Tíminn - 24.03.1960, Síða 11

Tíminn - 24.03.1960, Síða 11
TÍMINN, fimmtudaginn 24. marz 1960. 11 „Ég vil bara vera kon3n Þetta er svo mynd af þelm Tlnnu (t. h.) og Snædisi, sem við tókum heima hjá þeim MeSaÍ leikenda í fram- haldsleikriti Agnars Þórð- arsonar í útvarpinu „Ekið fyrir stapann" eru tvær litl- ar stúlkur. Þær heita Snæ- dís og Tinna, og eru dætur hjónanna Herdísar Þor- valdsdóttur, leikkonu, og dr. Gunnlaugs Þórðarsonar. Við brugðum okkur heim til þeirra í gær og ætluðum að ræða við ungu leikkon- urnar. Er við komum þangað heim, voru þær að koma inn úr dyr- unum frá æfingu og upptöku í útvarpinu. Önnur var að sippa, en hin lék sér að húla-hopp gjörð og virtust ekkert mega vera að ræða við fréttamann, sem ryðst svona inn til þeirra, þegar enginn á sér ills von. Við snerum okkur fyrst að Snædísi og spyrjum hana hvað hún sé gömul: — Ég er 7 ára. 1 — Þá ert þú komin í skóla, er það ekki? — Jú, ég er í Melaskólanum. — í hvaða bekk? — Ég er í sjö ára bekk dé. — Ert þú ekki ákveðin að gerast leikkona þegar þú verð- ur stór? — Það veit ég ekki .... ég held ég vOji vexða leikfimi- kennari. Ég ætla bara að vera kona Þá er röðin komin að Tinnu, Stúlkan á myndlnni heltlr Virg- inia Lee og er hingað komin alla leið frá Suður-Afríku, reyndar með viðkomu i Bretlandi, þar sem hún er vel þekkt dægurlaga- söngkona. Hér á landl mun hún dvelja í nokkrar vikur og syngur á Röðli ásamt Hauk Morlhens. — Myndin er tekln er ungfrúin steig út úr Gullfaxa á Reykjavlk- urflugvelli. (Ljósm.: Sv. Sæm.) s.________________________________J sem enn er að sippa á miðju| gólfi, og er jafn leikin í að sippa aftur á bak sem áfram. — Hvað ert þú gömul Tinna? — Ég er bara 5 ára. — Svo þú ert eki komin á skólaaldurinn enn. En kanntu að lesa? — Já, svona hér um biL Hér kemu pabbi hennar henni til hjálpar og sagði að systkini hennar hefðu að mestu kennt henni að lesa. Börnin eru fjögur, elztur þeirra er Hrafn 11 ára, þá Þorvaldur 9, svo Snædís og Tinna. Þrjú elztu eru öll í Melaskólanum. Við höld- um áfram að spyrja Tinnu. — Hvað ætlar þú nú að verða þegar þú verður stór, Tinna. — Ég ætla bara að vera kona. — Finnst þér gaman að leika í útvarpið? — Ég veit ekki, sagði hún og varð svolítið feimin við allar þessar spurningar, en bætti síðan við ósköp lágt: Mér finnst mest gaman að hlusta. — Hvað er mest gaman við að leika í útvarpið? Hér er Snædís aftur komin og segir: — Það er mest gaman að fara í lyftunni upp og niður. Tinna er alveg sammála systur sinni. Leika í f jórum þáttum Nú eru þær Snædís og Tinna alveg orðnar uppgefnar á fr'éttamanninum, en hann ekki búinn að fá nóg. Þá kemur mamma þeirra okkur til hjálpar og s'egir: — Þetta eru nú ekki stór hlutverk, sem þær eru með, en ■ það er handhægt fyrir okkur að hafa þær, því þá get ég alltaf komið með þær með mér. Það fer heldur lítið fyrir því sem þær segja, ég verð að skrifa það allt á blað fyrir þær og það í prentstöfum. Annars gengur þetta allt vel, nema á einni æf-! ingunni, þá bað Agnar þær að hlæja, en allt kom fyrir ekki, | það var ekki nokkur leið að fá þær til að hlæja. Þá kippir sú 1 yngri í mig og segir: — Já, en mamma, ég get ekki hlegið nema eitthvað sé hlægilegt. •— Stundum fá þær að koma upp í leikhús og þykir þeim það voða gaman. Um daginn fengu þær að sjá Kardemommubæinn, og það þótti þeim nú eitthvað varið í, og er við vorum að fara heim, sagði Tinna við mig: „Mamma, mig langar svo til að verða barnaleikkona.“ Nú er kvöldmaturinn á borð borinn, svo við viljum ekki tefja lengur og þökkum fyrir okkur. Þegar við göngum út sjáum við að Snædís og Tinna verða ósköp fegnar að losna við svo spurulan fréttamanna. Jhm. AKVENPALLI Aldrei má þurrka skótau á heitum ofni, þá skemmist það. Svona vírgrind gæti verið þægi leg, þá má smeygja skóm og stígvélum á hana og þá er þeim ekki hætt við skemmdum. Tak ið eftir stígvélaþrælnum, sem drengurinn notar til að ná af sér vaðstígvélunum. Það getur munað miklu á fjölmennum heimilum að hús- gögn séu af þeirri gerð, sem auðvelt er að sauma á hlífðar- áklæði. Stólar og bekkir með lausum setum eru nú mikið í tízku og þá er auðvelt að klæða. Sumir hafa renniiás á hlífðar- áklæðinu, svo að hægt sé að smeygja allri setunn' * i það, aðrir láta brún inn af og sauma að á homunum. Erf- iðara er að fást við föstu set- urnar, en ef að ekki er of mikiö útflúr á húsgögnunum, þá tekst oft að ganga snoturlega frá hlífð aráklæði, en það má telja nauð synlegt þar sem ung börn eru og þröngt húsijæii.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.