Tíminn - 26.09.1959, Qupperneq 12
v tD fv í V,
Suð-vestan stinningskaldi,
skúrir.
Reykjavík: 12 st., Akureyri: 13,
Kaupmh.: 11, London 17, Oslo: 12.
Laugardagur 26. sept. 1959.
OTRULEGIR HRAKNINGAR SKIP-
ROTSMANNA í HÉÐINSFIRÐI
Nýr svissneskur
sendiherra kom-
inn til Islands
Skipstjóriim lá síSubrotiim 17 klukkustundir - Tveir
skipverjar brutust yíir óg'inguf jall - Fólsleg skemmd
arverk unnin á skipbrotsmannaskýli
4 K&f!
LOJXVi, .
Frá fréttaritara T-ímans í Ólafsfirði 24. sept.
SkipbTotsmenn, er komnst af þegar bátur þeirra brotnaði í Héðinsfirði, hafa orðið að
þola ótrúlega hrakninga á þessari öld tæknii og hjálpartækja og er þar fyrst um að kenna
fólslegu skemmdarverki, sem unnið hefur verið á skipbrotsmannaskýtinu þar.
Þag var vélbáturinn Margré't,
NK 49; sem rak þarn aupp. Tveir
skipverja komust yfir ógöngufjall
til Ólafsfjarðar illa til reika,
en skipstjórinn lá á berangri síðu-
brotinn 17 klukkustundir. Nánari
atvik eru á þessa leið:
Undan Hvanndöíum
Vélbáturinn Margrét NK 49 var
á leið frá Siglufirði til Ólafsfjarð
ar s.l. máriudagskvöld. Er hann
var staddur út af Héðinsfirði um
klukkán- 8 bilaði vél hans. Norð-
vestan gola var á og töluverður
sjór. Þegar ekki tókst að koma
velinni í gang, fóru .skipverjar að
kalla í talstöðina á hjálp, en eng
inn heyrði hjálparbeiðni þeirra,
þrátt ; fyrir marg ítrekaðar til-
raunir.
Rak að landi
Meðan þessu fór fram rak bát
inn upp undir Hvanndalaskriður.
í birtingu á þriðjudagsmorgun
var báturinn kominn svo nærri
barimgarðinum að ekki var annað
til ráða en varpa akkeri og ieggj-
ast við fast. En þegar hér var
komið sögu, var talstöðin orðin
óvirk.
Stjónunáiafundir
á Snæfelisnesi
Frambjóðendur Framsóknar-
flokksins, B-listans — í Vestur-
landskjördæmi boða til almennra
stjórnmálafunda á eftirtöldum
stöðum um næstu helgi:
Á Breiðabliki í dag 26. sept-
ember kl. 8,30 síðd. Framsögu-
menn verða Ásgeir Bjarnason,
Gunnar Guðbjartsson og Halldór
Sigurðsson.
f Stykkisliólmi á morgun
27. sept. bl. 3 síðd. Framsögu-
menn verða Ásgeir Bjarnason,
Daníel Ágústínussou og Kristinn
B. Gíslason.
í Grafarnesi kl. 3 e.li. á morg-
un, 27. sept. Framsögumenn
verða Gunnar Guðbjartsson,
Halldór Sigurðsson og Alexander
Stefánsson.
Á gúmbát til lands
Varð þá að ráði, að tveir skip-
verjar, Júlíus Jóhannsson og Karl
Pétursson, vélstjóri, fóru í gúm
bát og héldu til lands, en skip-
stjórinn, Jón Sigurðsson, varð einn
eftir í bátnum, ef ske kynni, að
hjálp bærist á sjó. Var það ætlun
■skipverja að komast í talstöð í
'skipbrotsmannaskýlinu í Héðins-
firði og kalla þaðan á hjálp. Var
það um klukkan 10 á þriðjudags
morgun, að þeir héldú frá bátn-
um. Tókst þeim landtakan, en
igegnblotnuðu að sjálfsögðu.
Skemmdarverk í skýlinu
Komust þei,. Karl og Júlíus úr
fjöru og gekk ferðin inn strönd
ina -sæmilega, en þegar að skip-
brotsmannaskýlinu kom, blasti
við ömurleg sjón. Þar voru rúður
brotnar og talstöðin ónothæf. —
Reyndu þeir nú að þurrka föt sín
lítig eitt en lögðu síðan á brattann
og gengu Rauðsskörð til Ólafs-
fjarðar til þess að sækja hjálp.
Komu þeir þangað kl. 8 á þriðju
dagskvöldið þrekaðir og illa til
reika.
Bátsins leifað
Var brugðið við og fór vélbátur
inn Þorleifui' Rögnvaldsson bátn-
um 'til aðstoðar. Þegar kom á þær
slóðir, er báturinn átti að vera,
sást hann hvergi. Gerðu skipverj
(Framhald á 2. síðu)
Reið á hliðgrind
og meiddist illa
Sauðárkróki í gær. — Það
slys varð hjá Kúskerpi í
Blönduhlíð í Skagafirði síðast
liðinn miðvikudag, að Sigurð-
ur Helgason frá Sólheimum
reið á hliðgrind 1 heimtröð-
inni að bænum með þeim af-
leiðingum að hann höfuðkúpu
brotnaði og var ekki kominn
til meðvitundar, þegar blaðið
vissi síðast í gærkveldi.
Sigurður var á heimleið úr
Silfrastaðarótt, þegar slysið vildi
til. Var orðið áliðið dags þegar
Sigurður fór frá réttinni. Þegar
hann kom út að Kúskerpi þurfti
hann einhver erindi að reka þar
á bænum.
Hliðið lokast
Sigurður fór af baki við hliðið
niður við veginn og opnaði það.
Trégrind var í því með ástrengdu
vírneti og var ekki annað séð en
f
m
Framsóknarfólk í Voga
hverfi, Heimum og Langholti
Efnt verður til skemmtunar í Framsóknarhúsinu uppi,
í dag 26. september kl. 8,30 e. h. — Einar , Ágústs-
son lögfræðingur flytur ræðu, sýndur verður skemmti-
þáttur úr nýrri revíu, bingó og dans. Allir stuðnings-
menn B-listans í Vogahverfi, Heimum og Langholti
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Aðgöngumiðar afhentir í Framsóknarhúsinu í dag. —
Aðgangur ókeypis. Upplýsingar í síma 12942.
Hinn nýi sendiherra Sviss, herra Jean — Frédérie Wagniere, afhenti í fyrra-
dag, fimmtudaginn 24. september 1959, forsefa íslands trúnaðarbréf sitf
við hátíðlega athöfn á Bessastöðum utanríkisráðherra. Myndin var tekin
við það tækifaeri.
hún myndi haldast opin meðan
Sigurður var Mieima við bæinn.
Er hann hafði lokið erindum sín-
um þar, sté hann aftur á bak
hesti sínum og reið honum hratt
niður tröðina og uggði ekki að
sér þegar kom að hliðinu. En
meðan hann var á bænum hafði
hliðgrindin fallið aftur. Reið því
Sigurður hesti sínum á fleygiferð
á virnetið.
Meðvitundarlaus
Hesturinn festist í vírnetinu og
steyptist framyfir sig, en Sigurð-
ur kastaðist af honum út á ak-
brautina. Missti hann strax með-
vitund. Læknir var sóttur í skyndi
sem kom og flutti hann í sjúkra-
hús á Sauðárkróki, en í gær var
fengin flugvél til að sækja Sig-
urð norður og liggur hann nú í
Landakotsspítala, án þess að hafa
nokkru sinni kornið lil meðvit-
undar. Þótt undarlegt megi virð-
ast, mun hesturinn hafa sloppið
ómeiddur úr þessum óförum.
Skarst á handlegg
Blönduósi í gær. — Pétur Björns
son, Felli í Sléttuhlíð I Skagafirði,
■skarst töluvert á handlegg, er
hann var stadur í Stafnsrétt í
fyrradag. Rak hann aðra hendina
óvrt í gegnum rúðu íveitinga-
skála, sem þar hafði verið komið
upp, og fékk af því töluverðan
skurð. Var í fyrstu talið að um
alvarlegt meiðsl væri að ræða og
var Björn fluttur í sjúkrahúsið á
Blönduósij þar sem gert var að
meiðsli hans. Reyndist það ekki
alvarlegt og fór Björn heim við
svo búið. S.A.
GENGUR SAM-
AN MEÐ ÞEIM?
NTB—Washington 25. sept.
Nikita Krustjoff forsætisráS-
herra Sovétrfkjanna og Eis-
enhower forseti Bandaríkj-
anna fóru í kvöld með þyrlu
frá Washington til sveitaset-
urs forsetans, Camp David í
Maryland, en þar munu leið-
togarnir ræðast við um heims
vandamálin. Herter og Grom-
yko verða viðstaddir viðræð-
urnar.
Mikil eftirvænting ríkir í heim-
inum, hvort árangur verður af við
ræðum þeirra Eisenhowers og
Krustjoffs en Krustjoff hefur hamr
uð á því í hinum mörgu ræðum,
sem hann hefur flutt á ferðalagi
sínu um Bandaríkin, að endi verði
að binda á kalda stríðið og að
Bandaríkin og Sovétríkin ættu að
vera fyrirmynd annarra þjóða, um
að lifa saman í friðsamlegri sam-
búð. >
Mikið annríki var í Hvíta húsinu
og sendiráði Sovétríkjanna , dag
er leiðtogarnir ræddu við ráðgjafa
sína til undirbúnings viðræðunum
í Davíðbúðum.
Fer heim á mánudag
Á mánudag leggur Krustjoff af
stað heimleiðis og flýgur án við-
komu beint til Moskvu, en þaðan
fer hann eftir stutta viðdvöl til
Peking til að taka þátt í hátíða-
höldunum, sem fram eiga að fara
til minningar um það, að 10 ór eru
liðin síðan kommúnisíar unnu
fullnaðarsigur á Shiang-Kai-shek.
Almennur kjósenda-
fundur í Eyjafirði
Almennur kjósendafundur verður haldinn að Laugar-
borg í Eyjafirði á vegum Framsóknarflokksins n. k.
þriðjudagskvöld kl. 9.
Framsögumenn á fundinum verða Garðar Halldórs-
son, Ingvar Gíslason og Karl Krisfjánsson.
B er listabókstafur Framsóknarflokksíns í öllum kjördæmum