Tíminn - 05.04.1960, Side 1
TÍMINN flytur daglega
melra af innlendum frétf-
um en önnur blöS. Fylgirf
meS og kaupiS TÍMANN.
14. árgangur — 78. tbl.
Þriðjudagur 5. apríl 1960.
UTSVÖR LÖGÐ
Á ELLILAUN
Samkvæmt útsvarsfrumvarpi ríkisstjórnarinnar á aí leggja
allt aft 800 króna útsvar á einstæ'S gamalmenni, sem hafa e’ngar
aírar tekjur en ellistyrk sinn. — Þetta er eitt dæmiS um þá þjóí-
félagshætti, sem ríkisstjórnin er aS reyna aS innlei'Sa á íslandi.
Samkvæmt útsvarslagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar
eru þrenns konar reglur um álagningu útsvara. í
Reykjavík skulu 25 þús. kr. vera lágmark hreinna tekna
til útsvarsálagningar. í öðrum kaupstöðum er lágmarkið
15 þús. en í sveitarfélögum landsins er lágmarkið að-
eins 3 þús. kr. Á þær tekjur skulu lagðar 200 kr. og
síðan stighækkandi. Á 10 þús. kr hreinar tekjur ein-
staklings skal t.d. leggja 830 kr. samkv. 7. gr. frum-
varpsins.
7—800 á ellilaun
Samkvæmt þessu skal lagt útsvar t. d. á einstæð
gamalmenni, sem engar aðrar tekjur hafa en ellistyrk
sinn, og það hvorki meira né minna en 7—800 kr.
Þannig á að seilast niður í vasa þeirra, sem algerlega
félausir mega teljast og skerða jafnvel nauman ellilíf-
eyri. Það er allt á sömu bók lært.
FLUGBÁTURINN
FLYGUR k NÝ
Ljósa-
vika
Nú stcndur yf-
ir Ijósavika hjá
Ljóstæknífélagi
íslands, sem ætl-
ar að lýsa upp
Austurvöll og
nágrennl hans
næstu daga.
Þetta er einn
starfsmannanna,
sem er hér pril-
andi uppi I stiga
til þess að
hengja dýrðina
upp.
Loftferðasamningur milli
íslands og Svíþjóðar
Undanfarið hafa farið fram samningavið-
ræður í Stokkhólmi milli fulltrúa íslands
og Svíþjóðar um loftferðir milli landanna.
Jafnframt hafa viðræðufundir verið haldnir
með fulltrúum Danmerkur og Noregs til
þess að ræða sameiginleg vandamál varð-
andi flugþjónustu flugfélagsins Loftleiða á
Norðurlöndum. Stefnt hefur verið að því
að binda endi á það ástand, sem árum
saman hefur ríkt, að enginn samningur
hefur verið í gildi um flugsamgöngUr milli
íslands og Svíþjóðar, og jafnframt að
tryggja frambúðarlausn loftferða milli ís-
lands og Skandinavíu.
Um nokkurra ára skeið hefur flugfélagið
Loftleiðir haldið uppi flugi til skandinav-
ísku landanna þriggja, Danmerkur, Noregs
og Svíþjóðar. Á leiðum þessum hefur fé-
lagið tekið fargjöld, sem sumpart eru tals-
vert lægri en þau, sem fyrir er mælt um
hjá Alþjóðaflugmálastofnuninni (IATA), en
aðilar að henni eru flest þau flugfélög, er
annast reglubundna loftflutninga, þ. á m.
SAS og Flugfélag íslands. Flugfélagið Loft-
leiðir hefur hingað til notað flugvélar af
gerðinni DC-4. Frá og með þessu sumri
áætla Loftleiðir smám saman að taka í
notkun stærri gerð flugvéla, þ. e. DC-6B.
Viðræðurnar hafa leitt til þess að gerður
(Framhald á 3. síSu).
Samgönguleysi Vestfjarða og Siglu-
f jarðar er nú loks á enda
Seinnipartinn í febrúar var katalínaflugbátur Flug-
félags íslands tekinn til vandlegrar yfirferðar, og átti
félagið þá enga vél til þess að halda uppi ferðum til
þeirra staða, þar sem lendingarstaðir á landi leyfa ekki
stórar flugvélar.
Þá var það, að Tryggvi Helgason tók upp áætlunar-
flug til ísafjarðar á sjúkraflugvél sinni, en hún getur
lent á stuttri flugbraut innan við kaupstaðinn. Þótt
flugvél hans sé ekki stór, bætti hún þó úr brýnustu
þörfinni með flutning og farþega.
Nú flýgur Faxinn aftur
Nú er ársskoðun katalínaflugbátsins Sæfaxa hins
vegar lokið, og fór hann í reynsluflug í gær. Hann
mun nú aftur taka til þar sem frá var horfið og fljúga
til sömu staða og áður, Vestf jarða og Sigluf jarðar. Er
ekki að efa, að íbúar þeirra staða munu taka vel á
móti honum, þegar hann ber að garði þeirra á nýjan
leik eftir langa fjarveru. —- S