Tíminn - 01.11.1959, Qupperneq 5
T í M I N ,N, suuuudaginn 1. nóvembcr 1959.
Skýrsla rannsóknardómara af eínum þætti rann-
sóknar olíumálsins svonefnda á Keflavíkurvelli
HÍS flutti inn án tollgreiðslna vélar og
varning fyrir 2,1 millj. króna
Hið íslenzka steinolíuhlutafélag
(H.S.Í.) hefur undanfarin ár séð
um sölu eldsneytis. oliu og smurn
ingsoliu til varnarliðsins á Kefla-
vikurflugvelli, en samkvæmt 9.
tl. 8. gr. viðbætisins um réttar-
stöðu liðs Bandaríkjanna og eignir
þeirra, við varlarsamninginn frá
15. maí 1951, öbr. 1. nr. 110/1951,
á varnarliðið að fá tollfrjálst elds
nevti, olíu og smurningsolíu til af
noía fyrir opinber ökutæki, flug-
vélar og skip til liðs Bandaríkj-
anna og verktaka þeirra, sem eigi
eru íslenzkir þegnar.
Með skýrslu til lögreglus'tjórans
á Keflavíkurflugvelli, ds. 26. nóv-
ember 1958, 'kærðu Kristján Pét-
ursson, lögregluvarðstjóri, og
Guðjón Valdimarsson, lögreglu-
maður, Hið íslenzka steinolíu-
hluíafélag fyrir brot á innflutn-
ings- og gjaldeyrislöggjöfinni. Að
meginefni fjallar s'kýrslan um ætl
aða sölu HÍS á tollfrjálsri gasolíu j
og eldsneyti til íislenzkra aðila og
erlendra flugvéla við fullu verði,
svo sem að tollur hefði verið
greiddur af gasolíunni og elds-
neytinu. Enn fremur hermtj:
skýrslan frá tollfrjálsum innflutn
ingi frostlagar í nafni varnarliðs-
ins og sölu hans til íslendinga við
verði, sem miðað var við að tollur
hefði verið greiddur.
Með bréfi utanríkisráðuneytis-
iris, ds. 27. nóvember 1958, var
Gunnar Helgason, fulltrúi lög-
reglustjórans á Keflavíkurflug-
velli, skipaður umboðsdómari í
málinu. Var honum falið að rann-
saka starfsemi H.Í.S. á Keflavíkur
flugvelli vegna ætlaðra brota fé-
; agsins á innflutnings- og gjald-
eyrislöggjöfinni. Dómsrannsókn
hófst 16. desember 1958. Hefur
henni verið fram haldið æ síðan.
Með umboðsskrá utanríkisráðu-
neytisins, ds. 20. apríl 1959, var
umboð Gunnars Helgasonar víkk-,
að. Var honum nú einnig falið að ,
a-annsaka starfsemi Olíufélagsins
h.f. á Keflavíkurflugvelli vegna:
ætlaðra brota félags þess'a á inn-1
flutnings- og gjaldeyrislöggjöf-
jnni, svo pg öðrum lögum, sem1
rannsókn málsins kynni að gefa!
tilefni til, en Olíufélagið h.f. og
H.Í.S. eru eins konar systurfyrir-
tæki, enda sama stjórn í báðum
félögunum.
Með itmboðsskrám dóms -og ut-
anríkismálaráðuneytisins, ds. 8.
ágúst 1959, var umboð Gunnars
Helgasonar enn fært út og jafn-
framt skipaður annar rannsóknar-
dómari í málið að auki, Guðm.
íngvi Sigurðs'son, fulltrúi saka-
dómarans í Reykjavik. Var rann-
sóknardómurunum nú falið aðrann
saka starfsemi félaganna, ekki
aðeins að því er varðar viðskipti
við varnarliðið, heldur og einnig
starfsemi félaganna að öðru leyti,
eftir því sem ástæða þykir til,
og kveða síðan upp í málinu dóm,
ef til málshöfðunar komi.
Rannsókn máls þessa er mjög
umfangsmikil. Var því brugðið á
það ráð, að brjóta málið niður í
þætti og rannsaka hvern um sig,
eftir því sem kleift þykir, svo sem
innflutning og sölu fyrirtækjanna
á flugvélaeldsneyti, gasolíu, mót-
orbenzíni og smurningsolíu. Aðrir
þættir rannsóknarinnar beinast að
gjaldeyrisviðskiptum, öflun gjald-
eyrs og skilum á honum, olíu-
birgðageymum og olíuleiðslum,
innflufning bifreiða, alls kyns
tækja, véla, varahluta, frostlagar,
ísvarnarefnis og terpentínu. Að
sjálfsögðu gripa þessir þættir hver
inn í annan og verða því eigi fylli
lega aðgreindir. Er rannsókn
þesaaraa ým-su þáitta misjafnlega
langt á veg komin. Segja má, að
rannsókn eirjs þessaþa þáttia sé
að mestu lokið. Er það þátturinn,
sem fjallar um tollfrjálsan inn-
if'.utning H.Í.S. og Oliufélagsins
h.f. á biíreiðum, alls kyns vélurn,
tækjum, varahlutum, frostlegi, ís-
varnarefnum og terpentínu.
Þar sem rannsóknardómararnir
eru þess áskynja, að ýmsum sög'-
um fari af þessum innflutningi
fyrirtækjanna og þar sem þessi
þáttur málsins virðist liggja ljós
fyrir í öllum aðaldráttum, þykir
bæði rétt og skylt að skýra frá,
hvað rannsóknin hefur leitt í ljós
um hann, ef það mætti verða til
að leiðrétta missagnir:
Hinn 9. apríl 1952 reit þáver-
andi framkvæmdastjóri H.Í.S.,
Haukur Hvannberg, utanríkisráðu
neytinu bréf með beiðni um, að
utanríkisráðuneytið úrskurði,
livort H.Í.S. heimilist tollfrjáls
innflutningur á tækjum til af-
greiðslu á flugvélabenzíni og öðr-
um olíuafurðum til varnarliðsins,
þar sem það væri skilningur H.í.
S. á varnarsamningnum írá 5. maí
1951, að félagið ætti rétt á slík-
um tollfrjálsum inriflutningi, því
að öðrum kosti félli það í hlut
H.Í.S. að greiða aðflutningsgjöld-
in af tækjunum og yrði því fé-
l’agið að hækka gialdið fyrir þjón-
ustuna við varnarliðið, sem því
næmi. Ekki verður séð af gögn-
um utanríkisráðuneytisins, að
þessu bréfi hafi nokkurn tíma
verið svarað. Upplýst er, að utan-
ríkisráðuneytið hefur aldrei veitt
H.Í.S. leyfi -til tollfrjáls innflutn-
ings bifreiða, tækja, varahluta eða
byggingarefnis. ‘ i
Engu að síður hófst H.Í.S. handa
um innflutning alls kyns tækja,
véla o. fl. þegar árið 1952, án
þess að greiða toll af varningn-
um. Rannsóknin á slíkum toll-
frjálsum innflutningi H.Í.S. og
Olíufélagsins h.f. nær yfir öll ár-
in frá komu varnarliðsins 1951
til ársins 1959. í stórum dráttum
gekk þessi innflutningur þannig
fyrir sig, að fyrirtækn pöntuðu
hjá fyrrtækinu Esso Export Corp-
oration, New York, munnlega eða
skriflega, varninginn með beiðni
um, að fylgiskjöl með varningnum
væru stíluð á varnarliðið eða er-
lenda verktaka á Keflavíkurflug-
velli, en send H.Í.S. eða Olíufélag-
inu h.f. Varan var greidd af
gjaldeyrisinnstæðum fyrirtækj-
anna hiá Esso Export Corporati-
on, sem sér um innheimtur fyrir
H.Í.S. og Olíufélagið h.f. á því,
sem þessi félög selia varnarliðinu
og erlendum flugvélum, þ.e. vör-
um og þjólnustu. I’egar varan
var komin til landsins og fylgi-
skjölin í hendur Olíufélagsins h.f.
eða H.Í.S. voru farmskírteinin
send suður á Keflavíkurflugvöll
til fyrirsvarsmanna H.Í.S. þar,
sem sáu um að afla yfirlýsingar
varnarliðsms og áritunar á farm-
skírteinin þess efnis, að varan
væri flutt inn til notkunar fyrir
varnarliðið. Síðan voru farmskír-
leinin send til Reykjavíkur, þar
sem þeim var framvísað til toll-
afgreiðslu. Lá þá varan á lausu,
án greiðslu tolls, til flutnings
suður á Keflavíkurflugvöll. Toll-
gæzan þar skyldi fylgjast með
því, að varan kæmi in ná völlinn,
m.a. með stimplun tollseðla, er
fylgdu vörunni.
Meðal þessa tollfrjálsa innflutn-
ings II.Í.S. og Olíuféfagsins h.f.
kennir margra grasa: Þrjár benzín
afgreiðslubifreiðir, 11 tengivagn-
ar til afgreiðslu smurningsolíu o.
fl. til flugvéla, 20 dælur til af-
greiðslu á mótorbenzíni, 19 dæl-
ur til afgreiðslu á flugvélaelds-
neyti og 2 loftdælur, ásamt mæl-
um. Enn fremur stálpípur, ventl-
ar, lokur, rennslismælar, slöngur
o. fl. í neðanjarðarleiðslukerfi
H.Í.S. vegna flugafgreiðslunnar á
Keflavikurflugvelli, svo og vara-
hlutir í benzíndælur og bifreiðir,
dekkjaviðgerðarefni, pípulagning-
arefni alls konar, krossviður, gólf-
flísar, 216.703 pund af frostlegi,
350 tunnur af terpentínu, 52.203
pund af ísvarnarefni og jafnvel
áfengi.
Framkvæmdas'tjóri H.f.S. tíma-
bilið, sem þessi innflutningur
átti sér stað, Haukur Hvannberg,
hefur haldið því fram, að það sé
skilningur sinn á ákvæðum varn-
arsamningsins um tollfrjálsan
innflutning til varnarliðsins' og er-
lendra verktaka á Keflavíkurflug-
velli, að H.f.S. hafi verið heimilt
að flvtja þennan varning inn toll-
frjálst, þar sem innflutivngurinn
standi allur í sambandi við þjón-
ustu H.Í.S. við varnarliðið.
Rannsóknin hefur að sjálfsögðu
beinzt að því, hverju nemi verð-'
mæti alls þessa innflutnings. Enn
hefur ekki tekizt að fá upplýsing-
ar um verðmæti alls þessa varn-1
ings, en þegar liggja fyrir gögn, J
er geyma upplýsingar um verð-1
mæti meginhluta innflutningsins. \
Er lagt til grundvallar innkaups-:
verð (fob-verð). Nemur það sam-
tals um $130.000,00 eða röskum
kr. 2.100.000,00. Ekki hefur enn
verið reiknað út hverju aðflutn-
ingsgjöldin af varningi þessum
mundu numið hafa. j
Eftir að rannsókn málsins hófst
sótti Olíufélagið h.f. um innfluln-
ingsleyfi fvrir vatnseimingartæki
og varahlutum í Leyland-bifreiðir.
Hafði varningur þessi verið flutt-
ur inn árið 1958, eða nokkru áð-
ur en dómsrannsókn málslns
hófst. Varningurinn var fluttur
inn í nafni varnarliðsins. Vatns-!
eimingartækið var keypt frá
BandaHkjunum og kostaði $7.160, 1
00. Varahlutirnir voru keyptir í
Englandi, enda eru Leylandbif-
reiðir enskrar gerðar. Innkaups-
verðið nam £2371-0-0. Innflutn-j
ingsleyfin voru veitt. Aðflutnings-!
gjöldin af þessum sendingum báð
um námu samtals kr. 176.765.00. j
Hinn 24. júní 1958 reit H.f.S. !
fjármálaráðuneytinu bréf, þar sem |
félagið óskaði umsagnar ráðuneyt-1
isin.s á fy.rirhugaðri lánviðtöku
félagsins á sérstökum tækjum til
afgreiðs-Iu á eldsneyti til farþega- j
þrýstiloftsflugvéla. Lánveitandinn .
var, samkvæmt upplýsingum H.í. .
S., Esso Export Corporation, New ;
York. Ráðuneytið svaraði með,
bréfi, ds. 3. júlí 1953, á þá lund, j
að lagaheimild brvsti til að sleppa i
þessum afgreiðslutækjum við að- j
flutnings'gjöld. I-Iins vega.r féllst j
ráðuneytið á það, með skirskotun !
ti) viðeigandi ákvæða tollskrár- j
laga, að innflutningsgjöldin yrðu ;
aðeins tekin af leigu tækjanna. :
H.Í.S. sótti síðan um innflutnings-
leyfi fyrir tækjunum. í umsókn-
inni, sem er dagsett 7. júlí 1958,
er beðið um innflulningsleyfi
fyrir afgreiðslutæki fyrir flúgvéla-
eldsneyli. Leyfi var veitt með
þeim skilyrðum, sem fjármálaráðu
neytið setíi og að framan gi-einir.
Afgreiðslutækið kom til landsins
7. júlí 1958. í tollinnflutnings-
skýrslu, sem gefin er út af Olíu-
félaginu h.f. 14. júlí 1958, er tæk-
ið nefnt vörubifreið og leigan
metin á $2000,00. Aðflutningsgjöld
in voru reiknuð út í samræmi við
leiguna og námu kr. 22.854,00.
Hinn 19. marz 1959 sótti Olíufé-
lagið h'T. um innflutnings'leyfi
fyrir bifreiðinni, þar sem félagið,
vegna breyttra afgreiðsluhátta,
hefði þörf fyrir að kaupa bif-
reiðina. Leyfið var veitt. Bifreið-
in, mefj gevmi (tank), kostaði
$10.287,00. Aðflutningsgjöldin
námu kr. 80.891,00. í fórum dóms-
ins eru hins vegar gögn, sem
geyma upplýsingar utn, að bifreið-
in hafi aldrei verið notúð til að
afgreiða eldsneyti á farþegaþotur
og að H.Í.S. hafi keypt bifreiðina
fyrir atbeina Esso Export Corp-
oration þegar í júní 1958 og Ess'o
Export hafi greitt andvirði bíls-
ins og gevmisins í júlí 1958 a£
innstæðum H.Í.S. hjá Esso
Export.
J Skylt er að géta þess, að megnið
af þeim innflutningi, sem að
framan greinir og inn kom í nafni
varnarliðsins, hefur verið og er
nolaður vegna þjónus'tu H.Í.S. við
varnarliðið, ýmist einvörðungu eða
bæði til að þjóna varnarliðinu, er-
: lendum farþegaflugvélum og ís-
lenzkum aðilum.
| Vegna blaðafregna er skylt að
geta þess, að ekkert hefur fram
komið í rannsókn málsins, er
bendi til, að H.Í.S. eða Olíufélagið
i h.f. hafi í vörzlum sínum þjóf-
( stolna muni frá varnarliðinu eða
öðrum.
! Rannsókain hefur hins vegar
leitt ljós, að H.Í.S. hafi fengið
j að láni biá varnarliðinu tvær dæl-
jt'.r og einn vörulyftara.
Reykjavík, 30. október 1959. I
Guðm. Ingvi Sigurðsson
Gunnar Ilclgason,
ATHYGLI
viðskiptamanna vorra skal vakin á því, að inn*
gangur í skrifstofur vorar er framvegis frá j
Skúlagötu. j
Sláturfélag
Suðurlands
Skúlagötu 20
Tilkynning
um atvinnuleysisskráningu
i
Atvinnuleysisskráning samkvæmt ákvörðun laga
nr. 52 frá 9. apríl 1956, fer fram í Ráðningar-
stofu Reykjavíkurbæjar, Hafuarstræti 20, dagana
3., 4. og 5. nóvember þ. á., og eiga hlutaðeig-
endur, er óska að skrá sig samkvæmt lögunum
að gefa sig fram kl. 10—12 f.h. og kl. 1—5 e.h.
hina tilteknu daga.
Óskað er eftir að þeir sem skrá sig séu viðbúnir
að svara meðal annars spurningunum:
1. Um atvinnudaga og tekjur síðustu þrjá
mánuði.
2. Um eignir og skuldir.
Revkjavík, 31. október 1959.
Borgarstjórinn í Reykjavík
I