Tíminn - 20.04.1960, Qupperneq 9
iíii©vikudaginn 20. aprð 1900.
9^
ÞjóðleikhúsiS — vestur- og norðurhlið
verk, sem náð hafa miklum
vinsældum hjá leikhúsgest- •
um, og hafa verið mjög vel •
sótt. )
Þegar litið er til baka yfir )
starfsemi Þjóðleikhússins s.l. ?
tiu ár verður flestum Ijóst, (
að mikið hefur áunnist. Heims (
þekkt og erfið verk hafa verið (
flutt þar á leiksviðinu og £
margar af þessum sýningum )
hafa verið listrænar og tekizt )
mjög vel, en aðrar miður en )
skyldi, eins og alltaf gerist á )
öllum leikhúsum. i
Reynslan hefur þroskað \
?
?
?
?
?
?
?
J
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
Úr íslandsklukkunni ?
— Brynjólfur Jóhannesson (
sem Jón Hreggviðsson (
bæði stjórnendur og listafólk j
stofnunarinnar, svo að í fram )
tíðinni verða gerðar háar )
kröfur til alls þess, sem flutt )
verður á sviði Þjóðleikhúss ís ?
lendinga. (
KL. J. i
Verkefni Þjóðleik
hússins frá byrjun
Leikrit 85
Óperur og óperettur 13
Ballettar 6
Eriendir gestaleikir,
óperur, íeikrit og ballettar 14
Samtals 118
(Skálholt meðtalið)
íslenzk leikrit 22, þar af 5 gamanleikir. Erlend
drama 35. Erlendir gamanleikir 29. Sýningarf jöldi leik-
hússins 2131, þar af 3 sýningar erlendis. 155 sýningar
úti á landi í flestum bæjum og kaupstöðum landsins.
Tala leikhúsgesta frá upphafi til þessa dags 973.453,
þar af tæplega 35 þúsund úti á landi og erlendis 1458.
Um 70% sæta eru setin að meðaltali á sýningu. Það
er hagstæðari tala en þekkist hjá Norðurlandaleikhús-
unum, sem flest eru með 50—60%
Tekjur: Seldir aðgöngumiðar frá byrjun til þessa
dags: 35.600.000,00. Halli á rekstri ótrúlega lítill.
Erlendir leikstjórar og hljómsveitarstjórar 11. —
Meðal þeirr'a einhverjir þekktustu leikstjórar í Evrópu,
eins og t.d. prófessor Rott frá Vínarborg, Sven Áge
Larsen frá Kaupmannahöfn, prófessor Walter Firner
frá Vínarborg og Walter Hudd frá London.
Tala leikara: 16 A-samningi. 4 B-samningi. 15 C-
samningi í vetur. — Starfsfólk á árslaunum um 50, á
kvöldkaupi, sem vinnur að staðaldri 35. — Leiklistar-
skólinn 10 nemendur. — Listdansskólinn 200 nem-
endur. •
í þjóðleikhúsráði eiga sæti: Vilhjálmur Þ. Gíslason,
formaður, Haraldur Björnsson, leikari, Gylfi Þ. Gísla-
son, ráðherra, Halldór Kiljan Laxness, rithöfundur,
Hörður Bjarnason, húsameistari ríkisins.
Má ekki segja satt
um útfluttar
landbúnaöarvörur?
Því er stöðugt haldið fram í
ræðu og riti, að 97% af öllum út-
flutningi íslendinga sé sjávarafli,
og mun þá átt við verðmæti. Þetta
heyrist af og til í blöðunum og
iðulega í útvarpinu, og ævinlega
er lögð á bað mikil áherzla. Vafa-
laust hefur þetta einhvern tima
verið rétt, en nú um nokkur ár
hefur það verið fjarri lagi. Þegar
þessu var haldið fram árið 1958,
var það ekki lengur rétt, og síðan
hefur útflutningur á búvörum auk
izt, svo að þessi fullyrðing fjar-
lægist sannleikann með ári hverju.
Hver maður, sem les Hagtíðind-
in, getur reiknað út, hvað rétt er
í þessu efni, a. m. k. að mestu
leyti. Sannleikurinn þarf því ekki
að dyljast neinum, hvorki í mál-
stofum Reykjavíkur né á efstu af-!
dalabæjum.
Hagtíðindin segja í 1. hefti þessa
árs, að allur útflutningur frá fs-|
landi árið 1959 hafi numið rúm-,
lega 1059 milljónum króna. Jafn-1
framt ,segir þar, að kindakjöt fryst
hafi verið flutt út fyrir 19,518
milljónir og ull fyrir 20,075 millj.
Ullin hlýtur öll að vera af sauð-
fé og sama er að segja um gærur,
sem voru fluttar út á árinu fyrir
31,723 milljónir króna. Loks
voru svo garnir fluttar ,út fyrir
3,389 milljónir. Samkvænít þessu
eru sauðfjárafurðir fluttar út
fyrir 74,7 milljónir króna, en það
nemur rúmlega 7% af öllum út-
flutningi. Þetta verðmæti leggur
þá sauðfé til í útflutninginn, en
að vísu er sáralítið af öðrum bú-
vorum flutt úr landi. Þó eru
skinn og húðir saltað 1,8 millj.
króna, og mun það mest eða allt
af búpeningi. Loðskinn eru flutt
út fyrir 1,7 miilj. króna, og af
iþeim er ekki sjávarafli, nema
það, sem vera kann af selskinn-
um.
Gamlir málmar eru fluttir út
fyrir um 1,6 millj. kr. Skip og
skipsvélar eru sennilega veruleg-
ur hluti af þessu, en ekki eru
þær vörur sjávarafli íslendinga.
Loks eru „ýmsar vörur“ fluttar
út fyrir 13,844 milljónir. f þeim
lið eru sjálfsagt engar eða mjög
litlar sjávarafurðir, því að hreinn
sjávarafli er áður talinn í 22
flokkum og endað á fiskroðum.
Samikvæmt þessum útflutnings
skýrslum Hagstofunnar geta út-
fluttar sjávaæafurðir árið 1959
varla numið mikið meiru en 91%
af öllum útfluttum vörum. Það
er sú tala, sem sýnir nýjasta
sanhleikann í þessum efnum.
Þeir, sem vilja, geta reiknað út
meðaltal nokkurra ára og haldið
fram sínum tölum samkvæmt
því. En það er rétt að geta þess,
þegar svona hlutfallstölur eru
nefndar, við hvað þær eru miðað-
ar, hvort það er síðasta ár eða
meðaltal nokkurra ára eða jafn-
vel eitt ár fyrir alllöngu, t. d.
1953 eða 1954.
mikii nauðsyn á aukinni fjöl-
breytni í atvinnuvegum og út-
flutningsvörum. Því er ástæða til
að gleðjast yfir henni, hvar sem
hún kemur fram á heilbrigðum
grundvelli. Þær 74,7 milljónir
króna, sem útfluttar sauðfjáraf-
urðir færa inn í landið, eru að
vísu ekki nema liðug 7% af út-
flutninigsvarðmætinu. En þær
eru þó fyllilega á móti helmingi
þess, sem fékkst fyrir alla síld
og síldarafurðir, sem út voru
fluttar 1959. Þær eru næstum
því nákvæmlega jafnmikið og
fékkst fyrir alla útflutta skreið
á því ári. Þær meira en dugðu
til að greiða allar kornvörur, sem
fluttar voru inn í landið, bæði
til skepnufóðurs og manneldis.
Það er líka óhætt að segja, að
þær hafi dugað til þess að greiða
aliar innfluttar rekstrarvörur
landbúnaðarins á íslandi, fóður-
vörur, áburð, beznín og olíur.
Allir íslendingar hljóta að fagna
þessum útflutningi sauðfjárafurða
og halda því á lofti að eitthvað er
þó verið að gera til þess að öll
viðskipti landsmanna við aðrar
þjóðir byggist ekki á einni at-
vinnugrein.
Guðm. Ingi Kristjánsson.
Magnús kemur
ekki
Upplýsigadeild sendiráðs
Bandaríkjanna hefur tilkynnt,
að ekki geti orðið af fyrirhugaðri
komu hr. Magnúsar Kristoffer-
sens bókavarðar hingað til lands
að sinni, þar eð hann hafi for-
fallazt vegna veikinda, sem muni
valda því, að hann verði ekki
ferðafær í nokkra mánuði.
Hins vegar er tilkynnt, að
hann eða annar bókasafnafræð-
ingur í hans stað muni koma
hingað undir haustið, halda
námskeið í bókasafnafræðum og
flytja fyrirlestra um skólabóka-
söfn.
Fræðslukvöld
Garðyrkju-
félagsíns
Annað fræðslukvöld Garð-
yrkjufélags Islands á þessum
vetri verður haldið miðvikudag-
inn 20. apríl í Iðnskólahúsinu á
Skólavörðuholti og hefst kl.
Þessar nýju tölur um útflutn-
ing hagga í engu þeirri staðreynd
að öll verzlun íslendinga og af-
koma þeirra byggjast að langsam
lega mestu leyti á sjávarafla.
Þær draga ekki úr þeirri nauð-
syn, isem þjóðinni er á fiskveiða-
réttindum kringúm landið. Lega
landsins og öll skilyrði gera það
eðlilegt og óhjákvæmilegt að
sjávarútvegur sé fremstur þeirra
atvinnugreina, sem fólkið stund-
ar. Jafnframt er landsmönnum þó
20,30.
Gunnar Hannesson verzlunar-
maður og Kristmann Guðmunds-
son rithöfundur ræða um skrúð-
garða við heimahús.
Athygli er vakin á, að öllum er
heimill aðgangur, og ættu á-
hugamenn um garðrækt að not-
færa sér þessa fræðslustarfsemi
Garðyrkjufélagsins.