Tíminn - 01.11.1959, Blaðsíða 2
T í iVl I-N N, suunudagmn 1. nóveuibí'i 1959.
Margir nýir þættir
í vetrardagskránni
Vetrardagskrá Ríkisútvarpsins gengin í garð
Vetrardagskrá Ríkisútvarps
ins hefst um þessa helgi og
kennir þar márgra nýrra
grasa, en auk þess verða á-
fram ýmsir þættir sem verið
hafa.
Sunnudagseijndin, sem notið
hafa mikilla vmsælda, fjalla að
þessu sinni um tækni og vísindi
<ag verða bau 8 talsins. Dr. Þor-
björn Sgurgeirsson prófessor hef-
ur skipulagt erindin.
Laugardagsleikritin halda áfram
með sama sniði. Þá verður flutt
ný íslenzk áður óbirt útvarpssaga,
„Sólarhringur“ eftir Stefán Júlíus
son. Lestri fornsagna stjórnar
Óskar Halldórsson cand. mag. og
hefur hann valið til flutnings
Gisla sögu Súrssonar.
„Með ungu fólki"
Þá ber til nýlundu smásögu
vikunnar, verða þær ýmist eftir
innlenda eða útlenda höfunda, og
fluttar á fimmtudögum. Þá hafa
|Verið skipulagðar kynningar á
I verkum bjóðskáldanha. Sigurður
Jónsson frá Haukagili, vísnasafn-
ari mikill, stjórnar lausavísna-
þætti.
Nýr þáttur ber heitið „Með
ungu fóiki‘ og gefst þar æsku-
lýðnurn tóm til að ræða áhuga-
mál sín á sviði bókmennta og
tónlistar og koma fram með frum
| smíðar. J
Vetlvangur raunvísinda nefnist
nýr þátlur sem ungir vísindamenn,
Halldór Þorrnar og Örnólfur Thor-
lacius sjá um. Fjallar það um nýj-:
ungar á sviði náttúruvísinda.
j
I Loks mun Sveinn Einarsson
' cand mag. flytja leiklistaþbátt
I tvisvar í mánuði en hann er lærð-
! ur í lekilistarsögu og leikbók-
menntum.
Lítið um bílþjófnaöi
99
á dögum afa og ömmu
í síðustu viku hvarf héðan
af landi, eftir viku dvöl,
sænski æskulýðsleiðtoginn
Hans Brander. Kom hann
hingað með styrk sænsku Rot-
aryhreyfingarinnar, og á veg-
um Æskulýðssambands ís-
lands. Erindi hans var að
kynna æskulýðsstarfsemi Svía
hérlendis og kynnast um ieið
starfinu á íslandi.
Hans Brander starfar hjá Bind-
indisfélagi ökumanna í Svíþjóð,
en þar er þesisi félagsskapur mjög
útbreiddur, enda ýmislegt gert
fyrir hann. Ræddi Brander við
ýmsa æskulýðsleiðtoga hér, bæði
£ Reykjavík og á Akureyri, for-
wstumenn BFÖ, kom á fund hjá
Rotaryklúbb Reykjavíkur og
marga fleiri. Einnig gafst honum
stund til þess að heim'sækja for-
setann á Bessastöðum.
Tvær millj. í 80 samb.
Kvöldið áður en Brander hélt
heimleiðis ræddi hann við blaða-
menn og skýrði þeim frá æsku-
lýðsstarfinu í Svíþjóð og heim-
sókn sinni hingað. í Svíþjóð eru
80 æskulýðssambönd, sem taka
yfir allt landið, og í þeim eru um
tvær milljónir manna. Er það
heldur hærri tala en tala æsku-
manna í landinu, en þess ber að
gæta, að margir eru í fleiri en
einu sambandi. Hið opinbera
styrkir starfsemi þessa mjög mikið,
og fór það mjög í vöxt árið
1955, þegar ný áfengislöggjöf og
rýmri var sett. Átti þá styrkur
við æskuiýðsstarfið ag varna því,
að drykkjuskapur færi í vöxt með
löggjöfinni, og hefur árangur
orðið mjög góður.
Varðandi „afbrotaæsku" sagði
Brander, að ekki væri svo mikið
um afbrot unglinga, sem ætla
mætti. En gæta þyrfti þess, að
tímar væru mjög breyttir og þar
með allar aðstæður
Allt samþykkt
í emu hljoði
NTB—Moskvu, 30. okt. —
Fulltrúasamkunda Sovétríkj-
anna samþykkti í dag einróma
efnahagsáætlanir fyrir árið
1960.
Ilér er íyrst og fremst um að
ræða áætlun um framleiðslu næsta
árs. Alexei Kossygin formaður
framieiðsluráðs lagði áætlunina
fyrir þingið. Hann kvað stjórnina
sammála þeim tiilögum, sem fram
hefðu komið í umræðum á þing-
inu um aukna framleiðslu neyzlu-
varnings. Þá var samþykkt fjár-
lagafrumvarp fyrir næs'ta ár og er
gert ráð fyrir allmiklum tekjuaf-
gangi.
Sakaður um hlut-
deild í morSi
Bandaranaike
NTB—Colombo. 31. okt. Stjórn-
in á Ceylon fékk traustsyfirlýsingu
þingsins í gærkveldi með aðeins 5
atkvæða meirihluta. Til umræðu
voru ásakanir stjórnarandstæðinga
á hendur Dahanaike forsætisráð-
herra um hlutdcild í morðinu á
Bandanaike fyrrum forsætisráð-
lierra.
Dahanaike kvaðst mundu biðj-
ast lausnar þegar í stað, ef stjórn-
arandstaðan gæti sannað þessa
ákæru. Það var búddatrúar-munk-
ur, sem særði Bandanaike til ólífis
fyrir urn það bil hálfum mántiði. I
90 ára í dag: Ketilríður Einarsdóttir
frá Tannstaðahakka
Aflasölur
Stemgrímur trölfi seldi á föstu
dagsmorguninn í Grlmsbý 51 lest
(þar af 15 lestir gallaður fiskur)
fyrir 3410 £. — Hafliði frá Siglu
firði seldi í Cuxhaven á föstudag
149 lestir fyrir 122 544 mörk. —
Þorsteinn þorsakbítur og Bjarni
riddari seldu í Þýzkalandi í gær.
Afvopnun
(Framhald af 12. síðu).
Formósa hluli af
alþýðulýðveldinu
Hann vék einnig að iandamæra
deilu Indverja og Kínverja og
kvaðst vona að unnt yrði að leysa
þá deilu á friðsamlegan hátt með
samningum. Vestrænar þjóðir yrðu
að gera sér grein fyrir því að Kína
væri stórveldi, sem taka yrði fullt
tilli-t til. Ekki færi hjá þvíýlð
Formósa yrði hluti af kínverska
alþýðulýðveldinu er fram liðu
stundir.
Andvígur alþjóðlegu
lögregluliSi
Krustjoff sagði. að Sovétríkin
vildu algjöra afvopmm en væru
andvíg því, ag komið væru upp
alþjóðlegu lögregluliði. Sovétríkin
mýndu gera allt, sem í þeirra valdi
stæði til þess að efnt yrði til fund
ar æðstu manna stórveldanna hið
i allra fyrsta.
Ketilríður Einarsdóttir, nú til
heimilis að Blönduhlíð 25 í Reykja
vík, er 90 ára í dag, 1. nóvember.
Hún er dóttir hjónanna Guðrún-
ar Jónsdóttur og Einars bónda
og gullsmiðs Skúlasonar á Tann-
staðabakka í Hrútafirði. Þar ólst
hún upp, á fyrirmyndarheimili, í
hópi margira systkinia. Rúmlega
tvítug fór hún til náms í kvenna-
skólann á Ytri-Ey. Það mun hafa
verið góður skóli, en á þeirn tíma
voru þeir færri en skyldi, sem
áttu þess kost að njóta skóla-
menntunar.
Ketilríður giftist árið 1901 Ás-
geiri Inigimundarsyni. Hann var
sonur Ingimundar Jakobssonar
prests Finnbogasonar og Sigríðar
Sigfúsdóttur prests á Tjörn og
Undiirfelli Jónssonar prests í
Reykjahlíð Þorsteinssonar. Þau
Ásgeir og Ketilríður bjuggu fyrst
á Akureyri, en síðan í Reykjavík.
Þau eignuðust þrjú börn, einn son
og tvær dætur. Önnur dóttirin,
Fanuy, lézt á barnsaldri, en hin
systkinin eru á lífi, nú bæði bú-
sett í Reykjavík: Þorsteinn bif-
reiðarstjóri, kvæntur Gyðu Daní-
elsdóttur, og Hrefna, gift Daníel
Markússyni slökkviliðsmanni á
Reykjavíkurflugvelli.
Eftir nokkurra ára hjúskap slitn
uðu samvistir þeirra Ásgeirs og
Ketilríðar. Allmörg næstu árin
var hún til heimilis hjá Guðrúnu
systur sinni og manni hennar,
fyrst á Svertingsstöðum í Miðfirði
en síðar á Hvammstanga. Hrefna
dóttir hennar var þar með henni,
en sonurinn, Þorsteinn, var á
uppvaxtarárunum hjá móðurbróð
ur sínum, Þorsteini bónda á Reykj
um i Hrútafirði. Ketilríður átti
lengi heima á Hvammstanga, og
ha,fði þar veitingasölu. En árið
1945 fluttist hún til Reykjavíkur
með dóttur sinni og tengdasyni
cg hefur verið hjá þeim síðan.
Lífsreynsla fylgir langlífi, og
Ketilríður Einarsdóttir hefur
kynnzt bæði skini og skúrum. En
hún er glaðlynd að eðlisfari og
hefur tekið öllu, sem að höndum
hefur borið, með jafnaðairgeði.
Hún hefur verið góðum hæfileiic-
um búin, og stþstaklega vel
verki farin. Handavinna hennar
ber vott um listfengi, sem ætla
má að hún hafi tekið í arf frá
föður sínum, en hann var þjóð-
hagasmiður. Hún hefur verið
starfsöm kona og varið kröftum
sínum til aðstoðar börnum sínum
og barnabörnum. Og síðustu árin
hefur þriðji ættliðurinn notið
góðs af umhyggju hennar og
handaverkum.
Um leið og ég óska Ketilríði
frænku minni blessunar á 90 ára
afmælinu, þakka ég henni inni-
lega óbrigðula vináttu, umhyggju
og hjálpsemi, sem ég og systkini
mín höfum notið hjá henni á
liðnum áratugum.
Skúli Guðmundsson
Kvennadeild Slysavarnafélagsins
í Reykjavík
heldur fund mánudaginn 2. nóvember kl. 8,30
1 Sjálfstæðishúsinu.
Til skemmtunar:
Gamanvísur: Frú Steinunn Bjarnadóttir
Dans.
Myndir úr suniarferðalaginu verða afhentar.
FjölmenniS.
Stjórnin
•krifstofufólk
Stórt heildsölufyrirtæki óskar eftir aft rá<Sa til sín:
a) Skrifstofumann — eða stúlku frá 1. desember n. k.
(bókhaldskunnáiia na tísynleg).
b) Skrifstofustúiku frá 15. desember n. k. (Góft véírit-
unar- og máiakunnáíta nauðsynleg).
c) Skrifstofustúlka frá 15. janúar n. k. (Vélritunar-
kunnátta nautSsynleg). JT
Umsókmr er greini menntun og fyrri störf sendist afgreðsiu Tímaais
fyrir 7. |).m. merkt: ..X-17ÖÖU
VV.VV.V.V.V.V.W.Y.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.V.VV.>.
í
Vi8 bjóSum yður þefta frábæra kostaboð: £
Þér fáið tvo árganga — 640 bls. — fyrir 55 kr.,
er þér gerizt áskrifandi að
| Tímarltinu SAMTIÐIN
.; sem flytur ástasögur, kynjasögur. skopsögur, drauma-
ráðningar, afmælisspádóma, kvennaþætti Freyju með
£ Butterick-tizkusniðum, prjóna- og útsaumsmynztrum,
;* mataruppskriftum og hvers konar holiráðum. -— í hverju
;* blaði er skákþáttur eftir Guðmund Arnlaugsson og í
;« bridgeþáttur eftir Árna M. Jónsson. en auk bess úrvals- I;
;• greinar, getraunir, krossgáta, viðtöl, vinsælustu dans-
v lagatextarnir o. m. fl.
10 blöð á ári fyrir 55 kr.
;.
og nýir áskrifendur fá einn árgang 1 kaupbæti, ef .;
árgjaldið 1959 fylgir pöntun. Póstsendið í dag eftjrfar- I;
■.- andi pöntunarseðil: í;
;;* Ég undirrit... .óska að gerast áskrifandi að SAMTÍÐ- I;
í INNI og sendi hér með árgjaldið 1959, 55 kr. (Vinsam-
;* legast sendið það í ábyrgðarbréfi eða póstávísun) £
Nafn .
Heimili
Utan.áski‘ift okkar er: SAMTÍÐIN, Pósthóli: 472, JRyík.
VA/VWWAVW.W.VWWAV.W.VW.V.V.V.V.VVAVV