Tíminn - 28.10.1958, Blaðsíða 9

Tíminn - 28.10.1958, Blaðsíða 9
T f MIN N, þriðjudaginn 28. oklóber 1958. 9 tytt ti(j tk IK- Clatnp* 24. dagur flúði Katharine inn í eldhús ið. Þar hvíslaði hún titrandi vörum: — Philip — Philip. 19. kafli. — Ráðskona, endurtók Phil ip og virtist ekkert skilja enn. — Já, manstu ekki eftir því, að við ákváðum að fá okkur ráðskonu áður en þú fórst í ferðina? — Eg var búinn að gleyma því. Hann gekk á eftir Val- erie inn í aðalstofuna, lík- astur blindum manni. Hugur hans var langt burtu. Hann var'að reyna að rifja upp fyr ir sér gamla atburði. Hugur lians var í uppnámi. Hann reyndi þó að tala létt og eðli lega við Valarie. Hann hafði ekki séð hana í sex vikur. — Hún er reglulega dugieg og myndaríeg, auðsj áanlega mjög áreiðanleg manneskja, sagöi Valarie. Hún rétti hon um vínglas. Hann svaraði engu. — Jæja, hvað er aö frétta? spurði hún svo brosandi. Philip kyssti létt á vang- ann, sem hún rétti náðarsam legast að honum. — Þú ert eins og blóm í eggi. Ljómarðu svona vegna komu minnar, eða er það kanpske allt of gott til þess aö geta veriö satt? Hann sagði þetta eins og ósjálfrátt því að hugur hans var á öðr um slóðum. Hann var suður í Sviss — leitaöi þrú ár aftur í tímann. Hann mundi svo sem vel eftir henni, en þessa stund ina mundi hann ekki hvað hann hafði kallað hana „abba dísina“ — en hvað hét hún annars? — Eg er aö fara út — var búin að ákveða þaö fyrir löngu. Eg bjóst ekki við þér heim strax. Mér þykir þaö leitt, en ég get ekki hætt við það, sagði Valarie. — Eg skil það. Láttu mig ekki breyta í neinu fyrirætl unum þínum góða mín. — Venner mun annast þig vel. — Venner? Er þaö sklrnar nafn hennar? — Nei, auðvitað ættarnafn- ið. Philip hlepti brúnum. — Já, auðvitað. Það er kulda- legt nafn, finnst þér það ekki? — Nei, því finnst þér það? Hún virjðist kunna því vel. — Jæja, mér er sama. Það er annars ekki svo auövelt aö fá ráðskonu núna. Þetta var sannarlega tilvilj un. Hann hafði lent i mörg um ævintýrum um' dagana, en aldrei öðru eins og þessu — að hitta konu, sem hann hafði kynnzt í Sviss fyrir þremur árum aftur á sinu eig in heimili. Hann settist og kveikti sér í sígarettu. — Þegar þú kynnist henni betur, mun þér finnast Venn er-nafnið hæfa henni ágæt- lega. Eg mán annars ekki, hvert skírnáfnafn'i hennar er. Hún heitir kannske Rudy eða Rose. Jæja, nú verð ég aö fara, sagði Valarie hlæjandi og kyssti hami. létt. — Eg tala betur við þig í fyrramáliö. Þú verður auðvitað steinsofnaö- ur, þegar ég kem heim í kvöld. — S.kemmtu þér vel. -—Hringðu á uágfrú Venn er, ef þig iangar í eitthvað. Eg bað hana að hafa til mat handa þér. Vertu pæll á meö an. Philip lét sig það litlu skipta, þótt hún færi út. Hann sat lengi kyrr og ‘reyndi að átta sig á þessu öllu saman. Svo reis hann á fætur og fékk sér vinblöndu í glas. Alit var kyrrt og hljótt í húsinu. Hann var hér aleinn innan veggja á samt konunni, ^sem hann hafði kynnzt í Sviss fyrir þrem árum og nærri verið bú inn að gleyma. Var þetta einskakr tilviljun, eða lá eitthvað aö'baki? Hún hafði verið óven|uleg kona um margt, og honum haíöi getizt vel að henúi. En hvað vissi hann um hana? Hún hafði sagt honum dapuriega sögu, sem auövitaþ gat verið uppspuni einn. Hvers vegna hafði hún elt hann 'inn á heimili hans? Líklega hafði hún fjárkúgun í huga. Hann hristi þó þessa hugsun þegar af sér aftur. — Aumingja konan, ég get ekki trúað þvi um hana. Samt sem áður hlaut einhver skýr- ing að vera & þessu. Philip rétti úr sér, saup á glasi sínu og gekk fram í for salinn. Þaöan gekk hann von bráðar inn í eldhúsið. Þar var enginn. : — Hvar getur diún verið? Hún var dálítið undrandi, er hún sá mig. Hann’ gekk aftur inn í stofuna. Valarie hafði ságt: Iiringdu á hana, ef þig langar í eitt- hvað. Honum var iitið um það gefið, en um amíað var víst ekki að velja. Hann gekk þó tram og aft ur um stofuna nokkra stund og hugsaði um „abbadísina“. ! Hún hafði verið nær fertugu, ógift, ekki ólagleg en þó ekki sú kvehgerö, sem hann hreifst af. Þaö var ótrúlegt, hvað menn gátu tekið5 sér fyrir hendur, þegar þéim leiddist. En hún haíöi va'kið forvitni hans og verið svo nærgætin aö binda endi á samvistirnar áður en til vandræða kom. Hann sneri sér við. Hún stóð í dyrunum. Hún var fö! og ottasvipurinn á andliti henn ar leyndi sér ekki. Þetta voru sannarlega ó- væntir endurfundir, sagði Philip. — Ekki síður' fyrir mig, sagði hún ráðvillt. Orðin komu á stangli eins og hún væri móö af hlaupunum. — Eg vona, að þú-trúir því, aö þegar ég réðst' í þessa vist, þá hafði ég enga hugmynd um, að þú ættir hér heima. Eg vissi ekki einu sinni, hvað þú hézt að ættarnafni. Þú varst aðeins Phiiip í minni minningu. Eg varðisí öllum freistingum til þess aö leita þig uppi eða fá meiri upplýs- ingar um þig þótt ég hefði auðvitað getað fengið þá vitneskju í gestabók gistihúss ins. Það hefði kannske veriö betra, að ég hefði gert það, þá hefði ég að minnsta kosti ekki verið hér núna. — Komdu inn og fáðu þér sæti, sagði Philip. — Nei, ég vil það ekki. Eg er hingað ráðin sem ráðskona og það var kona þín, sem réði mig. — Við erum ein hér í húsinu og getum því talað saraan. Gerðu svo vel að fá þér sæti. Viltu vínglas? Hún áfþakkaði það með handhreyfingu. — Þetta er ófært, ég verð að' fara héðan og fá mér ann að starf. — Hvers vegna? — Hvers vegna, spyr þú. — Já, ég spurði. Nú mundi hann allt í einu hvað hún hét. Komdu inn, Katharine, og talaðu við mig. Hún settist á stólinn, sem hann bauð henni. — Eg trúi þér, sagði hann. — Þú varst alveg eins undr- andi og ég á þessum endur- fundum. Hvernig stendur á þessu? Ertu nú oröin svo iiia stödd f j árhagslegá, að þú verð ur að gerast vinnukona? — Já, ég erfði ekki mikið fé eftir foreldra mina, og ég er búin að eyða þeim öllum. á siðustu þrem áruuum. Eg hefði auðvitað átt að fara í vist fyrr, en . . . — Þú ert þá enn ein og yf irgefin í þessum heimi? Líf ið hefir ekki veitt þér nein gæði enn, Katharine. Og nú hefir þú helzt í hyggju aö fara héðan strax? — Hvað get ég gert annað? — Hvorugt okkar hjónanna hefir rekiö big burt. Hvaða á- stæöa er þá til þess að fara? —Eg get ekki dvaliö hér eins og iiú er komið. Það lilýt ur þú að vita, Philip — fyrir gefðu, herra Mason. — Já, þú verður víst ao venja þig á að kalla mig Mas on, þaö ætti aö' takast. En ég neita alveg að kalla þig ung frú Venner. Heyrðu Kar.harine, hefir þér aldrei komið til hugar, aö þú beygir þig fyrir valdi ilira örlaga alveg að nauðsynja- lausu?. Ef þú hefði neitað aö þjóna foreldrum þínum eins og þú gerðir, væri ævi þín allt önnur núna. Og nú ætiar þú að flýja af hólmi fyrir öör um skugga. Hún roðnaði. Þetta var nýtt viðhorf. — Hér þekkir enginn til þess, sem á milli okkar var — um það vitum við ein. Þú þarft ekki að forðast það eins og glæp. Kynning okkar var góð meðan hún varði. Þú þarft ekki að gera annað en gleyma henni. Eg er þakkiát ur — það er allt og sumt. Mér þætti illt til þess að vita, Katharine, 'ef þessi stutta kynning ylli þér vandræöum einum og þjáningu. Hún sat þögul og hlustaði á hann — hlustaði á rödd mannsins, sem aöeins leit á þessa kynningu þeirra sem stutt ævintýri — líklega eitt af mörgum. Raunar hafði hún vitað þetta og sætt sig við það, og þess vegna hafði hún haft styrk til þess aö fara frá honum með þökkina eina í huga. Ný bók fyrir ungar dömur: Ung og aðlaðandi eftir OLGU GOLBÆK Þýðandi: ÁLFHEIÐUR KJARTANSDÓTTIR Eins og nafn bókarinnar ber með sér er ætluð ungum stúlkum. Um efni hennar er að vísa til nokkurra kaflaheita: Líkamsæfingar, Kynþroskaskeið og vandamál þess, Fæðið, fegurðin og heilbrigðin, Umgengnin við hitt kynið, Hvernig hægt er að vera vel til fara með litlum tilkostnaði, Hvernig má fá fallegan, brúnan litar- hátt á sumrin. STÚLKUR! Kaupið bókina strax í næstu búð. Heimskringlubók hún Wóg .■.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.V.VAW^ í í I; Hjartans þakkir færi ég börnum mínum, tengda- 5 I; fólki, sveitungum og öðrum vinum, sem glöddu mig !; með gjöfum og nærveru sinni á 70 ára afmælisdag- !■ ;■ inn og gerðu mér daginn ógleymanlegan. í ■■ Guð blessi ykkur öll. ! AV.V.V.V.V.V.VV.'.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.VAV.’.VVJVU Sigurður Kristjánsson, Hnífsdal Þakka af öllu hjarta samúð ykkar allra vegna fráfalls mannslns míns Sveinmars Jónssónar. Guð verndi ykkur. Hólmfríður Þóroddsdóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.