Tíminn - 04.02.1960, Side 7

Tíminn - 04.02.1960, Side 7
TÍMINN, fimmtudagÍMi 4. febrnar 1960. 7 VETTVANGUR ÆSKUNNAR RITSTJÓRI: DAGUR ÞORLEIFSSON ÚTGEFAN'DJ v.SAMBAND UNGRA. F.RAM.SOKNARMANNA Ef til vill nemur maður ný lönd — Hvar er fslenzk myndlist á vegi stödd í dag? Ég sit í herbergi uppi á lofti í öldruðu húsi við Bókhlöðustíginn og beini þessari spurningu að há- vöxnum, toginleitum manni, er flatmagar á dívan andspænis mér. — Nokkuð góð spurning, en erf- itt að svara henni, segir hann og strýkur hökuskeggið, er gerir hann dálítið gyðinglegan í útliti. En ég held að óhætt sé að segja, að hún stefni i rétta átt hjá þeim, sem taka hana alvarlega. — Enginn skortur á nýliðum í stéttinni? — Nei, en hins ber að gæta, að margir ungir menn, sem virð- ast hafa áhuga fyrir listinni, gera sér ekki grein fyrir, að meira þarf til hennar heldur en léreft og liti. Eftir Morgunblaðsgluggan- um að dæma er enginn hörgull á mönnum. sem vilja láta Ijós sitt skína. En hvað gera þeir? Flestir þessara manna virðast enga grein hafa gert sér fyrir því, á hvaða tíma þeir lifa, né hvaða kröfur verður að gera til þeirra, sem kall- ast vilja listamenn. Þetta á ekki aðeins við um unga menn, heldur líka gamla karla, sem fiktað hafa við að mála mestalla ævina hing- að og þangað um landið með mis- jöfnum árangri, rísa svo upp á afturfæturna einn góðan veðurdag þegar þeir eru í þann veginn að leggjast í kör og sýna og selja líkt og um væri að ræða rjóma- bollur á fimmtíu aura stykkið, en ekki misheppnaðar myndir. ís- land er paradís fúskaranna, eða hvað segirðu um Hafnarstræti 17? Þar eru seld skilirí, sem í öllum öðrum sæmilega siðuðum þjóðfé- lögum væru ekki metin meira en sem svaraði einni rósóttri vegg- fóðursrúllu. En hér heima dugar ekki minna en kýrverð fyrir þessa inini'ömimuðu litakvoðu. — Hvenær fórstu sjálfur að mála? _ — Ég fékk strax merkilegan á- huga á þessu í gagnfræðaskóla, og kom það óþyrmilega niður á náms greinunum. En einmitt þá var ég stálheppinn með kennara. Það var Skarphéðinn Haraldsson. sem kenndi mér teikningu í þrjá vetur. Raunar er ekki víst, að hann kæri sig um að ég minnist á þetta, því hann er maður hógvær. — Og þvínæst? — Þá var það Handíðaskólinn í tvo vetur. Svo lá leiðin til París- ar. Þar var ég veturinn 1954—55. Síðan hef ég stöðugt málað og stundað ýmsa aðra atvinnu um leið og á miili. Nú í svipinn kenni ég teikningu í Austurbæjarbarna- skólanum og líkar vei. — Hve oft hefurðu tekið þátt I sýningum? — Sú fyrsta var 1953 í sýning- arsalrium við Freyjugötu, sem G'unnar Sigurðsson veitti forstöðu, og var hið þarfasta fyrirtæki. Svo hef ég tekið þátt í sýningum Fé- lags íslenzkra myndlistarmanna frá 1955. Síðast var ég með á Norðurlandasýningunni í Óðinsvé- um. Árin ‘56 og ‘58 sýndi ég sjálf- stætt í Listamannaskálanum. — Og þú málar stöðugt? Hér er sjón naunair sögu ríkari, því veggir herbergisins eru skeytt- ir málverkum í öllum litum regn- bogans, ýmislega samanblönduð- um, og á borði í öðrum enda her- bergisins getur að líta pensla og cskjur með vatnslitum, ásamt klessóttum blöðum, sem listamað- urinn hefur notað fyrir „riss“, eða eru þetta kannske einnig mál- verk? — Jú, það þýðir ekkert annað. ar myndir, eða abstrakt, eins og flestir kalla þær. — Hið abstrakta er sem sagt drottnandi i málaralist nútímans? — Já, og einnig mætti nefna taschismann, sem erraunar ekkert annað en hiiðargrein þess. Þar er meiri áherzla lögð á litina, en |ormið er tilviljunarkennt. — Hallast þú ekki að þeirri stefnu? — Ég hef komizt að þeirri nið- urstöðu, að mér henti ekki að sömu brautir og í öðrum Evrópu- löndum. Þó er sá munur á, að ytra eru menn löngu hættir að rífast um gildi abstraktstefnunn- ar. Aðeins hér á landi fyrirfinn- ast geðvondir skarfar eins og Björn Franzson, sem eru enn við sama heygarðshornið í þessum efnum. . — Þú ert ekki ánægður með listgagnrýnma? — Ég hef að sjálfsögðu ekkert á móti gagnrýni. Ég tel hana þvert á móti nauðsynlega. En hún Æfingin skapar meistarann. í ár hef ég eingöngu notað vatnsliti. Gafst upp við olíulitina. — Því þá það? — Fyrst og fremst vegna pláss- leysis. Hér erum við raunar komn- ír að einu höfuðvandamáli ungra listmálara. Það er skortur á vinnu- húsnæði. Hið opinbera hefur gef- íð þessu máli sáralítinn gaum, að minnsta kosti í seinni tíð. Hent- ugum vinnustofum fyrir listmál- ara og myndhöggvara mætti vel koma fyrir i rishæðum hinna nýju fjölbýlishúsa, sem nú er verið að reisa, með sáralitlum kostnaði. Hér er um að ræða mikið nauð- synjamál, því eins og gefur að skilja, þurfa myndlistarmenn á húsnæði að halda við vinnu sína eins og hverjir aðrir borgarar þjóð félagsins. Þannig þurfa trésmiðir á vekstæði að halda, prentarar á prentsmiðju og svo framvegis. — Hvaða stefnum hefurðu eink- um fylgt í lúlkun þinni? — Eins og aðrir, byrjaði ég að mála hlutina eins og þeir komu öðrum fyrir sjónir. En smátt og smátt hef ég endurskoðað mat mitt á málverkinu. Framan af var um stökkbreytingar að ræða hjá mér, en á seinni árum hefur þró- unin verið hægari. Frá því 1953 hef ég eingöngu málað óhlutstæð- Rabbað við Hafstein Austmann listmálara mála þannig. — Ættum við ekki að víkja nán- ar að vandamálum ykkar, svona almennt? — Vel gætum við það, því af nógu er að taka. Til dæmis eru það vandræðin með sýningar- skálana. Af slíkum er aðeins Lista- mannaskálinn til, en hann er allt- of stór fyrir sýningar einstakra listamanna. Hvað bogasalinn í Þjóðminjasafninu snertir, er hann alls ekki ætlaður til málverkasýn- inga, þótt dr. Kristján Eldjárn láni okkur hann af góðsemi sinni. Hér erum við aftur komnir að húsnæðisvandræðunum. í slíkum tilfellum hafa þau ýmsar miður heppilegar afleiðingar, sem sé þær, að listmálarar neyðast til að hengja verk sín til sýnis í sjopp ur hingað og þangað um bæinn — Hvað viltu segja um listþró- un hérlendis? — Hún hefur að mestu gengið verður að byggjast á þekkingu. Kaunar er varla hægt að tala um neina sanna listgagnrýni hér á landi. Aðeins eitt dagblaðanna hefur fastan myndlistargagnrýn- anda. En þó er enginn hörgull á mönnum, sem vilja segja okkur málurunum fyrir vei'kum. Um þá er það að segja, að þeir eru flestir annað hvort misheppnaðir lista- menn sjálfir eða pólitískir ofstopa menn, sem ólmir vilja draga lista- menn í dilka eftir stjórnmálaskoð- unum. En krítík þeirra er sjaldan upp á marga fiska. Hvað yrði sagt, ef ég tæki upp á því að vaða inn á skrifstofu til einhvers bókhaldarans og skamma hann fyrir illa unnin störf, skipa hon- um að breyta öllum sínum færsl- um o. s. frv. Ég yrði eflaust álit- inn bilaður, og ekki að ástæðu- lausu. En hins vegar þykir sjálf- sagt og eðlilegt, að hver skrif- stofumaður eða handverksmaður rísi upp og skammi okkur listmál- arana og segi okkur fyrir verk- um. Má ekki annars bjóða þér ein- hverja hressingu, kaffi eða te? — Nei, þakka þér fyrir, ég ber litla virðingu fyrir slíkum drykkj- um. — Hvað er að heyra, drekkurðu þá brennivíri? — í svipinn langar mig mest í gias af köldu vatni, ef þú ættir. — Jú, mikil ósköp. Hafsteinn slekkur á fætur og skálmar fram í eldhús, og kemur að vörmu spori með vatnsglas og réttir mér. — Þakka þér fyrir. Annars er víst naumast sæmandi að gera þig að vatnsbera. — Er röðm þá ekki komin að hafmeynni? segir hann og hlær við. — Já, hvað hefur þú um það mál að segja? — Ég heíd að það hljóti að fara að verða útrætt. Hvað meykindina snerti’, fannst mér hún misheppn- að verk og vægast sagt fádæma hugsunarleysi að príla með hana út í tjörn. Aftiur á móti var að- ferðin við að koma henni þaðan vítaverð. Sú var og skoðun flestra íslenzkra listamanna. Vonandi verður þetta atvik til þess, að hið opinbera taki á sig rögg og setji lög til verndar þeim verkum, sem komið er fyrir á almannafæri. — Hvað hefurðu að segja um þær ásakanir, sem að ykkur hafa beinzt út af þessu atviki? — Það er að sjálfsögðu hlægi- leg fjarstæða, að halda því fram, að við höfum sprengt hana í loft upp. Hvað ásökunum Högna Torfa- sonar viðvíkur, lýsa þær furðuleg- um haturshug hans í garð ís- lenzkra lista Það skyldi þó aldrei vera minnimáttarkennd? En slíkt er fremur rannsóknarefni fyrir sál- fræðinga en listamenn. — Þú sagðist hafa verið í París. Hvernig stendur eiginlega á þessu sífellda flakki myndlistarmanna þangað? — Líklega hefur vaninn þar mest að segja. En það er líka gott að vera í París. Að minnsta kosti er engin hætta á að ráðizt sé á mann á götum Parísar með skömmum og skætingi fyrir að vera listmálari, eins og kemur fyrir hér heima. Enda er stærðar- munur mikill á París og Reykja vík. En ekki stafar þetta aðdrátt- arafl frönsku höfuðborgarinnar af því að Frakkar séu betri málarar en aðrir. Flestir beztu málarar Parísar eru útlendingar. margir Austur-Evrópumenn, sem komið hafa til borgarinnar sem náms- menn og dagað uppi, kannske vegna þess, að þeir hafa fundið þar betri hljómgrunn en í föður- landi sinu. Fyrir mitt leyti mundi ég kjósa tvö lönd öðrum fremur til' að lifa og starfa í, ef ég mætti ráða, Frakkland og ísland. Höfuð- kostur síðarnefnda landsins eru björtu næturnar á sumrin. — En París hefur þó sennilega sínar plágur? — Já, og þar eru túristarnir fremstir í flokki. Fyrir þeim er ekki stundlegur t’riður tímunum saman. Áður var Montmartre helzta listamannahverfið, en svo rammt kvað að ásókn ferðamanna þangað. að málararnir lögðu að lokum á flótta. Nú hafast þeir einkum við a Montparnasse, í Latínuhverfinu og víðar. — Hveri er álit þitt á súrreal- ismanum? , — Ég met hann meira sem bók- menntastefnu en myndlistar. (Framhald á 15. síðu) öa lendir í flækju myikviðar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.