Tíminn - 01.11.1959, Síða 3
T í MIN Nj sunnudaginn 1. nóvember 1959.
3 ,
Bókmennfaverðlaun Nób-
els féllu t ár í skaut ífalans
Saivafore Quasimodo. Kann
er fæddur órið 1901 t Sýra-
lcusa á Sikiiey. Sikiley kem-
ur.mjög við sögu í IjóSum
Quasimodo. Hann var íengi
landmælingamaSur viS
vegagerð ítalska rikisins
og hefur tferðazf um landið
þvert og endilangt þeirra
erinda. Hann hóf nóm í
húmaniskum tfræðum tví-
tugur a3 aldri við háskól-
ann í Milano og lagði sér-
staka stund á grískar bók-
menntir. Hann hefur þýtt
Sophokies og hefur reynd-
ar alia tíS verið afkasta-
mikill þýSandi. Einkum
hefur hann þýft verk þeirra
Moliére, Shakespeare og
Cafderone.
Prófessor og ritstjóri
Árið 1938 sagði hann upp
landmælingastöðu sinni og fór
að vinna fyrir brauði sínu sem
rithöfundur. Hann er nú próf-
. essor í ítölskum bókmenntum
í Milano og ritstjóri og leik-
listargagnrýnandi vikublaðsins
Tempo. Sem skáld er Quasi-
modo maður hinna s'tuttu Ijóða
og stuttu setninga. Það eru
ekki atburðir, landslag eða
fólk, sem hann lýsir, heldur
eru bernskuminningarnar hon-
um kærastar.
Orðin eru oft tvíræð. Kann-
ske er hann einna líkastur
Paul la Cour. Ljóðasöfn hans
eru fá og ekki mikil fyrir-
ferðar. Grunntónninn er þung-
lyndislegur og angurvær.
Hugstæðastar eru honum
minningar bernskunnar; rödd
móðurinnar, er hún las fyrir
hann, angan trjánna á æsku-
stöðvunum.
Þótt ljóð Quasimodo séu
þunglyrvdistleg err hann ekki
' með vol og víl og yrkir ekki
fyrir sjálfan sig um sjálfan
■ sig.
FjértSI Italinn
Quasimodó er fjórði ítalinn
sem hlýtur ; Nó'rjílsverðlaunin.
Áður hafa þau fallið í hlut
þeirra Pirandello, Carducci og
Grazia Deladda. ítalir gleðjast
yfir, að landa þeirra er sýndur
slíkur heiður, en Quasimodo er
mjög umdeildur. Ýmsir telja,
að önnur ílölsk ijóðskáld eiris
og t.d. Montale og Ungaretti
hefðu verið betur að heiðrin-
um komnir. Ýmsir telja að
Quasimodo eigi þenrian heiður
að þakka ritara sænsku Aka-
demíunnar, Anders Ös'terling,
en hann er mikill aðdáandi
Quasimodo og hefur þýtt mikið
af ljóðum hans á sænsku. Quasi
modo er mjög vinstri sinnaður
og gekk í kommúnistaflokkinn
árið 1945.
Vi'aur kommúnista
Hann afneitar samt komm-
únistum nú, en segist vera
mjög vinstri sinnaður. Verk
hans eru mikið lesin í Sovét-
ríkjunum. Hann var einn af
forystumönnum í heimsfriðar-
hreyfingu kommúnista. Á síð-
asta ári tók hann þátt í rit-
ihöfundaþingi í Moskvu. Þar
segist hann hafa talað fyrir
auknu frelsi rithöfunda í Sov-
étríkjunum.
í hitteðfyrra, er Rússar
sendu sinn fyrsta Sputnik upp
í himingeiminn, birti hann
kvæð um afrekið í málgagni
kommúnista L’Unita, sem ef-
laust hefur fallið valdhöfum
Sovétríkjanna vel í geð, en
vakti litla hrifningu bókmennta
unnenda.
Illar tungur á Ítalíu segja,
að í fyrra hafi Akademían
sænska úthlutað verðlaunun-
um til manns sem ekki gat
tekið á móti þeim, en í ár til
manns, sem ekki átti þau
skilið.
Helztu ljófianöfn
Helztu Ijóðasöfn hans eru:
Oboe Sommerso (1932). Po-
esie (38). Ed e subito sera
(Framhald á 11. síðu)
Þetta er ein nýjasta myndin, sem tekin hefur verið af Nóbelsverðlaunaskáldinu Salvatore Quaslmodo.
Sidney Poitier og Dorothy Dandrige sem Porgy og Bess.
Heypti ieyfið fiS að kvik-
mynda „Porgy og Bess“
Óperukvikmyndin „Porgy
og Bess" var nýlega frum-
sýnd í New York. Sýning
tekur tvo og hálfan tíma,
er tekin í litum og með
TODDAO aðferðinni, þeirri
er kennd er við Mike sál-
uga Todd. Með aðalhlut-
verkin fara þau Sidney Poit
ier og Doroihy Dandrigo,
sem lék Carmen Jones. —
Otto Preminger er leik-
stjóri og myndina fram-
leiðir Samúe! gamii Gold-
wyn, sem hefur látið gera
myndina eftir sínu eigin
höfði.
Bæklaður negri
Myndin er gerð eftir sögu
Du Bose Heyvrard ,,Porgy“,
sem lýsir þekktri persónu í
bænum Charleston, bækluðum
negra, sem hét Samuel Smalls
og ók um í litlum vágni, sem
var dreginn af geit. Kona rit-
höfundarins skrifaði leikrita-
handrit eftir skáldsögunni.
Hið fræga tónskáld George
Gershwin varð lirifið af verk-
inu og sá að þarna var gott
efni í óperu. Bróðir hans Ira,
samdi óporutexta eftir leik-
ritahandritinu. Tónskáldið Ger-
shwin tók á leigu lítinn kofa
á eyjunni Folly tíu mílur frá
Charlestone og þar dwaldis't
hann í tvo mánuði og samdi
tónlist við textann.
Dorothy Dandrige
Nafninu var breytt í „Porgy
og Bess“ og var söngleikurinn
frumsýndur á Broadway árið
1935. Hvorki höfundur né tón-
skáld lifðu það að verða vitni
að heimsfr;..;gð veírks síns. í
janúar 1942 var söngleikurinn
endursýndur í New York og
voru sýningar 286, sem var al-
gert mít á þeirri tíð.
Samuel Goldwyn reyndi í tíu
ár að fá leyfi fil að kvikmynda
sör.gleikinn og það var ekki
fyrr en árið 1957 að hann fékk
leyfið gegn því að borga
650.000 dollara út í hönd.
En þar með var ekki björn-
inn unninn. Goldwyn vildi fá
negra til að f ira með aðalhlut-
verkin, en þeir voru ekki gin-
keyplir, Harry Belafonte neit-
aði með öilu. Það gerðu þau
Sidney Poitar og Dorothy
Dandridge reyndar líka í
fyrstu. Þeim fannst söngleik-
urinn hálfgerð lítilsvirðing við
hinn svarta hynstofn.
Meðan á l iku kvikmyndar-
innar stóð kviknaði í kvik-
myndaveri Gcldwyns og var
Ijónið metið á tvær og hálfa
milljón. Myndin er þess vegna
orðin framleiðandá sínum dýr,
en vonandi sinna peninga
Virði.