Tíminn - 18.07.1959, Side 10
TÍMINN, laugardaginn 18. jáU 195»,
KQ
íslandsmótiS: Kefiavík—Valur 3—2
Leikurinn gott dæmi um það hvað isl. knatt-
spyrnumönnum er margt ábótavant á grasvelli
Það rigndi mikið í Njarð-
vík á fimmtudaginn, en stytti
að mestu upp rétt áður en
leikur Vals og IBK hófst kl.
20,30 um kvöldið. Fyrir leik-
inn höfðu fimmtu flokkar
sömu félaga þreytt með sér
og sigruðu Keflvíkingar með
þremur mörkum gegn engu.
Hið ákjósanlegasta knatt-
spyrnuveður var því meðan
1. deildar leikurinn stóð yfir,
en leikinn vann IBK með
þremur mörkum gegn tveim-
ur. Logn var og raka-hiti í
Jofti.
Völlurinn var að sjálfsögðu
blautur og þungur, — og ekki
bætti úr að hann hafði verið
sleginn stuttu áður en leikur
Kristleifur Guðbjörnsson
Á síðari degi afmælismóts'
Ármanns í frjálsum íþróttum á
Melavellinum í fyrrakvöld setti
Kristleifur Gúðbjörnsson ágætt
mj:t í 2000 m íhlaupit Hann
hljóp vegalengdina á 5:27,0
mín., en eldra metið, sem Svav-
ar Markússon átti. var 5:29,2
mín. Kristleifur hljóp alveg sam
keppnislaust, og ætti því í harðri
keppni að geta bætt þennaiv
tíma mjög.
Finnsku íþróttamennirnir sigr
uðu með miklum yfirburðum í
greinum sínum. Strand hljóp
200 m á 22,0 sek;, sem er að-
eins broti úr sek. lakara en hann
á bezt á vegalengdinni. Enginn
af okkar beztu hlaupurunv tók
þátt í hlaupinu. Horppu kastaði
sleggju 57,39 m, en Þórður B.
Sigurðsson varð annar með
50,08 m. Á nvótinu sigraði Gunn-
ar Huseby í kúluvarpi, varpaði
14,72 m, Ingimar Jónsson í 400
m grindalvlaupi á 59.7 sek., Val-j
bjiirn Þorláksson í stangarstökki, ■
stökk 4,20 m, Lárus Lárusson í
100 m Ivlaupi drengja á 12,2
sek. og sveit Ármanns í 1000
m boðlilaupi.
hófst, — en var illa rakaður, sem
orsakaði óþarfa hálku á vellrt-
um. — Þessar aðstæður urðu til
að sanna enn betur en áður, að
við eiigum nvikið ólært viðvíkj-
andi því að leika knattspyrnu á
grasvelli. Kemur þar til greina
ekki aðeins aðbúnaður vallarins,
lveldur ekki hvað sízt franvkvæmd
leiksins í heild, — óhentugur fóta
útbúnaður leikmanna, — að ekki
sé minnst á vanþekkingu leik-
manna á fcenjum knattarins á
blautu grasinu. •—
Handapat og meiðsli
Svipur leiksins að undantekn-
um einstaka leikköflum var því
ekki knattspyrna, þar sem knöttur
inn er látinn fara á milli manna
með öruggum, ákveðnum og hugs
iuðum sendmgum. Heldur eiri-
kenndist leikurinn af þófi, samstöð
um, rennslum og árekstrum, sam-
fara hörku, óviðráðanlegum hraða,
handapati og meiðsium leik-
manna. Vart er hægt að áfellast
leikmenn eingöngu fyrir lélegan
leik, því þeir eru ekki slíkum að-
stæðum vanir og vita hreinlega
ekki, hvernig á að nvæta þeim. --
Er sannarlega gott til þess að
vita að grasvöllur fyrirfinnst ekki
í Færeyjum, en þar eiga nokkrir
þessara pilta að leika með B-
landsliðinu síðar í þessum mán-
uði.
Þýðingarmikið starf
Satt er það að eins og það er
staðreynd að í vel leiknum knatt-
! ispyrnukappleik verður inærveru
dómarans lítið vart, — þá er það
og eigi síður staðreynd að störf
dómarans koma fyrst alvarlega
til 'greina, er knattspyrna er illa
leikin og brot á leikreglum tíð.
— Svo þýðingarmikið getur starf
dómarans verið að með ákveðni
og skeleggri framkomu, góðri
yfirsýn, yfirferð og túlkun Ieik-
veglna — getur hann beinlí'nis
breytt hörku og skapvonzku í
hlýðni og leikgleði.
Með ofangreint í huga get ég
vart hugsað mér betra tækifæri
fyrir dómara, til að sýna getu
sína, en þennan leik Vals og
IBK. — En dómarinn, Halldór
Sigurðsson, gjörféll á prófinu og
átti drjúgan þátt í því, að leik-
urinn varð óþarflega harður, lé-
legur og leiðinlegur. — Halldór
Sigurðsson or prýðispiltur og
góðum gáfum gæddur. En það
nægir bara ekki til að koma út
a knattspyrnuvöll „dresseraður
upp“ með flau'tu í munni og ætla
sér að dæma 90 nvínútna knatt-
spyrnukappleik — oft á tíðum
þýðingarmikinn leik. Það er því
miður áberandi galU á knatt
spyrnudómurum í dag, hvað þeir
eru í lélegri líkamlegri þjálfun,
til þess að dæma Ieiki. Níutíu
mínútna hlaup og skokk um völl-
inn er ekki svo stuttur tími, ef
krafan um skarpa hugsun og fulla
dómgreind er höfð í huga. Vil ég
í þessu sambandi vitna til þess er
hinn gamalkunni og reyndi dóm-
ari Guðjón Einarsson sagði í við-
tali er tjirtist hér á íþróttasíð-
unni, í tilefni af 30 ára dómara
■starfi hans: Til þess að ná ár-
angri sem knattspyrnudómari,
þarf sá, sem tekur að sér dóm-
arastörf að hafa marga góða eig-
inleika. Hann þarf að hafa góða
greind og stjórnsemi. Hann þarf
rð kunna lög og reglur til hlítar.
Og til þess að ná einhverjum
árangri, þarf hann að æfa og dæma
þrotlaust. Það verðar enginn
knáttspyrnudómari nem|a með
margra ára þjálfun í starfi.
Leikurinn
Lið Vals mætti til leiks án Al-
. berts iGuðmundssonax og la;nds-
liðsmannsins Árna Njálssonar.
Veiktist Iiðið sem gefur að skilja
mikið við þessa breytingu. Þó
byrjaði liðið vel og virtist ætla
að hafa í fullu tré við Keflvík-
inga, en IBK vann fljótlega á og
fór með sigur af hólmi, sem má
þakka hörku frekar en skipulögð
um leik. — Beztir í liði Vals og
þeir einu sem sýndu einhvern
Fara til
Færeyja
Blaðinu harst í gær eftirfar-
andi tilkynning frá Knattspyrnu-
sambandi íslands:
„Ákveðið er að þessir aðilar
faki þátt í Færeyjaferðinni ó veg
um IKnattspyrnusámbands ís-
lands 25. júií til 5. ágúst n.k.
Ragnar Lárusson, varafornvaður
KSÍ, fararstjóri. Páll Ó. Pálsson,
varamaður í stjórn K.S.Í. Alfreð
Alfreðsson, form íþróttabanda-
lags ísfirðinga. Karl Guðmunds-
| son, þjálfari K.S.Í.
Leiknvenn:
Gunnlaugur Hjálmarsson, Val,
Þórður Ásgeirsson, Þrótti. Einar
Sigurðsson, Í.B.H., Helgi Hannes-
son, Í.A.Hörður Guðmundsson,
Í.B.K. Magnús Snæbjörnsson, Val.
Guðmundur Guðmundsson, Í.B.K
Ragnar Jóhannsson, Fram, Ingvav
Elíasson, Í.A. Guðmundur Óskars-
son, Fram. Högni Gunnlaugsson,
Í.B.K. Björn Helgason, Í.B.Í. Bald
ur Seheving, Fram. Grétar Sig-
urðsson, Fram. Gísli Sigurðsson,
Í.A. Guðm. Sigurðsson, Í.A.‘
vilja á að leika knattspyrnu voru
Gunnar Gunnarsson og Björgvin
Daníelsson, en upp úr samvinnu
þeirra skoraði Gunnar Gunnarsson
bæði mörk Vals, það fyrra á 10
mín. og hið síðara á 38 mín. leiks-
ins. Má merkilegt heita í saman-
burði við aðra leikmenn, er heyrzt
hefur að hafi verið valdir í B-lands
liðið, að Gunnar Gunnarsson
skuli ekki koma þar til greina,
— !þó ■ekfci vaari nenva sakiír
reynslu hans. —
Keflavíkurliðið var skipað
sömu mönnum og undanfarna
le.iki. Og má það ‘kynlegt heita
að þeir telji sig hafa efni á að
láta jafn snjallan leikmann og
Skúla Skúlason horfa á leik eftir
leik. Högni, Guðmundur og Haf-
steinn voru sem fyrr þeirra
beztu menn. Og Páll hristi nú
skemmtilega slenið- af sér og
sýndi hver afbragðs maður lvann
á fil að vera. Páll skilaði stöðu
sinni vel. Var fljótur og snöggur
og lé'k, e;f nveð þurfti þrjá 'til
fjóra menn af sér. Fyrsta mark
IBK gerði Högni á 18 mín. Ann-
■að markið PþM, eftir að hafa
leikið laglega á bakvörð Vals.
Þriðja og sigurmarkið gerði svo
Haukur á 79. mín. en alls skor-
aði hann þrjú mörk, en tvö dæmd
ógild vegna rangstöðu. Þegar á
níundu mínúlu leiksins kom fyrsta
óhappið fyrir, er Hörður Guð-
nvundsson ÍBK (Hann hefur ver-
vð valinn í B-landsliðið) rann illi-
Ingi R. og Friðrik
Skákeinvígi Friðriks
og Inga Jóhannssonar
í blaðinu í gær var skýrt
frá því, að Ingi R. Jóhanns-
son og Friðrik Ólafsson
myndu tefla fjögurra skáka
einvígi, og hófst það í gær-
kvöldi. Önnur skákin verður
tefld á morgun. Einvígi þetta
er undirbúningskeppni fyrár
Inga R., sem mun tefla á
Norðurland'iamótinu í skák,
sem hefst í Svíþjóð um næstu
mánaðamót. Vegna mistaka í
blaðinu í gær féll niður nær
helmingur greinarinnar og
verður hún því birt hér aftur
í heild.
Ekki þarf að efa að íslenzkum
skákunnendum mun leika mjög
forvitni á hvernig þessu einvígi
lyktar, og má því búast' við mikilli
aðsókn í Listamannaskálann tafl-
dagana Önnur skákin verður á
sunnudag, þriðja á þriðjudag og
einvíginu lýkur á fimmtudag.
Þrisvar íslandsmeistari
Blaðamenn ræddu í gær við
stjórn Skáksambands íslnnds og
skýrði formaðurinn, Ásgeir Ás-
geirsson, svo frá, að efnt væri til
þessa einvígis af tveimur ástæðum.
í fyrsta lagi til að gefa skák-
unnendum kost á að sjá tvo fræga
ustu skákmenn landsins tefla og
í öðru lagi, að gefa Inga R. kost
á góðri æfingu fyrir Norðurlanda
imótið, sem hefst í Örebro í Sví-
þjóð um næstu mánaðamót, en
Ingi mun teflá þar í landsliðs-
flokki. Skákstjóri í einvíginu verð
ur Gísli ísleifsson ,en skákskýrend
ur Baldur Möller og Guðmundur
Arnlaugsson.
Tvær ástæður
Ingi R. Jóhannsson er 22 ára,
útskrifaður úr Verzlunarskóla ís-
liinds. Hann hefur þrívegis orðið
íslandsmeistari, fyrst 1956, en
síðan 1958 og aftur nú í ár. Þá
hefur Ingi fimm sinnum orðið
Reykjavíkurmeistari og oftsinnis
hraclaklíikmeistari landsi»is. Ingi
tefldi á 2. horði fyrir ísland á
Ólympíuskákmótinu í Moskvu
1956 og hlaut 52% vinnÍTL’ga, en
er hann tefldi á 1. borði á Ólymp
íumótinu í Munchen 1958 vakti
hann verulega athygli. Hanti
hlaut 63% vinninga þá.
Einn af kandídötunum
Skákferil Friðriks Ólafssonar
er víst óþarfi að rekja fyrir ís-
lendinga'. Hann er 24 ára, stúd-
ent frá Menntaskólanum og stund
ar nú nám í lögum við háskól-
ann. Hann hefur nú um sex fil
sjö ára skeið borið af öðrum ís-
tlenzkum iskákmönnum og getið
sér og 'landi sínu frægðar á er-
lendum, vettvangi oftar en- einu
sinni, enida nú einn af kunnustu
skákmönmum heimsins. Stórmeist-
ari varð hann 1958, en hafði áð-
ur um tveggja ára skeið borið-tit-
il alþjóðameistara.
Endurtekur sagan sig
Þá sagði Ásgeir: Fyrir 11 ór-
um varð Baldur Möller Norður-
landameistari í ská'k, hinn fyrsti,
sem ísland eignaðist. Þá var teflt
í Örehro og við vonum, að Jtogi
fái með einvígi þessu það góða
æfingu að afrek Baldurs verði
endurtekið í Örebro.
Fjórir aðrir íslenzkir skákmenn
munu keppa á mótinu í Örebro,
þeir Jón Þonsteinsson, Björn Jó-
hannesson, Ólafur Magnússon og
sennilega Reimar Sigurðsson, all-
ir í meistaraflokki.
Þá mlá að lokum geta þess, að
IBent Larsen, ®tórmeistari, verð-
ur aðstoðarmaður Friðriks Óla'S'
sonar á kandídatamótimi, seiri
verður í haust í Júgósfavíu.
húss, hefst í Hafnarfirði á sunnudaginn
12. handknattleiksmeistaramót
karla, utan húss, fer fram í Hafn-
arfirði að þessu sinni og hefst
næst komandi sunnudag. Leikið
verður á Hörðuvöllum. í mótinu
taka þátt fim|n félög, Ármann,
lega til í inávígi. Tók síg upp
tognun í læri og varð hann að
yfirgefa völlinn. Auk Harðar
fengu margir af báðum liðum j
slæmar býltur vegna áirekstria,
þar á meðal Heimir markmaður;
IBK og Páll Jónsson, úthr. IBK, ‘
sem haltraði um í síðari hálfleik. |
Game
Fimleikafélag Hafnarfjarðar,
Fram, Uingmennrúélagið Aftur-
elding og íþróttafélag Reykja-
víkur.
Mótið hefst eins og áður seg.'r
á sunnudag kl. 4 eftir hádegi og
leika þá Aftui’elding og Fsram, og
Ármann og F.H. Mótið heldur
svo áfram á þriðjudag, miðviku-
dag, hefst báða dagana kl. 8,15,
og laugardag kl. fjögui- og lýkur
á sunnudag 26. júlí.
Ljlð F.H. er isigurstranglegast
í keppninni, en það félag hefur
unnið í síðustu þrjú skiptin. Áð-
ur hefur Ármann sigrað þrisvar,
Fram og Valur tvívegis, en KR
einiu sinni. í fyrsta skipti var
keppt 1948.