Tíminn - 01.11.1959, Side 7
Tt MT\ N> snmrodagtim 1. nóvcmber 1959.
— SKRIFAÐ OG SKRAFAÐ
Fyrstu kosningar eftir kjördæmabyltinguna - Hrakspár, sem hafa brugðizt - Framsóknar-
flokkurinn aldrei öflugri en nú - Fylgisaukning flokksins í þéttbýlinu - Forystuflokkur
íhaldsandstæðinga - Verður Alþýðuflokkurinn hægri eða vinstri flokkur? - Osigur Sjálf-
stæðisflokksins - Flótti stöðvaður í bili - Þjóðvamarflokkurinn - Vinstri stjórnin -
.'M-eðan. kjördæmabyltingin var á
döfinn: héldu þríflokkarnir, er
stóðu að henni, því óspart fram,
að einn megintilgangur hennar
væri að ieggja Framsóknarflokkinn
að veili. í útreikningum þeirra
'átti flokkurinn að hafa frá 9—12
þingsæti eftir að byltingin hefði
verið gerð. Kosningarnar í vor
bentu hiná vegar ekki til þess, að
þessir spádómar myndu rætast.
Þrífiokkarnir héldu þó áfram að
vera vohgoð'r. Bíðið t'l haustkosn
inganm. sögðu þeir, þá mun Fram
sóknarfiokkurinn missa þúsundir
atkvæé.i, þvi að fiölmargir kusu
hann nú vegna kjördæmamálsins
leins. Þe'r nmnu hverfa he:m til
föðurhiuanna í haustkosningunum.
Þá fær Framsóknarflokkurinn á
þaukinn svo um munar.
Nú er þessum fyrstu kosning-
um, sem fara fram eftir kjördæma.
þyltinguna, lokið. Niðurstaða
þeirra hafur fullkomlega hrundið
hrakspádómum þríflokkanna. Fram
sóknarflokkurinn hefur nú að baki
sér stórum meira atkvæðamagn
en hann hafði 1953, þegar seinast
var kos ð þannig, að fylgi flokk-
anna kæmi glög.gt fram og afstað-
an til kjördæmamálsins blandaðist
ekki inh í kosningabaráttuna.
Hahn hefur nú einum þingmanni
fleira en þá. Hann hefur nú þing-
imenn í öllum kjördæmum, en þá
hafði hann engan þingmann
í Reykjavlk og Reykjaneskj ördæn\i.
Fylgi hans stendur nú fastar: fót-
íum um land aUt en það hefur áð-
iir 'gert.. Staða hans til áframhald-
ándi sóknar hefur aldrei verið
betri.
í kpsnvngunum nú hélt hann
nær 'alíri hinni miklu fylgisaukn-
ingu, sem hann fékk á síðastl.
vori. Nu er ekki hægt að þakka
þajj kjördæmamálinu. Nú sézt
það ótvírætt, að Framsóknarflokk-
urinn er öflugur og vaxandi flokk-
ur.
Aldrei öflugri en nú
í ko'.nmgunttm I sumar fékk
Framsók.narflokkurinn 23.082 atkv.
og 27,3% greiddra atkvæða. Nú
íékk flokkurinn 21.884 atkv. eða
25,7% greiddra atkvæða. Hann
fær sömu þ.ingmannatölu og hann
hefði fengið í sumQrkosningunum,
ef hin nýja skipan hefði þá verið
íkomin til - fraínkvæmda. Hann
heldur að mestu fylgisaukningunni
er hann fékk í sumarkosningunum
og andstæðingarnir töldu stafa af
íkjördæmamálinu e:nu. Þetta sýn-
ir, að langmest af fylgisaukning-
unni í s.umar var raunveruleg fylg
isaúkning flokksins sjálfs, en rak
ekki. rætur tjl kjördæmamálsins.
Ef litið er lengra til baka sést
það Ijóslega, að Framsóknarflokk-
xu-inn stendur nú traustari fótum
og á. almennara fylgi að fagna en
hann hefur áður gert. Árið 1953
fékk h?nn 21,9% greiddra at-
ikvæða. ár'ð 1949 24,5% og árið
1946'23.1%. — Síðan haustið 1942
hefur flokkurinn ekki náð yfir
25% greiddra atkvæða fyrr en nú,
en þá fékk hann 26,6% greiddra
atkvæð'i og' er það bezta hlutfall,
sem hann hefur nokkru sinni náð,
þegar ekki hefur verið kosið um
Ikjördæmabreýtingu. Framsókn'ar-
flokkur'nn er því í dag eins sterk-
ur og.'hánn hefur verið sterkástur
i allri.sögu sinni.
Fylgisaukningin
í þéttbýlinu [
Á þaim tinia* sem er liðinn síð
en 194F, hafa orðið stórkostlegar
Kosningaþátttaka var allgóð í hinum nýafstöðnu kosningum. Þó var sókn dræm framan af degi víðast hvar, en
batnaöi mjög er á dag leið og lauk kjörfundi mjög víSj á sunnudaginn. Þó voru ein eöa fleiri kjördeildir hafö-
ar opnar í flestum kjördæmunum næsta dag, en kjörfundur stóð þar viðast stutt, aðeins tekið við utankjörstað-
aratkvæðum, er borizt höfðu og örfáir menn kusu, er ekki höfðu komið því í verk daginn áður. Menn eru mjög
árrisutir til kosninga. Sumír hafa það að venju að Ijúka þessu af þegar eftir að kjörfundur hefur verið settur,
og oftast bíður nokkur hópur fóiks við hina stærstu kjörstaði, þegar kjörfundur er settur að morgni kosninga-
dags. — Þessi mynd var tekin við Miðbæjarbarnaskólann í Reykjavík að morgni s.l. sunnudag, rétt fyrir kl. 9,
en þá voru dyr opnaðar og kjörfundur settur þar. (Ljósm.: GE).
breytingar á skipan landsbyggðar-
innar. Á þessum tíma hefur kjós-
endum stórlega fækkað í sveitun-
um, en þar átti Framsóknarflokk-
urinn lengi vel aðal fylgi sitt.
Fólksfækkunin þar hefði óhjá-
kvæmilega haft það í för með isér,
að Framsóknarfiokkurinn hefði
orð'ð minnkandi flokkur, ef hann
hefði ekki aukið mjög fylgi sitt í
kauptúnum og kaupstöðum hin
síðari ár. Það er hinu stóraukna
fylgi flokksins í bæjunum að
þakka, að hann hefur vel haldið
í horfinu. í dag nýtur Framsóknar
fiokkurinn líka þeirrar viðurkenn-
ingar í vaxandi mæli, að hann sé
ekki síður traustur fulltrúi verka-
manna og miðstétta í bæjunum en
bænda!
Ef þróun ísl. stjórnmála á að
beinast í réttan f'arveg, þurfa ein-
mitt þær stéttir, sem hér eru
nefndar, að koma á sem beztu sam
starfi sín á milli, en láta ekki
kljúfa sig í andstæðar fylkingar.
Framsóknarflokkurinn telur það
eitt meginverkefni sitt að fylkja
þessum stéttum til sem beztrar
samvinnu.
Forystuflokkur
íhaldsandstæðinga
Úrslit kosnhiganna sýna það
einnig ótvírætt, að Franuóknar-
flokkurinn heldur áfram að vera
aðalvígi og höfuðflokkui’ íháldsand
stæðinga. Hann er svo langvum
sterkari en Alþýðubandal. og Al-
þýðuflokkurinn, að samjöfnuður
kemur ekki til greina um það,
hver sé öfiuga.sti og traustasti and
stæðingur afturhaldsins.. Hann
fær um 9000 atkvæðum me'ra en
Alþýðuflokkurinn og rúm 8000
atkv. meira en Alþýðubandalagið.
Framsóknarflokkurinn er því
áfram eftir kosningarnar, eins og
fyrir þæf, langsíærsti flokkur
frjáldyndr.á vinstri manna og
íhaldsandstæðinga. Þess vegna
hijóta að íylkja sér undir merki
haiTs allir þe'r, sem vílja láta
frj'álsíyrit fólk skipa sér í eina
fylkingu.
Framsóknarflokkurinn mun
keppa að því að vinna þannig, að
hann haldi því trausti, sem frjáls-
lynt og vinstri sinnað fólk hefur
sýnt honum með því að fylkja sér
eindregnara um merki hans en
nokkurs flokks annars.
Sigur Alþýðu-
flokksins
Ef miðað er við úrslit þingkosn-
inganna á síðast liðnu sumri, er
Alþýðuflokkurinn helzti sigurveg-
arinn í þessum kosningum. Vinn-
ingur flokksins er fyrst og fremst
byggður á því, að honum hefur tek
izt að telja mörgum trú um, að
ríkisstjórn hans væri búin að
stöðva dýrtíðina og byggja öflugan
varnargarð gegn verðbólgunni.
Þetta hafa raenn viljað verðlauna.
Reynslan mun brátt leiða í ljós,
hvort þessi sigur Alþýðuflokksins
er unninn á réttum forsendum.
Hér skal því látið ógert að ræða
frekara um þetta atriði að sinni.
Þá hefur Aiþýðuflokkurinn unn
ið sér nokkurt fylgi á jjví að laka
upp fhaldjsamari .stefnu í ýmsum
málum en áður. Eftir er að sjá,
hvort. það reynist honum sigurvæn
legt til frambúðar.
I Þótt Alþýðuflokkurinn hafi nú
tekið upp ihaldssamari stefnu en
áður, telur hann sig þó áfram
vinstri flokk, líkt og Alþýðuflokk-
an„ á Norðurlöndum. Úr því
mun f 1 j ótlega fást .skorið, hvort
Alþýðuflokkurinn ætlar að standa
áfram á þessum gamla grundvelli
eða að hverfa alveg yfir á braut
íhaldsstefnunnar. Geri hann það,
mun hann áreiðanlega glata fylgi
ýmissa frjálslyndra manna, er
veittu honum brautargengi. nú,
þrátt fyrir „hægra brosið“.
Ósigur Sjálístæðis-
fíokksins
SIGUR sá, sem Alþýðuflokkur-
inn hefur unnið, bitnar fyrst og
fremst á samstarfsflokki hans,
Sjálfstæðisflokknum. Miðað við
þingkosningarnar í sumar hefur
Sjálf’stæðisflokkurmn beðið veru-
legan ósigur og þó enn meiri, þeg-
ar þess er gætt, að han.n bjóst nú
heldur við að auka fylgi, m. a.
endurheimta atkvæðin, er hann
lánaði Alþýðuflokknum í sumar.
Ósigur Sjálfstæðisflokksins bygg-
ist vafalitið á því, að hann hefur
arðið berari að leikaraskap og
hringli, m.a. í sambandi við bráða-
birgðalögin um afurðaverðið, en
oftast áður. Athyglisvert er, að
bæjarbúar virðast hafa séð þetta
betur en bændur, og því tapar.
hann fyrst og fremst í kaupstöð-
unum. Þá hafa o.g útsvarsmálin
vafalaust verið honum fjötur um
fót.
Augljóst er það líka, að hinn
magnaði áróður, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hélt uppi gegn vinstri
stjórninni, hefur ekki fært honum
neinn ávinning, heldur miklu
fremur hið gagnstæða. Að þessu
verður vikig nokkuð nánar hér á
eftir.
Flóíti stöðvaður í bili
ALÞÝÐUBANDALAGINU hefur
nokkurn veginn tekizt að standa
í stað og virðist það meira en for-
ingjar þess hafa búizt við. Þjóðvilj
inn birti t. d. með stærsta letri
yfir þvera síðu: Fylgi Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík óbreyft,
og virðist mega lesa það úr orð-
unum, að það komi blaðinu á
óvart. Þetta mætti iíka telja sæmi-
legt, ef flokkur'nn hefði verið að
vinna fylgi að undanförnu. Sliku
er hins vegar ekki að heilsa, þar
sem flokkurinn stórtapaði í bæj-
arstjórnarkosningumim í fyrra o,g
aftur í þingkosir.ngunum í sumar.
Hér er þvi ekki um neinn vinning
að ræða, heldur hitt, að það hefur
tekizt að stöðva flóttann, a. m. k.
í bili.
Ár:ð 1956 fókk Alþýðubandalag-
ið 19.6% greiddra atkvæða, en rtú
fékk það ekki nema 16% greiddra
atkvæða. Orsök þessa fylgistaps
er vafalaust sú, að kommúnistar
virðast nú áhrifameiri innan þess
en 1956, og það fælir rnenn eðli-
legia- frá því. Miðað við kosningar
1956, >er fylgistap þess iíka mest í
Reykjavík, þar sem mest ber á
kommúnistum í forustunni. Fram-
tíð Alþýðubandalagsins fer vafa-
laust mjög eftir því, hvort Moskvu
öflin innan þess styrkjast eða
veikjaist að áhrifum í framtíðinni.
Þjóðvarnarflokkur-
inn
ÞJOÐVARARFLOKKURINN
hefur aukið töluvert fylgi silt frá
síðast liðnu sumri, þótt það næ-gði
honum ekki til að ná þingsæti.
Vafalítið á Þjóðvarnarflokkurinn
fylgi sitt því að fa.gr.a, að menn
hafa tal'.ð sig geta látið í ljós á
þennan hátt óáaægju síná yfir her-
setunni og ýmsu því, sem þeim
finnst miður fara. Leið'n til þess,
að réttu máii miði áleiðis, er hins
vegar ekki sú, að umbótaöflin
sk'.pti sér í smáa flokka, heldur
þoki sé saman og hver og einn
reyni svo að hafa jákvæð áhrif
innan slíkra samtaka.
Vegna framboða Þjóðvarnar-
flokksins hafa nær "3000 atkv. far-
ið forgörðum að þessu sinni. Það
sýnir þá hættu, sem vinstri mönn
um stafar af ofmikilli sundrungu:
í röðum þeirra. íhaldig eitt græðir
á þessu. Glötun þessara 3000 atkv.
á að vera vinstri mönnum hvatn-
ing þess að þoka sér saman i stað
þess að sundra sór og veikja áhrif
sín á þann hátt.
Dómur um vinstri I
stjórnina
BÆÐI í kosningunum 28. júní
og kosningunum 25. og 26. okt.
reyndi Sjálfstæðisflokkurinn að
ófrægja störf vinstri stjórnarinn-
ar sem mestc cg hvatti mjög til
þess, að kosningaúrsRtin yrðu á-
fell'sdómur um störf og stefnu
hennar.
Þá sKoraði Sjálfstæðisflokkur-
inn mjög á kjósendur að kjósa sig
til þess að verðlauna hann fyrir
andstöðuna gegn vinstri stjórn-
inni og árétta það, að þeir vildu
aldrei aftur vinstri stjórn.
Kjósendur hafa nú svarað þess-
um tilmælum Sjálfstæðisf'lokksins
svo skýrt og greinUega, að ekki
verður villzt um viðhorf þeirra.
Eini flokkurinn, sem bíður ósig-
ur í þessum ko:n:ngum er Sjálf-
stæðisflokkurinn. Hann fékk
42,4% greiddra atkvæða í kosning
unum 1956. Hann fékk nú 39,7%
greiddra atkvæða.
Þannig mat þjóðin baráttu Sjálf-
stæðisflokksins ge.gn vinstri
stjórninni. Þannig svaraði hún
áskoruninni: Aldrei aftur vinstri
stjórn.
Þessi dómur er vissulega ótví-
ræður. Þss'sum dómi geta stuðn-
ingsmenn v'nstri stjórnarinnar
vissulega vel unað.
Mistök í Risö
Kaupmannahöfn, 29. okt. —
Smíðagalli kom í ljós í kjarnorku
verinu á Risö í Danmörku nú fyrir
skömmu. Þegar annar af hhium
tveimur stóru atómhreyflunum var
settur á fulla ferð kom í ljós, að
óvarið vatnsrör i kjallara'nu'm und
ir hreyflinum, var þúsund sinnum
geislavirkara en það átti að vera.
Nú hefur verið bætt úr þessum
galla, en hann stafaði af mfetökum
bandarísku verkfræðinganna. —
Aðils.