Tíminn - 04.02.1960, Qupperneq 16
Mjdlkin fór öll
í fyrsta flokk
911.262,00 fcg., sem er 422.771.00
kg. meira en árið 1958 eða 0,62%
aufcning.
Skipting milli flokka
Langmest magn þessarar mjólk
ur eða 66.599.728 kg. flokkaðist
undir 1. og 2. fl., en það er jafn-
gildi 96,65% af allri framleiðsl-
unni. í II. fi. fóru 3,15 kg. (2.171,
034,00 kg.) og í IV. fl. 0,20% (140.
500.00 kg.). Hér er að sjálfsögðu
aðeins átt við þag magn, sem inn-
vegið var hjá mjólkurbúunum og
samilögunum, en framleiðslan alls
mun hafa verið nokkru meiri, þar
sem nokkuð magn mun alltaf vera
selt beint fró bændum til þurra-
búðarmanna, auk þess sem farið
hefur til heimanota hjá mjólfcur-
framleiðendum sjálfum.
Aflabrögð í janúar
lofa yfirleitt góðu
f -
Heildarafli Akranesbáta um 2000 lestum meiri en á
sama tíma i fyrra.
Blaðinu hefur nýlega borizt
skýrsla yfir mjólkurfram-
leiðsluna á íslandi árið 1959,
en hana hefur Kári Guðmunds
son mjólkurfræðingur tekið
saman. Samkvæmt þeirri
skýrslu varð 0,62% fram-
leiðsluaukning á mjólk á ár-
inu, og fjögur ný mjólkursam-
lög tóku tií starfa. Mest jókst
framleiðslan hjá Mjólkursam-
lagi Skagfirðinga, Sauðár-
króki, eða 10,01%, en minnk-
un framleiðslu varð mest á
svæði Mjólkursamlags Borg-
firðinga, eða 5,76%.
Heildarmagn mjólfcur hjá mjólk
urbúum og samlögum landsins var
Fyrsti mánuður hinnar yfir-
standandi vertíðar er nú að
baki. Tíminn hefur haft tal af
fréttamönnum sínum á Akra-
nesi og í Keflavík og
fengið hjá þeim upplýsingar
um aflabrögð og horfur í út-
gerðarmálum. Um horfur er
að sjálfsögðu alltaf erfitt að
Svertingjar
eru líka menn
NTB—Pretoriu, 3. febr. —
Macmillan lýsti eindreginni
cndstöðu við kynþáttastefnu
S-Afríku í dag.
Hélf Mcmillan ræðu á þingi
S-Afríku Kvaðst ekki vilja
leyna því að kynþáttamisrétti
S-Afríkustjórnar bryti í bága
við stefnu og rófgróna sann-
færingu Breta. Þjóðernis-
hreyfing svertingja væri vax-
andi og til hennar yrði að taka
tillit. Varaði hann S-Afríku við
afleiðingum þess, að neita
svertingjum um jafnfrétti og
beita þá kúgur. i
segja mikið, svo duttlungafull
skepna sem þorskurinn er. En
afli í janúar lofar yfirleitt
góðu. Má það vera öllum ís-
lendingum ánægjuefni, svo
mjög sem þjóðin á afkomu
sína undir því, að góðæri ríki
við sjávarsíðuna.
Frá Akranesi hafa að staðaldri I
róið 12 bátar írá 10. jan. til mán-1
aðarloka. Heildaraflinn er 1242 i
tonn og er það 2000 tonnum meira !
en á sama tíma í fyrra. Aflahæstu j
bátarnir eru Sigrún með 129 tonn, j
Sigurvon með 121 tonn, Sveinn |
Guðmundsson með 108 tonn,
Skipaskagi með 107 tonn, Böðvar
með 106 tonn. Aðrir bátar eru
innan við 100 tonn. Sjóveður hefur
verið hagstætt, sem betur fer, því
að á heimamiðum fæst ekki branda
og verður því að róa djúpt.
30 bátar frá Keflavík
Þrjátíu bátar hafa róið frá Kefla
vík síðan um áramót, allir með
línu Aflinn er 2523 lestir í 428
róðrum. Aflahæstu bátarnir eru:
Jón Finnsson 142 lestir, Askur
141,7 lest, Guðmundur Þórðarson
139,5 lestir, Bjarni 134 lestir.
Meðalafli í róðri var 5895 kg.
Til samanburðar má geta þess,
að í janúarmánuði í fyrra réru
32 bátar frá Keflavík. Þeir fóru
394 .óðra, heildaraflinn var 2277
lestir og meðalafli í róðri 5778 kg.
í janúarmánuði 1958 réru hins
vegar 29 bátar. Róðrar voru 440,
heildarafli 2403 lestir og meðalafli
! á bát í róðri 5461 kg.
VÍSa er háit í bænum og þessari litlu telpu varS einmitt hált á því skðmmu
fyrir hádegið í gær. Þegar Ijósmyndari blaðsins reisti hana upp, sagði hún:
„É á heima á Þólvallagötu þjú".
Kveðja kóng
og prest og
fara heim með
fyrstu ferð
LÍÚ gaf TÍMANUM þær
upplýsingar í gærkvöldi, a3
nú væru öll sund endanlega
lokuð fyrir samkomulagi í
deilu Færeyinga og fslend-
inga, þar sem Færeyingar
hvika ekki frá kröfum sínum,
sem fela í sér betri kjör en fs-
lendingar fá, og að vonum er
ekki hægt að fallast á að ívilna
úflendingum fremur en sitja
á réfti þeirra. Samningafundir
stóðu yfir í fyrradag og gær,
en Færeyingar héldu fast við
sínar kröfur, einkum með til-
liti til kauptryggingar í fær-
eyskum krónum. ”m LÍÚ gat
ekki gengið til fulls frá fyrr
en vitað var um ráðstafanir
ríkisstjórnarinnar, en var
reiðubúið að fryggja þeim
hliðstæða kauptryggingu og
íslenzkum fiskimönnum, en
kauptrygging þeirra er 5365
krónur og orlof. Lyktaði við-
ræðum svo, að Færeyingar
kvöddu kóng og prest og
kváðust fara heim með fyrstu
mögulegri ferð.
Viðræður verða ekki teknar
upp að nýju.
Nýr sakadómari í Alsír
skrásetur samsærismenn
Þingið veitti de Gaulle, forseta Frakk-
lands, alræðisvald um öryggismál ríkis-
ins um eins árs skeið
NTB—París, 3. febr. —
Franska stjórnin hófst þegar
handa er þingið hafði veitt
henni og forsetanum víðtækt
alræðisvald í öryggismálum.
Nýr saksóknari hefur verið
skipaður í Alsír og leit rann-
sóknarlögreglunnar bæði þar
og í Frakklandi að öfgamönn-
um hefur magnast um allan
helming í dag. Hafa allmargir
menn verið handteknir til
viðbótar þeim, sem áður var
kunnugt um.
í nótt samþybkti fulltrúadeild
framska þingsins nve'ö 441 atkv.
gegn 75, að veita forsetanum og
ríkisstjórninni alræðkvald í
næstu 12 mánuði, en umboð þetta
er þó að mestu bundið við ör-
yggismál ríkisins. Sagt er, að tak
marka eigi freikar en nú tíðkast
mál- og ritfrelsi.
Handtökur hægri manna
í gær var kunnur öfgamaður
frá Alsír, Jean Baptiste Biaggi,
handtekinn er hann kom til Paris
ar og með honum einn af þing-
fulltrúum frá Alsír.
Sex rannsóknardómarar og
slóraukið starfslifi hefur tekið til
starfa með hinum nýja saksókn-
ara í Alsír. Fyrsta verk þeirra
veröur að gerá nákvæmar skýsl-
ur um alla þá, sem grunaðir eru
um samblástur gegn ríkisstjórn-
inni og de Gaulle. Unnið er að
sama verkefni í Frabklandi. —
Húsrannsóknum var haldið áfram
í París í dag og víðar í Frakk-
iandi. Búaist menn við allmikl-
um lögregluaðgerðum og hand-
tökum innan tíðar.
Afmælis-
hóf FUF
Afmælishóf F.U.F. í Reykja-
vík verður haldið f Framsókn-
arhúsinu (neðri sal) laugard.
6. febr. n. k. og hefst með
borðhaldi kl. 7 e. h. Fram-
reiddur verður kaldur matur
og verður borðað á lausum
borðum.
Dagskrá: Ávarp: Formaður
F.U.F. Einar Sverrisson. Gísli
Guðmundsson, alþm., fyrsti
form. F.U.F., flytur ræðu.
Árni Jónsson syngur einsöng
og Ómar Ragnarsson skemmt-
ir. Dansað verður til kl. 2 eftir
miðnætti.
Aðgöngumiðar fást á flokks-
skrifstofunni í Edduhúsinu,
símar 16066 og 19613.
STJÓRNIN.