Tíminn - 15.05.1958, Blaðsíða 12
Veörið:
Norðaustan gola; viðast úrkomu-
laust en skýjað.
Hitinn kl. 18:
Reykjavík 4 st., Akureyri 3 st.,
Kaupmannahöfn 11 st„ Stokkhólm-
ur 12 st„ Hamborg 17 st., París 14
rimmtudagur 15. maí 1958.
Öll þjóðin spyr
Eysteinn Jónsson fjármálaráíiherra hirti stjórnar-
andstoðuna, sem fordæmir tillögur ríkisstjórnar-
innar en hefir ekkert jákvætt til mála aí leggja
Við umræðurnar á Alþingi í gær um efnahagsmálafrum-
varp rikisstjórnarinnar flutti Ólafur Thors langa ræðu gegn
frumvarpinu og reyndi að finna því allt til foráttu. Hann
hafði þó ekki eitt einasta orð að segja um það, hvað Sjálfstæð-
isflokkurinn vill gera. Eysteinn Jónsson, fjármálaráðherra,
kvaddi sér hljóðs á eftir og flutti örstutta ræðu, sem vakti
mikla athygli. Hann sagði;
Eg ætla ekki að flytja ræðu,
ég tala sennilega seinna í þessu
máli. Eg ætla að bera fram 3
fyrirspurnir til háttvirtra stjórn-
aranclstæðinga. Háttvirtur þm.
Gullbringu- og Kjósarsýslu, Ól-
afur Tliors, bar fram 20 spurn-
ingar, svo að það má telja mikla
liógværð að bera fram aðeins 3.
En ég vil skjóta þessu inn núna
strax í umræðurnar.
Háttvirtur þingmaður Gull-
bringu- og Kjósarsýslu liefir
baldið hér ræðu, sem ég tel hann
lítt öfundsvcrðan af, en það má
tala um það síðar. Það er enginn
öfundsverður af því að standa
hér eins og hann gerði í tvo
klukkutíma og rífa niður þær til
lögur, eða gera tilraun til þess
að rífa niðu'r þær tillögur, sem
gerðar eru til viðreisnar, án þess
að hafa nokkurt jákvætt orð að
segja þjóð sinni eða þingi um
það, hvað eigi að gera. Þetta hef
ir háttvirtur þingmaður senni-
lega fundið sjálfur, því að í lok
ræðu sinnar gerðist lionum mjög
tíðrætt um, að ekki mætti ætl-
ast til þess að háttvirtir stjórn-
arandstæðingar liefðu nokkuð til
málanna að leggja, annað en
þetta niðurrif háttvirts þing-
manns.
Háttvirtur þingmaður hefir á
þessum tveimur klukkustundum
eða klukkustund og þremur
stundarfjórðungum, þangað til
hann kom að afsökununum í lok
in, fordæmt tillögur ríkisstjórn-
ar að meginstefnu til, og í ein-
stökum atriðum. En í lok ræðu
sinnar segir svo háttvirtur þm.,
þegar hann finnur missmiðin
allt í einu, að það inegi ekki ætl
azt til þcss af stjórnarandstöð-
unni að liún geri tillögur. Til
þess skorti hana öll skilyrði. Það
eigi ekki að ætlast til þess að
stjórnarandstaðan geri tillöguri;-
ar út í bláinn. En háttvirtur þm.
telur sig hafa skilyrði til þess að
fordæma tillögur ríkisstjórnar-
innar ekki aðeins að megin-
stefnu til heldur og' í einstökum
atriðum.
Háttvirtur þingmaður á að vita
það, að hér verður að fara tvennt
saman, að sá, sem þykist hafa
þekkingu til þess að fordæma,
ekki aðeins að meginstefnu til,
heldur einnig' í einstökum atrið-
um, tillögum ríkisstjórnarinnar,
verður að gera tillögur sjálfur.
Hann verður að segja lil sjálfur
hvað hann vill gera.
Það er ekki hægt að sleppa
með það að fleygja sér flötum,
eins og háttvirtur þingmaður
Gullbringu- og Kjósarsýslu gerði
hér i lok ræðu sinnar, því að
hann fleygð'i sér bókstaflega flöt
um'og grátbændi háttvirtan þing
heim og stjórnina, að ætlast ekki
til þess að þeir gerðu tillögur.
Þá skorti þekkingu og hvernig
gætu þeir gert það út í bláinn.
Þetta gerði háttvirtur þingmað
ur eftir að hafa í sjö stundar-
fjórðurtga lagt dóm á tillögur
ríkisstjórnarinnar að megin-
stefnu til og í einstökum atrið-
um. Nei svona sleppa menn ekki,
háttvirtur þingm’aður Gullbringu
og' Kjósarsýslu. Og þess vegna
spyr ég nú Sjálfstæðisflokkinn,
og' ég spyr hann ekki einn, öll
þjóðin spyr, öll þjóðin spyr, og'
vegna þess að háttvirtur þing-
maður er búinn að tala eins og
sá, sem hefir þekkinguna, um til-
lögur okkar, bá verður hann að
segja hvað liann vill.
Vill Sjálfstæðisflokkurinn
gengisbreytingu? Ef þeirri spurn
ingu verður svarað neitandi, þá
spyr öll þjóðin: Sjá þeir leið til
þess að lækka uppbæturnar frá
því sem stjórnin gerir ráð fyrir
í sínum tillögum? Og þriðja
sþurningin er, og henni verða
þeir einnig að svara: Hvernig
vilja þeir deila byrðunum, ef
þeir vilja ekki gera það eins og
stjórnin leggur til og þeir hafa
skUyrðisIaust lýst sig andvíga.
Það ætlast enginn til þess að
þeir svari þessum spurningum í
kvöld, en þeir verða að svara
þessum spurningum á meðan
þetta mál er til meðferðar hér
á Alþingi. Það er ekki ég einn
sem spyr. ÖII þjóðin spyr um
þetta.
Umræðufundur á
Alþingi stóð
fram á nótt
Umræðurnar um efnaliagsmála-
frumvarp ríkisstjórnarinnar stóðu
lengi dags í gær og kvöldfundur
stóð yfir í neðri deild, þeg'ar gengið
var frá blaðinu «til prentunar.
Fundur hófst í deildinni nokkru
fyrir klukkan tvö og flutti Iler-
mann Jónasson forsætisráðherra
þá langa og ýtarlega framsögu-
ræðu um efnaliagsmálin. Er ságt
frá lienni á öðrum stað hér í blað
inu. Síðan tók Lúðvík Jósefsson
sjávarútvegsmálaráðherra til máls
og talaði um efnahagsmálin al-
mennt, rakti meðal annars þa3 ó-
réttlæti, sem framkvæmd núver-
andi vísitöluskipulags veldur í
mörgum tilfellum. Síðan flutti Ó1
afur Thors mjög langa ræðu. Ey-
steinn Jónsson fjármálaráðlierra
fiutti örstutta ræðu sem hitti svo
í mark, að Ólafur stóð uppi varnar
laus, að lokinni sinni löngu ræðu.
Að lokun kvöldmatarliléi tók
Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð-
herra til máls. Itæddi mikið um
efnahagsmálin almennt og lirakti
ýmsar fjarstæður í málflutningi
Sjálfstæðismanna um þau.
Söngför Karlakórs
Bandarískir iðnrekendur og Carls-
berg starfsmenn með F. L
Akureyrar
Akureyri í gær. — Karlakór Akur-
eyrar heldur samsöng í Nýja bíói
á Akureyri í dag klukkan 2 og á
laugardaginn kl. 5.
Söngstjóri er Askell Jónsson.
Einsöng með kórnum syngja Jó-
hann og Jósteinn Konráðssynir og
Eiríkur Stefánsson. Undirleikari er
Guðrún Kristinsdóttir. Ákveðið er,
að kórinn fari söng'för til Suður-
lands hinn 5. júní. Mun kórinn þá
syngja í Reykjavík og á mörgum
öðrum stöðum víða um Suður- og
Suðvesturland.
Nemendatónleikar
Akureyri í gær. — Tónlistarskól-
inn á Akureyri efnir til nemenda-
tónleika sunnudaginn 18. maí. 12
nemendur leika einleik á píanó,
fiðlu og orgel. Auk þess verður
samleiikur nemenda á fjórar fiðl
ur. Skólastjóri Tónlistarskólans er
Jakob Tryggvason. Tónleikarnir
hefjast klukkan 5 eftir miðdegi.
Farþegum Flugfélags íslands milli landa erlendis fjölgar stöðugt, einkum
síðan Viscount flugvélarnar hófu flug á leiðum félagsins fyrir rúmu ári.
í fyrradag flutti Hrímfaxi hóp bandariskra iðnrekenda frá Glasgow til
Kaupmannahafnar og sama dag voru einnig nokkrir starfsmenn Carisberg
ölverksmiðjanna í Skotlandi, sem verið höfðu í kynnisferð í Danmörku,
með'al farþega frá Kaupmannahöfn til Glasgow. Myndin er af þeim Carls-
bergmönnum við komuna tii Glasgow. (Ljósm. Sv. Sæm.j.
Nokkur rekstrarhalli varð hjá
Kaupf élagi Reykjavíkur og nágrennis
Félagií vill hefja byggingu verzlunarhúss
á horni Smiðjustígs og Hverfisgötu
Aðalfurdur Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis var hald-
inn í Tjarnarkaffi í Reykjavík sunnudaginn 11. mai 1958.
Fundinn sátu 104 fulltrúar af 140, sem rétt áttu til fundar-
setu, félagsstjórn, framkvæmdastjóri og endurskoðendur, svo
og nokkrir starfsmenn félagsins.
Fundarstjóri voru kjörnir Stein-
þór Guðmundsson og Guðmundur
Illugason, en fundarritarar Þór-
hallur Pálsson og Gunnar Árna-
son.
Formaður félagsins, Ragnar ÓI-
afsson, hæstaréttarlögm. flutti
sikýrslu félagsstjórnar. — Ræddi
hann um hvaða ástæður lægju til
hinnar slæmu rekstrarafkomu á
árinu, og tillögur til úrbóta. Enn-
fremur ræddi hann um húsnæðis-
mál félagsins, og lagði áherzlu á
að hafist yrði handa um byggir.gu
framtíðarhúsnæðis á lóð félagsins
á horni Hverfisgötu og Smiðju-
stígs var því samþykkt einróma eft
irfarandi tillaga, sem borin var
fram af félagsstjórn:
„Fundurinn telur nauðsyn að
félagið eignist sem allra fyrst
verzlunarhús í miðbænum fyrir
starfsemi sína. Hann felur því
(Framhald á blaðs. 2).
Stjómarfrumvarp um lífeyrissjóð
togarasjómanna er komið fram
RíkissjóíSur leggur fram nokkurt stofnfé, sjó-
menn greiða 4% af launum, atvinnurekendur 6%
Ríkisstjórnin lagði í fyrradag fram á Alþingi frumvarp um
lífeyrissjóð togarasjómanna, er tryggja skal þessum starfs-
mönnum, ekkjum þeirra og börnum lífeyri eftir reglum, sem
frumvarpið ákveður. Ríkissjóður leggur sjóðnum fram nokk-
urt stofnfé en sjóðfélagar greiða einnig iðgjöid í hann, en
þeir geta allir orðið, sem lögskráðir eru á íslenzka togara.
Óeirðir halda áfram í Libanon og
Bandaríkin senda þangað létt vopn
Ríkisstjórnin hefir að mestu misst
tökin utan höfuðborgarinnar Beirut
Lundúnum, 14. maí. — Ástandið í Líbanon er enn mjög
viðsjárvert og segja fréttaritarar, að ríkisstjórnin hafi í raun-
inni engin tök lengur úti á landsbyggðinni. Þar ríki ringul-
reið og stjórnleysi. í Beirut er hins vegar kyrrt í bili, þar eð
hvorugur aðili þorir að ráðast á hinn.
Frumvarp þetta er samið af
nefnd, sem sjávarútvegsmálaráð-
herra skinaði 10. maí 1957. Formað
ur hennar var Ólafur Jóhannesson
prófessor, en aðrir nefndarmenn
Eyjólfur Jónsson, lögfræðingur,
Guðmundur J. Guðmundsson, Jón
Sigurðsson og Tryggvi Helgason.
Tryggingastofnunin sér um af-
greiðslu og reikningshald sjóðsins.
Sjóðfélagar greiða 4% af launum
sínum sem iðgjöld í sjóðinn gn
launagreiðandi greiðir 6% af laun
um sjóðfélaga.
Hver sjóðfélagi, sem hefir greitt
iðgjöld í sjóðinn í 10 ár eða lengur
og er orðinn 65 ára á rétt á árleg-
um ellilífeyri úr sjóðnum og fara
þau ellilaun hækkandi eftir því
sem starfstíminn er lengri. Það
telst starfsár ef sjómaður hefir tek
ig laun á togara 9 mánuði alman
aksárs.
Einnig greiðir sjóðurinn nokk-
urn örorkulífeyri og við andlát
sjóðfélaga, er greitt hefir iðgjöld
í tíu ár eða lnegur greiðist ekkju
hans lífeyrir, svo og börnum hans.
Hér er um að ræða mikilsvert
hagsmunamál fyrir togarasjómenn
enda er þess full þörf að tryggja
afkomu þeirra sem bezt.
St'jórnarandstæðingar halda
nokkrum stöðum í borginni og' hef
ir herlið stjórnarinnar ekki gert
neina tilraun i dag til að hrekja
þá á brott. Er bersýnilegt, að aðil-
ar bíða átekta. Uppreisnarmönn-
um hefir mistekizt að koma stjórn-
inni frá, en stjórnin hins vegar
ekki tekizt að berja þá niður.
Eisenhower sendi vopn.
Á fundi með blaðamöniuim í dag
sagðist Eisenhower fylgjast mjög
náið með atburðunum i Líbanon.
Síðar var tilkynnt, að Bandaríkin
væru a'ð senda ,.lögregluvopn“ eins
og það var orðað, til Líbanon. Var
sagt, að urii væri að ræða gasleg-
undir og skotfæri. Chamoun íorseti
hefir rætt \dð sendiherra vestur-
veldanna og suma oftar en einu
sinni. Ríkisstjórnin hefir opinber-
lega sakað Arahiska sambandslýð-
veldið um að standa á bak við upp-
reisn þessa og hótað að kæra málið
til S. Þ.
Útlendingar flýja.
Útlendingar úti á landsbyggðinntl
streymdu í dag til höfuðborgarinn-
ar. Olíufélagið, sem hafði bæki-
slöðvar í Tripoliborg, hefir hætt
störfum, enda olíuleiðslurnar stór-
skemmdar. Bandarískt herskip fór
i dag til Tripoli að taka þar banda-
ríska borgara. Nokkur bandarísk
'herskip, sem stödd voru í Gibralt-
ar og áttu að clveljast þar no'kkra
daga. héldu þaðan á brott í skynd-
ingi í lcvöld austur á bóginn.
Kommúnistar not-
færa sér óvinsæld-
ir Bandaríkjanna
Wasliing'ton, 14. maí. Eisenliower
forseti fyrirskipaði í dag, a'ð' her-
Iið skyldi sent til Puerto Rico,
sem er skamman veg frá Caracas
liöfuðborg Venezúela, en Nixon
varaforseti og kona hans urðu fyr
ir múárás þar í gærdag. Veittist
æstur lýður að bifreið' þeirra
kastaði grjóti ög braut flestai- rúð
ur í bílnum, en þau hjón sluppu
þó óineidd. Forsetinn hefir einn
ig sent herlið *til bækistöðva á
Cubu. Eisenhower kvaðst ekki
sjá ástæðu til þess að Nixon hætti
af þfessmn sökuiu við fyrirhugaða
Evrópuferð sína í haust.
Vísitalan 192 stig
Kauplagsnefnd hefir reiknað út
vísitölu framfærslu'kostnaðar í
Reykjavík hinn 1. maí s. 1. og reynd
ist hún vera 192 stig.