Tíminn - 04.02.1960, Page 12

Tíminn - 04.02.1960, Page 12
12 T í M IN N, finuntudaginn 4. febrúar 1960. Myrótílr RITSTJÓRI. HALLUR SIMONARSON BandaríkjamaSurinn Biil Disney setur heimsmet í skautahlaupi Hinn 27 ára gamli bandaríski skautahlaupari, Bill Disney, setti 8.1. föstudag nýtt heimsmet í 500 m. skautahlaupi, hljóp á 40.1 sek., sem er einum tíunda úr sekúndu b«tra en eldra heims- met, sem Rússinn Evgeny Grisjin átti. Disney setti heimsmetið á skautabrautinn í Squaw Valley, þar sem keppt verður á Ólym- píuleikunum, í samband við val bandarískra skautahlaupara á leikana- Aðstæður voru fyllilega löglegar er keppnin fór fram. Disney, sem aðeins hefur tekið þátt í keppni í tvö ár, hljóp í riðli með Terry McDermott, sem fékk hinn ágæta tíma 40.4 sek. Veður var ekki sérlega hagstætt, er hlaupið fór fram, nokkur vindur og fjögurra stiga frost. Eftir þetta hlaup verður Bill Disney tal- inn líklegastur til sigurs í 500 m. hlaupinu á Ólympíuleikunum í þessum mánuði, en Rússarnir verða honum þó sennilega erfiðir. Ármann Lárusson sigr- aði í Skjaldargiímunni Tveir keppenda uríu at5 hætta vegna meiðsla Skjaldarglíma Ármanns, hin 49. í röðinni, var glímd að Há- logalandi s.l. mánudagskvöld. Átta keppendur voru skráðir í glímuna og mættu allir, en tveir urðu að hætta keppni sökum meiðsla. Sigurvegari í glímunni varð Ármann J Lár- usson, UMFR, og hlaut hann bikar þann, sem keppt var um til eignar, þar sem hann sigr- aði í þriðja sinn í röð. Bikar- ínn gaf Eggert Kristjánsson. Ekki var glíman sérlega skemmtileg — og skiptust kepp- endur mjög í tvo flokka hvað leikni og kunnáttu snerti. Það setti einni'g sinn svip á glímuna, að tveir glímumenn, Trausti Ólafsson og Sveinn Guðmundsson, báðir Ármanni, meiddust og urðu að hætta keppninni. Trausti hafði þá glímt þrjárglímur og unnið allar, en hann meiddist í glímunni við Ármann J. Lárusson — og var læknir ekki frá því, að um hæl- brot væri að ræða. Sigurvegarinn Ármann J. Lárus- son glímdi yfirleitt rólega og tók sjaldan áhættu. Hann var örugg- astur keppenda og sigur hans mjög verðskuldaður.' Röðin var annars þe9si: 1. Ármann J. Lárusson, UMFR, 5 vinningar. 2. Hilmar Bjarnason, UMFR, 4 vinningar. 3. Ólafur Guðlaugsson, Á, 3 vinn. 4. Sigurður Ámundason, Á, 2 vinn. 5. Hannes Þorkelsson, UMFR, 1 vinningur. 6. Þórður Kristj'ánsson, UMFR, 0 Eftir glímuna afhenti Jens Guð- björnsson formaður Ármanns, verðlaun, og sagði þá nokkur orð. Gat hann þess m. a. að erlendir glímusérfræðingar, sem séð hafa íslenzka glímu, teldu hana mjög skammtilega og fagra. Þætti þeim gaman að sjá íslenzka pilta glíma. Áhorfendur að glímunni voru um 300, og er það mun meiri að- sókn en verið hefur á glímumót undanfarin ár. Var þar innan um margt ungt fólk — og má því bú- ast við, að íslenzka glíman hefjist að nýju til vegs og virðingar. Jimmy Hill, hœgri innherji hjá Fulham, er einn mest umræddi leikmaðurinn í Englandi. Hann er hinn einl af atvinnumönnum I 1. delld, sem er með alskegg, og vekur alltaf mikla athygli fyrir það, auk þess, sem hann er mjög góður lelkmaður og fastur fyrir. Hiil er formaður samtaka enskra atvinnuknattspyrnumanna, og þyk- ir ekki síður harður f horn að taka þar frekar en á leikvelli. Mynd þessi er tekin á leikvelli Fulham { London, þegar Fulham sigraði Everton 2—0 í deildakeppninni. Hill, til hægri, skallar knöttlnn að marki. Ármann J. Lárusson Enska bikarkeppnin Á þriðjudagiun fóru fram þrír leikir í fjórðu umferð Bikarkeppn innar, sem hafði lokið með jafn- tefli á iaugardaginn Úrslit urðu þessi: Bunley-Swanisea 2—1 Preston-Bristol Rov. 5—1 Watford-Southampton 1—0 Aðalspenningurinn var í sam- bandi við leikinn í Watford, þar sem heimaliðið, sem er í fjórðu deild, lék gegn Southampton, öðru efsta liðinu í þriðju deild. Löngu fyrir leiktíma varð að loka vellin- um og stóðu sex til sjö þúsund manns fyrir utan. Metið að vellin- um er 32.800 gegn Manch. Utd. 1950. Watford tókst að sigra með eina markinu í leiknum og leikur í fimmtu umferð í Sheffield gegn United. Burniey leikur í fimmtu umferð í Bradford gegn 3 deildar- : liðinu þar Bradford City, en Prest- ; on á heimaleik í 5. umferðinni I gegn Brighton eða Rotherham. Líklegir Ólympíusigurvegarar — Dave Jenkins, Bandaríkjunum Meðal áhugamanna fyrir vetr aríþróttunum eru stöðugar um- ræður um það hverjir séu lík- legastir sigurvegarar í hinum einstöku greinum á Vetrar- Ólympíuleikunum, sem hefjast í Squaw Valley eftir hálfan mánuð. Skoðanir eru auðvita? mjög skiptar um flestar grein ar — en um eitt eru menn sam mála, að það verður hrein óheppni, sem ræður, ef Davc Jenkins, Bandaríkjunum, sigrar ekki í listhlaupi karla á skaut um. Allan fyrri hluta síðasta ár voru Iíkur til þess að Jenkin: myndi ekki geta tekið þátt leikunum vegna> alvarlegr; meiðsla, sem hann hafði hlotið er hann og annar skautahlaup hlupu saman. Jenkins slasaðist meir, og varð að sauma mörg sárin saman með yfir 30 spor- um. En flestum á óvart gat hann hafið æfingar s.l. haust, og er nú sagður í mjög góðri æfingu — og að hann hafi sjald an sýnt meiri leikni. Eldri bróðir Jenkirn að nafni Hayes, var um árabil bezti lisi hlaupari heims, en eftir að hanr gerðist atvinnumaður í grein nni, hefur það verið Jenkins ;em verið hefur hinn leiðand maður í íþróttinni. Hann hefur þrisvar sinnum orðið banda rískur meistari, og einu sinn norður-amerískur. Á Ólympíu teikunum í Cortína 1956 var hann í þriðja sæti. Nú þarf hann aðeins ólympískan titi) em kórónu á íþróttaferil sinn Bandaríkin hafa einnig mikla vgurmöguleika í listhlaupi kvenna á leikunum, og þar er Carol Heiss „aðalstjarnan1. Dave Jenkins frábær listhlaupari

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.