Tíminn - 24.03.1960, Síða 8
8
T f MIN N, fimmtudaginn 24. marz 1960.
Lárus Jónsson frá Grund,
fyrrverandi tilraunastjóri á
Hólum i Hjaltadal, sem nú
dvelur í Ameríku. aðallega
við nám og tilraunastörf í
íþöku, hefur sent Tímanum
þetta Ameríkubréf, og segir
þar einkum frá kynnum
hans af búnaðartilraunum
og búskap í Suður-Flórída.
Ameríkubréf:
r./j.v ,
Lárus Jónsson við tilraunastörf i íþöku.
Er ég koxn á vettfang var skor
ig sellery á spildu nokkurri. Voru
við það notaðar vélasamstæður
allstórar og krafði hver samstaða
fimm tugu manna til þess að ganga
á fullu. Voru ellefu slíkar í
gangi þann daginn. Skiluðu vélar
þessar kálinu þvegnu og kösuðu
upp á vörubíl, sem dreginn var
aftur á bak af vélinni sjálfri, sem
gekk fyrir eigin aflvéL Sá vörubíll
skilaði kálinu til kælibíls, er
flutt það á markaðinn, í flestum
tilfellum til New Yor'k, eða nokk-
uð á þriðja þúsund km. leið.
Nokkur var það nýlunda mör-
landanum að sjá fólk á annarri
spildu planta sellery, en þarna
eru teknar þrjá uppskerur ár
hvert.
SeUery er sáð fyrst mjög þétt
í smábeð, síðan er því plantað út
Lárus Jónsson, fyrrv. tilraunastjóri á Hólum:
Þar sem mýrafen brenna
Það myndi væntanlega taka
meira en eina smágrein að gera
skil öllum þeim góðverkum, sem
hin meira eða minna sálaða efna
hagssamvinnustofnun Evrópu hef
ur unnið. Það er heldur ekki til-
gangur þessa bréfs, enda er það
engin minningar'grein.
Eitt þessarra góðverka var að
veita undirrituðum styrk til tíu
mánaða náms í Bandaríkjum N-
Ameríku.
Það var ekki án fiðrings í mag
anum að stigið var upp í loftfarið
í Reykjavík síðla kvölds að hálfn-
uðum ágústmánuði síðast liðnum.
Ekki var heldur fundið ti,l neins
sérstaks söknuðs, þegar litið var
niður og til baka til höfuðborgar-
innar umvafinnar í hráslaga síð-
■astliðins sumai's.
Það voru snögg umskipti frá
hráslaga og kulda svefnrofanna
í Goose Bay að stíga út úr flug-
vélinni í hádegissól og 35 stiga
hita á flugvelli New York borgar
að Idlewild. Eftir nokkurra stunda
bið var flogið áfram til Washing-
ton.
I íþöku
Eftir vikulanga og kvalafulla
dvöl í steikjandi hita og raka höf- |
uðborgarinnar og eftir að allar!
áætlanir höfðu brostið, var hald !
ið norður á bóginn og numið stað !
ar í Ithaca í New York ríki,
litlum bæ og leiðum í dásamlega
fögru umhverfi. Þar var mér fund
inn samastaður til vetrardvalar
og náms á rannsóknarstofu Sam-
bandslýðveldisins, þeirri er fæst
við rannsóknir allt frá jarðvegs-
fræði til fóðurfræði búfjár. Þar
hefi ég dvalið, ag mestu, síðan
í bezta yfir'læti og undir hand-
leiðslu beztu manna.
Tilgangur þessara námsstyrkja !
er sagður tvíþættur: í fyrsta lagi
að auka fagþekkingu og þjálfa
vlðkomandi, í öðru lagi að kynna
honum þjóðlíf og lífsviðhorf
bandarísku þjóðarinnar. Til þess
að þetta megi vel takast er |
nokkru fé varið til ferðalaga sé J
það talið henta eða þess sé óskað.
Til SuSur-Flórida
Það kann að þykja kvikindis-
skapur og illkvitni hjá undirrit.
að honum þótti slæmt að vita af
fjárveitingu honum til handa og
láta vera að skerða hana nokkuð.
Þannig fór, er líða tók á haustið,
og námsáætlanir tóku á sig fastara
form, að ég tók að ókyrrast f
íþöku og fór fram á að sjá meira
af því gestrisna landi er ég gisti.
Þar eð janúarmánuður var eini
tíminn til ferðalaga, sem völ var
i, þótti einsýnt að halda skyldi
undan kuldanum suður á bóginn J
og var undinn að því bráður bug ■
ur að undirbúa ferðalagig tál S-!
Flórida.
Síðla kvölds, hins fyrsta dags j
hins nýja árs var svo sezt í Grá-
hundinn og ekið nær óslitið (að-
eins með maíarhvfldúm) í 44 st.
Stigið var út í West Palm Beech
seinni hluta hins þriðja dags. Það
var sólskin og 30 stiga hiti. Þar
eð ferðinni var heitið inn á miðj
an skagann þar sem Belle Glade
heitir, var höfð svo skömm við
dvöl á ströndinni sem mögulegt |
og látið nægja að dást að hinum sí |
grænu pálmatrjám og státlegu
hótelum og mótelum, sem laða
að sér milljónir' ár hvert.
Dífa var fekin.
Belle Glade er um átta þúsund
manna bær um 65 km. frá austur
ströndinni. Þar er tilraunastöð í
jarðrækt fyrir Suður-Flórida og
sérstaklega fyrir þann hlutann, er
Everglades er nefndur. Er það
sjálfsögðu skýringin á staðarval-
inu.
ÁSur fen og foræði
Þssi hluti Flór'ida* var fram
yfir síðustu aldamót fen eitt og
foræði, sem engum var fært nema
fuglinum fljúgandi. Sólskinsríkið
og sambandslýðveldið .tóku síðan
höndum saman um skurð-kerfi til
framræslu mýrunum, og breyttu
þeim í akurlönd, þar sem græn-
meti og annar gróður bylgjast
á þúsundum hektara hins mar-
flata flæmis. Vatninu verður að |
dæla burt. Er því dælt í stöðu- j
vatn allstórt, er yfirborð þess nú !
all miklu hærra en akranna. Hver
landeigandi hefur svo sitt einka-
skurða- og dælukerfi í sambandi
við hið opinbera aðalkerfi. Að lok
um er svo akurspildan kflræst.
Verkar kerfið að sjálfsögðu sem
áveitukerfi jafnframt og þykja
kílræsin gefast vel til þeirra hluta
einnig.
Gott samstarf við bændur
Tilraunastöð’in leggur mikla á
herzlu á, og hefur, fyrirmyndar
gott samstarf við bændur í um-
hverfinu (þetta mun gilda um all-
flestar amerískar tilraunastöðvar)
Mér gefst tækifæri á að sitja
einn bændaklúbbsfund, þar sem
sérfræðingar stöðvarinnar svör-
uðu spurningum bænda og ræddu
við þá vanda- og áhugamál þeirra.
Virtust báðir aðilar kunna að
meta samstarfið. Var mest rætt
um jurtasjúkdóma. Seinni hluta
dagsins ferðaðist ég svo um með
héraðsráðunautnum ásamt tveim
ur ríkiráðunautum í gróðursjúk
í tilraunastöð landbúnaðar og mýrar-
kotum” Suður-Flórída
hafi lært mikið um gróðursjúk-
dóma sem slíka þá fékk ég áþreif
anlega sannað það, er ég hafð'i
fregnað, að varla fyndist í víðri
veröld sá sjúkdómur eða það skor
kvikindi er legðist á gróður, að
ekki væri það til staðar í Flórida.
Veldur því hð hlýja og raka lofts
lag.
Verkstjóm í flugvél
Mjög er algengt ag tilraunastöð
in leggi tilraunir í lönd bænda
og er það samstarf báðum til
gagns og gengur hið bezta. Nú
stóð uppskerutíminn sem hæst.
1 Fylgdist ég því með einum til-
raunamanninum út á akur hans
Gafst þar á að líta! Var -bújörðin
hin sæmilegasta að stærð eða um
11400 ha. með grænmeti, sellery
og hvítkáli að mestu. Var búið rek
: ig af þremur sonum stofnandans.
I Höfðu þeir aðalstöðvar sínar f
! nokkurri fjarlægð og ’notuðu
einkaflugvélar til þess að ferðast
um landareignina og fylgjast með 1
störfum húskarla sinna. Þurfti
og nokkurs ,með, þar sem þeir
héldu um þúsund manns á mála [
(mest negra). Auk þessarra 1400
ha. ég nefndi áttu bræðurnir aðra !
1600, er ekki hafði unnizt tóm
til þess að rækta upp ennþá. - |
með vélum, er ki'efjast 24 manna
til að skila fullum afköstum. Voru
tvær slíkar í gangi.
-Viilljóna-kctbýli
Var skýrt tekið fram að kot-
býli þetta væri aðeins eit-t af
mcrgum. Var mér tjáð, að í góð
um árum mokuðu menn upp pen
ingum en í lakari árum væri skað
inn einnig talinn í milljónum dala,
fr'ost og fellbyljir ásamt markaðs
sveiflum gerðu útkomuna allt ann
að en árvissa. (Viku eftir að ég
yfirgaf Flórida geþði þar frost,
er olli skaða svo milljónum skifti,
og urðu bændur að endurplanta
mikið af ökrum sínum).
Að fleiru er unnið á mýrunum
en grænmetisrækt. Allmikið er
þar um holdanaut og nokkuð um
svín. Endurspeglast það í starf-
semi stöðvarinnar. Þar er öflug
búfjárræktardeild, er vinnur að
fóðurtilraunum og kynbótum.
Þrír stofnar eru ræktaðir af
holdakyni: Hereford, Angus og
Indverjinn Bahman. Allmikið hef
ur verið reynt ag blanda þessa
stofna og vex blendingurinn mun
hraðar en foreldrarnir hreinrækt
aðrir. Gæta verður þess þó að æxla
blendingana með hreinum stofni
annars hvors foreldrisins ella
Lárus Jónsson skoðar „votheysturn" af nýrri og sérkennilegri gerð
dómum. Þótt vafasamt sé, að ég I Suður-Flórída — nánar sagt frá því í grelninnl.
fellur einistaMingurinn í sama
farið hvað vaxtarhraða snertir.
Miklar fóðurtilraunir
í fóðurfræðum hafði athyglin
aðallega beinst að snefilefna-
skorti. Sér í lagi að beinasjúk-
dómi orsökuðum af lágu hlutfalli
milli kopars ok mangans. Kopar-
skortur sérstaklega í fylgd með
miklu mangan veldur unmmynd
unum á ökla sérstaklega og fót-
leggjum yfirleitt.
Hey er aðallega verkað sem
vothey. Beinast því tilraunir að
því að finna sem einfaldastar og
ódýrastar geymslur. Algengt er
um öll Bandaríkin að hrúga hey-
inu saman í stíur og troða það
með dráttarvélinni um leið og
ekið er inn. Tjaldað er yfir með
plasti eða tjönrpappa til þess að
halda raka frá. Veldur þessi
geymsluaðferð mikilli rýrnun á
fóðrinu. í Flórida eru stíur þess
•ar gjarnan settar út í beituhólf
unum því kýr eru ógjarnan tekn
ar á hús. Hið nýjasta í votheys-
verkun er að plastdúk sé brugðið
utan um heyið og yfir það. Haldið
er utan að dyngjunni með vírneti.
Gefur þessi aðferð loftþétta
geymslu og ver fóðrið algjör-
lega skemmdum. Versti óvinurinn
er rottan, sem r"" r gat á tjaldið
og sleppir inn k..:. Á meðfylgj-
andi mynd má sjá greinarhöfund
skoða einn slíkan „turn“ ásamt
einum fóðurfræðinga sveitarinn-
ar.
Heypressun
Verkfræðingur stöðvarinnar
vinnur að vél til þess að pressa
safann úr gr'asinu á ódýran og
hagfelldan hátt. Hafði hann unn
ið að þeirri hugmynd meira eða
minna um fjörutíu ára bil. Sarna
aðferð er í aðalatriðum notuð í
margs konar ávaxtaiðnaði . Hafði
hann komizt það langt, að á
skammri stundu lækkaði pressan
vatnsmagn grassins úr 85% niður
í 60%.Virðist af niðurstöðum hans
að einu gildi um upprunalegt
vatnsmagn, pressan skili grasi
með um 60% vatni. Virðist það
tryggja vel heppnaða votheys-
verkun, lækka sýrustig heysins
niður í hið æskileg bil.
Þótti honum þó sem bændur
veittu aðferðinni li'tla athygli, en
hann hélt ótrauður áfram. M.a.
vann hann að tilraunum með nýt
ingu hins mikla og næringarríka
safa, sem tilfellur, Minnti hann
mig allmjög á Klemenz á Sáms-
stöðum, sem heima á Fróni háir
harða baráttu fyrir heymjölshug-
mynd sinni við litlar undirtektir
án efa minni en skyldi. Mér virð
ist hafið yfir allan vafa, að við
íslendingar getum mikið lært af
tflraunum á Belle Grade i þessu
efni. Við hljótum a.m.k. að taka
einhverja slíka tækni í okkar
þjónustu ef við ætlum okkur ekki
að verða undir í baráttunni við
veður og vind.
Loftslagið veldur erfiðleikum
Frá landbúnaðar sjónarmiði
veldur hið hlýja loftslag miklum
erfiðleikum þrátt fyrir allt. Mjög
er úrkomusamt í Suður-FIórida
(1400 mm./ár). Veldur það því að
allar lægðir eru fylltar mýrajarð
vegi, sem kostað hefur mikið fé
ag ræsa fram. Viðhaldsframræsla
er og mjög dýr, því skurðir fyllast .
gróðri á skammri stundu. Þegar
mýrin er tekin til ræktunar kem
ur í ljós að hún er snauð af öll-
um steinefnum. Hitt er þó sýnu
verra, að hún eyðist (brotnar nið
ur) með gífurlegum hraða Hún
bókstaflega brennur undir fótum
manns. Er aðein-s ein leið til að
stemma strgu við því: að hylja
hana vatni. Taflð er ag upp úr
næstu aldamótum verði ekker'
eftir af stórum flæmum, sem nú
gefa ríkulega uppskeru Veldur
t1 '" ' að sjálfsögðu að allir
' -ambald á 13. síðu).