að leggja í hann.
Hann og brœður hans eiga stœrstu rœkjmítgerðina
í Narsaq, 5 skip 30-120 tonn að stœrð.
Hópur Frakka elda kvöldmat á ströndinni neðan við refabúið, leggja í ferð á kajökum. Frœg
kajakaferð hófst á Suður Grœnlandi fyrir nokkrum árum og endaði eftir 3 ár á vesturströnd
Alaska.
Aflinn borin til skips frá Stóru Laxá ífatnaði veiðimanna, en poka vantaði.
larfero
nlands
Suður
Guðmundi Jónassyni
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jón-
assonar h/f hefur haft skipu-
lagðar ferðir til Suður Græn-
lands undanfarin ár til sjóbleíkjuveiða
og skoðunarferða. Fararstjóri öll árin
hefur verið Bjami Olesen frá Selfossi.
Blaðamaður Mosfellsblaðsins tók sér
slíka ferð á hendur frá 13. -17. júlí s.l.
og varð hún ógleymanlegt ævintýri.
Gott flug að Grænlandi
Farið var frá Reykjavíkurflugvelli
síðdegis þriðjudaginn 13. júlí s.l. með
áætlunarflugi Flugfélags Islands og
lent eftir 2 tíma á Narsarsuaq í Einks-
firði, móts við Brattahlíð sem er hins
vegar við íjörðinn, en þar fer nú fram
mikil uppbygging á bæ Eiríks Rauða
og Þjóðhildarkirkju. - Flughöfnin er
nýleg og hlýleg með ágætri fríhöfn
með góðum verðum. Þama mættum
við íslenskum 20 manna gönguhóp
sem verið hafði á S- Grænlandi og var
á leið heim.
Þar á meðal voru Mosfellingar, þær
Guðrún Magnúsdóttir og Bryndís
Kristiansen. - Þama er gott hótel og
gríðarstór hvítabjöm með tvo húna
skreytir staðinn. Lítil byggð er önnur
nema fyrir starfsfólk.
Þama tóku á móti hópnum Bjami
Olesen fararstjóri, sem á íslenska móð-
ur og Jörgen Rothaus Olesen skip-
stjóri, sem á grænlenska móður og
hann býr í Narsaq, en þeir em bræðra-
synir tveggja Dana, annar býr á Sel-
fossi en hinn í Narsaq.
Fallegur bær
Frá höfninni í Narsarsuaq var siglt
með 25 sjómílna hraða á Sóma 700,
báti Jörgens til bæjarins Narsaq, um
l.klst. út Eiríksfjörð, sem er hátt í 100
km. langur. Strax út fjörðinn tókust á
hinar hrikalegu andstæður í náttúm-
fegurð S.-Grænlands, mikið blíðviðri
og lognsléttur sjór, borgarísjakar á víð
og dreif, grænar hlíðar og ægifögur
fjöll, krýnd hinum mikla Grænlands-
jökli. - Við Narsaq þéttist ísinn og einn
borgarísjakinn var eins og skemmti-
ferðaskip í laginu. Grænlendingar vita
aldrei hvemig ísnum líður, hann er á
hreyfingu og sífellt brotnar úr skrið-
jöklum, mjög mikið inni á Isafirði þar
sem jökullinn skríður í sjó á þremur
stöðum. Narsaq er rúml. 2.000 manna
bær, afar fallegur og hreinlegur, vel
skipulagður í undurfallegu en erfíðu
umhverfí. A vorin fá þeir sem skulda
sektir og annað að hreinsa rusl, annars
sitja þeir af sér sektirnar.
Erfiðleikar - mikil veiði
Minn ferðahópur dvaldi rétt utan við
bæinn á gömlu refabúi sem breytt hef-
ur verið í gistiheimili í umsjá Helga
Jónassonar. Hann býr í Narsaq, giftur
grænlenskri konu og eiga þau tvo syni.
- A refabúinu fór vel um okkur en þrír
0 tloxfi'llshlíiAiA