Tíminn - 05.04.1960, Blaðsíða 6

Tíminn - 05.04.1960, Blaðsíða 6
6 TÍMINN, þriBjudaginn 5. aprfl 1960. Minningarorð: Vilhjálmur Benediktsson í dag verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, ViLhjálmur Bene diktsson frá Borgareyri í Mjóa- firði eystra. Hann lézt á Hvíta- bandinu 26. f.m. Vilhjálmur var fæddur 19. febr. 1877, og voru foreldrar hans hjón in Margrét Hjálmarsdóttir, Her- mannssonar frá Firði í Mjóafirði og Benedikt Sveinsson, dótturson ur Benedikts Þorsteiussonar prests á Skorrastað í Norðfirði. Voru þessir' forfeður hans mikl ir sveitarhöfðingjar á sinni tífj og urðu mjög kynsælir. Er af þeim kominn mikill ættbogi á Austur- landi og víðar. Vilhjálmur ólst upp í stórum systkinahóp, á miklu menningar- heimili, þar sem búskapur til lands og sjávar var rekinn með kappi og dug. Þar var og gnægð góðra bóka til lestrar, þegar annir leyfðu. Þau Borgareyrarsystkini voru mjög söngelsk. Spiluðu sum á orgel, og var þar oft tekið lagið með þeim þrótti og fjöri, sem segja má að væri aðalsmerki þeirra. Ekki áttú þau mimistan þát-t í þeim fagra söng sem heyra mátti í Mjóafjarðarkirkju um alda mótin síðustu. En mér sem þetta rita, er djúpa minnisstæð síðan hin og núkla bassarödd Vil- hjálms heitins, sem mér fanust eins og breiður grunnur, sem efri raddlrnar hvíldu á. Mikifj var teflt á Borgareyrar- heimilinu í þá daga. Vera má að sumir bræður Vilhjálms hafi ver- j ið honum snjallari skákmenn. En j ekki minnist ég að hafa séð glæsi-1 legri né vasklegri konung en á aldamótahátíð Mjófirðmga, er bræður hans, Sveinar tveir, þreyttu skák meg lifandi mönn- ZETOR Bændur og atSrir væntanlegir kaupendur dráttarvéla á þessu ári eru beSnir atS at- huga, aí Z E T 0 R dáttarvélin er lang- ódýrasta fáanlega dráttarvélin á markatS- inum og þá ekki sízt núna eftir efnahags- ráSstafanirnar. um og hann var konungur fyrir öðru liðinu. Innan við tvítugsaldur réðist Vilhjálmur að verzlun , fr'ænda síns, Konráðs Hjálmarssonar, og starfaði við hana síðan/ meðan hún var við líði, eða um nær hálfr ar aldar skeið. Ui'ðu honum fljótt öll störf þar jafn töm, en einkum lét honum vel öll verkstjórn og þau umsvif sem fylgja mikilli fiskverkun og fiskverzlun. Ekkert viiðist falla honum betur, en að etja kappi við örðugleikana, hvort sem þeir voru af náttúrunnar völdum eða af öðrum toga spunnir. Var hann þá oft aðsópsmikiU og gustur I fasi, unz orustan var unnin. En þá gat hann verið allra manna reif- astur og ljúfastur. Konráð Hjálmarsson kunni vel að meta þennan unga og frækna frænda sinn; og þegar hann setti á stofn verzlun sína á Norðfirði gerði hann Vilhjálm að veizlunar stjóra þar. Sú verzlun efldist svo á fáum árum, að hann var síðan um langt skeið með stærstu verzlunar- og útgerðarfyrirtækjum á Austfjörð- um. Vilhjálmur giftist 1905 HeLgu Jónsdóttur frá Gaukss'töðum í Garði, góðri konu og glæsilegri. Eignuðust þau eina dóttur, Sig- ríði, sem gift er Karli Þorfinns- i syni kaupmanni í Reykjavík. | Á þeirra vegu fluttu gömlu hjón j in frá Norðfirði 1942. Konu sína missti Vilhjálmur tíu árum síðar. Dvaldi hann eftir það á heimili dóttur sinnar og tengdasonar, og átti þar góða og ánægjulega elli- daga. Hann hélt lengi góðri heilsu þótt aldur færðist yfir hann, og stundaði verzlunar- og afgreiðslu störf allt þangað tli á s.Í. ári að hann kenndi þess meins er varð honum að bana. Sjúkdóminn bar hann til hinztu stundar með því æðruleysi og karlmennsku. sem honum var svo líkulega £ blóð borin. Ólafur H. Sveinsson. KLÁPPARSTiG 40. KAHLA-postulínsvörur ofum venjulega á lager hinar eftirsottu K A H L A - postulinsvörur SYNISHORN AVALLT FYRIRLIGGJANDI ZETOR 25 A kostar nö um Kr. 72,200 Innifalið í þessu verSi er vökvalyfta, rafmagnsút- búnaður, verkfæri, varahlutir. Þeir sem gert hafa pantanir hjá okkur eru betinir ati athuga, atJ vitS munum afgreitSa þessa dagana ZETOR 25 A dráttarvélar og eru því beSnir atS hafa strax samband vitS okkur eta umbotismenn okkar. EVEREST TRADING SOMPANY Garðastræti 4. — Sími 10969.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.